Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogSextán

28. nóvember 2007 klukkan 22:43
a

Einu sinni var lítil stelpa. Litla stelpan átti fallegan iPod sem að geymdi alla tónlistina sem hún hlustaði á í frítíma sínum. Einn góðan veðurdag var litla stelpan að hlusta á fallega iPodinn sinn í stóra bílnum sem mamma hennar var að keyra. Nokkrum dögum seinna áttaði litla stelpan sig á því að hún hafði ekki séð fallega iPodinn síðan hún hafði hlustað á hann í stóra bíl mömmu sinnar. Litla stelpan varð mjög sorgmædd en hún var svo upptekinn að hún gleymdi að hringja í mömmu sína til að biðja hana um að finna fallega iPodinn sinn. Daginn eftir fann hún lausan tíma og hringdi úr bleika símanum sínum í mömmu sína og spurði hana hvort hún hefði séð fallega iPodinn. Mamman lofaði að leita og fann loksins fallega iPodinn í stóra bílnum. Nokkrum klukkutímum seinna var litla stelpan komin með fallega iPodinn sinn í hendurnar. Og þá fattaði hún að bakið af bleika símanum sínum var týnt.

Anywho!

Sagan hérna fyrir ofan er mjög sönn og var átakanleg reynsla fyrir litlu stelpuna. Litla stelpan hefur nýlega fundið sig mjög djúpt sokkna í verkefni af alls kyns toga. Þá sérstaklega af tölvulegum toga. Fyrir ykkur sem vitið það ekki þá er litla stelpan með þrjú verkefni í fararteskinu & var að ljúka við hið fjórða í dag;

O__o - Hin ógurlega vikulega ritgerð sem litla stelpan þarf að skila af sér sem Biblíuskólanemi

O__o - Hið merka verkefni að koma Ný Kynslóð Biblíunni yfir á skiljanlegt mál - prófarkarlestur & fleira

O__o - && að lokum þarf litla stelpan að prófarkarlesa yfir mánaðarlegt fréttabréf sem var þýtt úr mjög brenglaðri norsku.

Litla stelpan er einnig mjög einmanna þessa stundina. Þrátt fyrir að það séu trilljónogtuttugu - eða tuttuogníu - online á hinu merka samskiptaapparati MSN þá virðist enginn hafa áhuga á að tala við litlu stelpuna. Og litla stelpan situr ein inni í stofu - of þrjósk til að fara að sofa - bíður og vonar að einhver hefji samræður við sig. Rétt í þessu voru tveir sambýlingar litlu stelpunnar að ganga inn í húsið.

Taka skal sérstaklega fram að litla stelpan er búin að vera í skrítnu skapi síðustu daga og lýsir það sér í undarlegri tjáningarþörf á bloggsíðum landsins. Óttist eigi - þetta líður hjá - eða það vonar ríkisstjórnin.

Ef þú hafðir ekki áttað þig á því þá er litla stelpan
ég.


[&& ef þú finnur bleikt bak af Nokia síma máttu
endilega láta
mig vita]

geturu notað silfrað gamalt og lúið bak af gömlum samlokusíma??

Litla stelpan mín ég elska þig og er frekar mikið stolt af þér þú ert svo dugleg. Yndisleg og falleg með hreint og hlýtt hjarta. elska þig mamman
#1
29. nóvember 2007 klukkan 10:23
Tanja Rós Ívarsdóttiræj hehe.. þetta var mjög spes blogg verð ég að viðurkenna :)
og leiðinlegt með símann :)

en já ömurlegt að þú skulir vera svona einmana... ef þig vantar einhvern til að tala við máttu endilega hringja ;) ég er ekki að gera mikið merkilegt nema skóli og svo bænastundir og lofgjörð þessa dagana þótt það sé alls ekkert ómerkilegt að hanga með Guði :) það er bara bjútíful & yndislegt :)

*risa stórt knús*
#2
29. nóvember 2007 klukkan 12:33

Skrifa athugasemd

Prófíll