//EitthundraðTuttuguogEitt
24. desember 2007 klukkan 15:09
Eitt örlítið blogg áður en jólin koma ókei? Ég hef samt örugglega ekkert skemmtilegt að segja þar sem að ég er eiginlega bara búin að vera að vinna. Á föstudaginn horfði ég samt á Transformers [LOKSINS] með Dodda og var það mjög skemmtilegt og spes. Minniháttar rifrildi um sæng & eitthvað fleira skemmtilegt. Eftir að hafa næstum því sofnað þá skelltum við okkur í afmæli til Guðnýjar Erlu. Og í þetta skiptið fórum við heim á Kristilegum tíma. =)
Síðasta laugardagskvöld voru einhvers konar litlu jól heima hjá Dabba. Það byrjaði voðalega sakleysislega með því að þau skiptust á gjöfum, svo varð það aðeins ógeðslegara þegar þau ákváðu að drekka kók & bryðja freyðivítamíntöflur. Það freyddi frekar mikið út úr þeim & Hannes, sem drekkur ekki gos og var með mjólk, ældi. Flott flott.
Myndband ----> [http://youtube.com/watch?v=2ZBuljVUb6s]
Við urðum síðan að fara út þar sem að hinir á heimilinu voru farnir að sofa & við vorum með soldið mikil læti. Enduðum í Ártúninu á N1 eins og oft áður & Þór var svo sniðugur að gleyma bíllyklunum sínum á afgreiðsluborðinu. Konan kom og rétti mér lyklana þannig að ég ákvað bara að keyra! Yesyes, var mjög dugleg að keyra sjálfskiptan bíl í fyrsta skiptið. Mér fannst ég samt eiginlega vera að svindla; eins & ég þyrfti að gera miklu meira en ég var að gera. Svo var reyndar keyrt á mig, en ég var kyrrstæð. Þannig að það var ekki mér að kenna! En það var samt hálf kjánalegt.
Núna er ég bara heima hjá mér alveg að fara að fara í jólafötin.
Til hamingju með jólin!
Núna er ég bara heima hjá mér alveg að fara að fara í jólafötin.
Til hamingju með jólin!
hey girl! tak for sidst!!! og ég fann hvar apapeysan kom fram =D =D (komment á totas) ;) hahaha... heyrumst! =)
#3
28. desember 2007 klukkan 21:11


Hlæ að þessu seinna!
Gleeeðileg jól!