Hæ!Fyrir ykkur sem að höfðuð áhyggjur þá er tölvan mín ekki í hakki.
eða alla vega ekki eins miklu hakki & ég hélt hún væri komin í Nei, þannig er það að straumbreytirinn er í hakki. Það gleður mig mjög mikið því að straumbreytir er eilítið ódýrari heldur en ný tölva. Og þar til að ég kem því í verk að kaupa nýjan straumbreyti þá get ég bara notað straumbreytinn hans Óskars! Þökkum Guði fyrir bróður minn í tölvutegund.
Núna eru bara tuttuguogþrír dagar þangað til að við förum út til Frakklands & þaðan til Burkina Faso. Þar af leiðandi erum við komin á fullt í fjáröflun. Einn sunnudaginn héldum við RISA kökubasar & ætlum að halda annan þann 17.febrúar. Strákarnir eru á fullu að skipuleggja styrktartónleika sem verða haldnir laugardaginn 16.febrúar. Við erum síðan öll í því að reyna að fá fyrirtæki til að auglýsa í stórum kynningarbæklingi fyrir kirkjuna sem gefinn verður út á næstunni.
Í þessari viku erum við búin að vera með tvo gestakennara
[Teddi í gær & Krisín Jóna í dag
] & á morgun kemur sá þriðji, Þórhallur Heimisson, & ætlar að kenna okkur trúarbragðafræði. Það er alveg ótrúlega gaman að fá svona mikið af kennurum með frábærar kennslur. Ég held að í næstu viku verði líka einhverjir gestakennarar.
Ég er búin að vera
rosalega dugleg í nýju vinnunni minni. Mömmu finnst það algjör brandari að ég sé að vinna við úthringingar þar sem að ég er með hræðilega símafóbíu, en svona er Guð stundum; húmoristi út í gegn.
Vá, hvað það er miklu skemmtilegra að skrifa ruglblogg. Þið megið búast við einhveri steypu frá mér fljótlega. Ég vona það alla vega. Plís Helga kveiktu aftur á ofvirka ímyndunaraflinu þínu & skrifaðu einhverja undraverða steypu á síðuna þína. Ókei? Það væri flott.
&& ég er ekki að fara að gifta mig
hvað sem Eydís kann að segja.
vertu sæl