Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogTuttugu

19. desember 2007 klukkan 13:06
a

Í morgun fékk ég mjög óvænt símtal. Símtal frá manneskju sem að ætti að vera mun virkari í mínu lífi en hún er nú þegar. Manneskja sem ætti í rauninni að hringja í mig bara til að heyra í mér. Og í morgun gerðist það. Í heilar sex mínútur og þrjátíuogfimm sekúndur talaði ég við þessa manneskju. Ég var svo hissa að ég meikaði örugglega ekkert sense, en þetta made my day.

Í Völvufellinu er ekki búið að vera net síðan á laugardaginn. Við Ég er búin að tuða mjög mikið & tel að við séum að snúa aftur til Steinaldar, nema í þetta skiptið er það mun verra, af því að ég veit hverju ég er að missa af. Ég efast um að þeir á Steinöldinni hafi verið jafn háðir Internetinu og ég er.

Á laugardaginn var ég að passa systkini mín & skásystkini mín [Erdnu & Óla börn]. Gamla fólkið skellti sér á jólahlaðborð út í Viðey & ég sá um krakkaskarann. Eftir að börnin voru mjög pössuð plataði ég Dodda með mér í afmælið til Helene Ingu. Þar var alveg heill hellingur af fólki & ótrúlega gaman. Skynsemin tók öll völd þegar ég fór að sofa klukkan fimm, vaknaði klukkan tíu til að fara á brauðsbrotningu klukkan ellefu & fór svoí vinnuna frá eitt til tíu.

Mánudagskvöldið var vídeókvöld í Völvufellinu. Sunna & Óskar fóru útum allan bæ að leita að Napoleon Dynamite og fundu hana loksins í Árbæ, ásamt tveimur öðrum myndum. Við horfðum á Napoleon Dynamite & Evan Almighty langt fram á nótt og þegar ég vaknaði í gær horfði ég á Kung Fu Hustle með Óskari & Hjalta. Ég hef bara eitt orð yfir þá mynd; STEIK

En ég er að pæla í að fara að selja fólki sem ég þekki ekki föt.
Ókei töff.

Eydís Berglind BaldvinsdóttirSætabaunin mín =)
#1
19. desember 2007 klukkan 17:19
já geggjað töff Helga!:D hehe:) Napolion Dynamite er snilld!! Elska hann=).. en æðislegt blogg sæta;*
#2
19. desember 2007 klukkan 19:43
Hahaha! xD
Steinaldar dæmið fékk mig til að hlægja uppáhátt!

En þú ert nátturlega skynsamasta manneskja í heiminum!
Ég hefði örugglega ekki einusinni farið að sofa!

Ég er alveg klááár á því!
#3
20. desember 2007 klukkan 22:38

Skrifa athugasemd

Prófíll