Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðTuttuguogFimm

11. janúar 2008 klukkan 16:25
a  a

[Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt, ransaka mig og þekktu hugsanir mínar, og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg
--Sálmur 139:23-24]

Ég er laaaasin. Eða þið vitið svona slöpp & rugl. Var eitthvað slöpp í gærdag en ákvað samt að fara út með Eydísi, Gísla & Hjalta. Big mistake. Þar sem að ég lagðist svo bara uppí rúm & var hálfónýt. Rétt staulaðist fram til að fá mér afmælisköku sem var tileinkuð mér og Óskari. [Hann á afmæli 9.jan en ég 29.sept] Betra er seint en aldrei átti mjög vel við helminginn af kökunni. Síðan staulaðist ég upp í rúm & svaf til hádegis.

Afríkuferðin er loksins komin með greinilegar útlínur. Við munum yfirgefa þetta land föstudaginn 29.febrúar, við fljúgum til Parísar en þar verðum við í tvo daga. Eiffelturninn & fleira menningarlegt bíður mín. Sunnudaginn 2.mars munum við síðan fljúga til Burkina Faso. Miðvikudaginn 12.mars munum við síðan koma aftur til Íslandsins góða. Þetta verður samt einhver geðveiki; 8 tíma flug frá Burkina til Frakklands, 5 tíma bið á flugvellinum & svo 4 tíma flug heim. Gleði gleði.

Strákarnir, Hjalti & Óskar, eru báðir komnir heim þannig að lífið í Völvufelli er allt að detta í rétta farið. Nema kannski fyrir utan það að þvottavélin dó í gær. Mjög áhugaverð saga á bak við það andlát. Það sem sé festist vír úr brjóstahaldara í vélinni með þeim afleiðingum að rafmagninu sló út & vélin dó. Já, lífið hérna í Völvufelli er öðruvísi.

Ég fattaði að ég hef ekki frá neinu merkilegu að segja.
Hæ ertu lasin?? æææjjjjjj.
vildi að þú varir heima þá myndi ég kkoma og gefa þér knús og kókglas. En sjáumst vonandi á morgun...verða ða hætta Sunneva er að gefa mér graut eða eitthvað með bleikri skeið. Erum í mömmó.
love mamman
#1
11. janúar 2008 klukkan 17:02
eg samhryggist vegna þvottavélarinnar, það er hrikalegt þegar þær bila. Það á alltaf að setja brjóstahaldara í sér poka sem er hægt að kaupa í flestum stórmörkuðum, skamm þvottavélaníðingur.. :)
#2
13. janúar 2008 klukkan 18:00
Helga ÞórarinsdóttirÉg vil taka það fram að brjóstahaldarinn var ekki í minni eign.

(=

Ég gerði ekki neitt til að drepa aumingja þvottavélina!
#3
13. janúar 2008 klukkan 19:37
Mér fanst þetta nú bara alveg ágætlega merkilegt!!
#4
13. janúar 2008 klukkan 21:19
Tanja Rós Ívarsdóttirhaha æj þetta er rosalegt :)
en leiðinlegt að þú sért veik... ef ég væri ekki að vinna lengi lengi lengi í kvöld þá myndi ég koma og heimsækja þig. :)

*stórt Knús*
#5
14. janúar 2008 klukkan 09:38

Skrifa athugasemd

Prófíll