//Tvö
10. júní 2006 klukkan 17:19
Grunnskóli [x]
Þýskaland - Kosta Ríka [4-2]
England - Paragvæ [?]
Vinna í SS [2 dagar]
Grunnskólagöngu minni er formlega lokið, ég er útskrifuð. Útskriftin var í gær & ég [sviðshrædda manneskjan] fór þrisvar upp á svið. Fyrst fór allur bekkurinn upp á svið og tók við einkunnum. Ég er frekar ringluð núna af því að á miðanum sem við fengum fyrst stóð að ég hefði fengið 9 í stærðfræði en á einkunnblaðinu sem við fengum í gær stóð 9.5. Í annað skiptið var verðlaunaafhending. Ég þurfti að fara ein upp á svið og taka við verðlaunum fyrir hæstu einkunn í íslensku [ljóðabók] og ég stóð ein í smá tíma á sviðinu. En svo kom Hörður Kári og fékk verðlaun fyrir stærðfræði [og samfélagsfræði og náttúrufræði] eftir það byrjaði að fjölga á sviðinu. Harpa fékk verðlaun fyrir vinnusemi og hún var ekki að trúa því. [Krútt] Höddi dúxaði og Raggi var næsthæstur en ég var þriðja með 0.2 lægri meðaleinkunn en Höddi. Í þriðja skiptið fór ég með Leifi upp á svið og afhenti blóm og gjafir.
Á miðvikudaginn var rigning. Mikil rigning. Svo mikil rigning að mamma gaf mér frí frá Akrafjallsferðinni. Svo var hætt við ferðina vegna rigningar en þau fóru í fjöruna í staðinn. Jibbý. Á fimmtudaginn var svo þetta blessaða Húllumhæ en ég fór í bæinn með Leifi að kaupa örbylgjuofn, Playstation 2 og leiki sem að árgangurinn '90 gaf svo skólanum. Við fórum með strætó og það horfðu allir á okkur þegar við gengum fram hjá enda hélt Leifur á örbylgjuofni. Þegar við komum upp í skóla var svo mikið sem átti eftir að gera að ég kom ekki heim fyrr en klukkan 5. Þannig að síðasta daginn í skólanum var ég allan daginn í skólanum.
Ég, Sunneva og Dúa fórum líka að bera út skólablaðið í Jörundarholtinu og Flötunum [300 blöð] og vorum að deyja úr þreytu þegar við komum heim klukkan 12. Ég og Sunneva fengum líka svakalegar harðsperrur sem að ég er ennþá með. ['Mazing]
Ég og Hjörtur horfðum á The Punisher í gær. Hún var ágæt, jafnvel þótt að sumt hefði ekki verið alveg að passa.[Hann hefði verið löngu dauður.] Guðjón ætlar að stinga af í Reykjavíkina þannig að ég og Hjörtur ætlum bara að baka pönnukökur á eftir. Og Guðjón fær ekki neitt.
Á morgun er ég að fara á Hvolsvöll þar sem ég verð í allt sumar og á mánudaginn byrja ég að vinna í SS á kvöldvöktum. [3-11] Ég er ótrúlega spennt en samt líður mér geðveikt furðulega og ég sakna allra ógeðslega mikið. <3
Ég sá lögguna handtaka tvo menn sem voru með fíkniefni í gær. Jájá, hentu efnunum bara út um gluggann þegar löggan kom. En löggan er svo gáfuð að hún fann efnin og leitaði svo á þeim og á endanum henti hún þeim inn í löggubílinn. Ég og Hildur horfðum á þetta eins og þetta væri hin besta bíómynd en pabba fannst þetta ekki nærri því eins skemmtilegt.
Later
//Helga
//Helga
já ég sakna þín læk kreisí en sjáumst þegar þú kemur heim..:( ég hefði ekki viljað sjá þetta með dópistana...:S...kreisí fólk, en hringi í þig á morgun eða e-ð heyrumst...
#2
11. júní 2006 klukkan 23:50
ég væri til í að sjá það :D [spennurödd] ég er soddann dópisti O.o .. nei I was just a joker ;]
flott færsla ;* á eftir að sakna þín en ef við hittumst ekkert aftur þá sjáumst við bara á reouniiunu eftir 5 ár ;D er haggi?
bleeess ..
flott færsla ;* á eftir að sakna þín en ef við hittumst ekkert aftur þá sjáumst við bara á reouniiunu eftir 5 ár ;D er haggi?
bleeess ..
#3
12. júní 2006 klukkan 00:52
róleg ætlaru bara ekkert að sjá hana á böllum í FVA og í skólanum ertu bliind...nei djók hehe :*
#4
12. júní 2006 klukkan 12:45


en skemmtu þér bara vel í sumar.. sjáumst öruggleag eitthvað.. ég ættla eitthvað að kíkja á Hvolsvöll í sumar..:D