Yndislegt blogg!
Vissi ekki af bænavikunni, ætla reyna að koma í vikunni :)
//EitthundraðTuttuguogFjögur
07. janúar 2008 klukkan 00:38

[Mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn. Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.
--Jesaja 55:8-9]
Ég er hætt að hafa áhyggjur. Hætt að hafa áhyggjur af framtíðinni, af peningum & öðru rugli sem að skiptir svo ótrúlega litlu máli. Það tekur alltof mikinn tíma að vera alltaf að hugsa um að redda öllu. Ég á hvort sem er besta pabba í heimi sem að skapaði heiminn; ætti ekki að vera mikið vandamál fyrir hann að halda mér gangandi. Ég ætla bara að leggja þetta allt í hans hendur af því að hann veit svo miklu betur en ég hvað er best fyrir mig; hann er nefnilega alvitur sjáiði til.
Skólinn er byrjaður aftur. Það er allt voða hljóðlegt & tómt hérna án Hjalta og Óskars sem eru ennþá úti í landi tækifæranna. Ég get samt alveg viðurkennt að við erum ekki búin að gera mikið síðan á föstudaginn. Föstudagurinn fór í það að lesa yfir Ný Kynslóð Biblíuna & svo var samkoma. Á laugardaginn var vinnudagur niðrí kirkju. Og það er nokkurn veginn bara þetta sem við erum búin að gera. Í morgunsunnudagur skelltum við okkur á brauðsbrotningu & síðan fór ég að vinna. Á morgun er mikli vikulegi frídagurinn. Og ég ætla í vinnuna. [=
Öll næsta vika er bænavika í kirkjunni. Ég mæli eindregið með því að þú komir á eitthvað af því sem verður að gerast í vikunni. [ www.filadelfia.is ;; dagskráin verður þar ] Joshua Jones kennir okkur í skólanum alla vikuna & hann verður einnig að prédika á unglingasamkomu, sem að verður reyndar fyrir alla, á föstudaginn. Að sjálfsögðu ætla allir að koma með til Vestmannaeyja, eða er það ekki? Tjékkaðu alla vega á linknum hérna fyrir neðan gestabókina til vinstri.
Skólinn er byrjaður aftur. Það er allt voða hljóðlegt & tómt hérna án Hjalta og Óskars sem eru ennþá úti í landi tækifæranna. Ég get samt alveg viðurkennt að við erum ekki búin að gera mikið síðan á föstudaginn. Föstudagurinn fór í það að lesa yfir Ný Kynslóð Biblíuna & svo var samkoma. Á laugardaginn var vinnudagur niðrí kirkju. Og það er nokkurn veginn bara þetta sem við erum búin að gera. Í morgun
Öll næsta vika er bænavika í kirkjunni. Ég mæli eindregið með því að þú komir á eitthvað af því sem verður að gerast í vikunni. [ www.filadelfia.is ;; dagskráin verður þar ] Joshua Jones kennir okkur í skólanum alla vikuna & hann verður einnig að prédika á unglingasamkomu, sem að verður reyndar fyrir alla, á föstudaginn. Að sjálfsögðu ætla allir að koma með til Vestmannaeyja, eða er það ekki? Tjékkaðu alla vega á linknum hérna fyrir neðan gestabókina til vinstri.
Hlakka til að sjá þig í Vestmannaeyjum ;]
VESTMANNAEYJAR BÚJAH!!!
ég sver, ég fer að gráta ef ég kemst ekki!!!
ég sver, ég fer að gráta ef ég kemst ekki!!!
#3
08. janúar 2008 klukkan 16:57


sé þig í eyjum ;)