Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogFimmtán

26. nóvember 2007 klukkan 15:10
a

Augnablikspæling sem enginn skal taka of alvarlega;;
 eru sjö ár of mikill aldursmunur?
Haha, ég býst fastlega við því að ég fái milljónogtuttugu spurningar um það hver sé sjö árum eldri en ég. En þetta er einungis fræðileg spurning þar sem að ég er ekkert að pæla í neinu svoleiðis. Í rauninni þegar ég skyggnist djúpt inn í heilahvelið á mér þá er ég ekki að pæla í neinu. Ég er bara, er eiginlega ekkert að pæla í framtíðinni. Nema kannski að pæla í því að læra síðasta versið fyrir minnisversaprófið á morgun.

Ég er nefnilega eiginlega alveg hætt að plana lífið mitt sjálf. Það endar hvort sem er oft í klessu þannig að ég hef bara ákveðið að treysta Guði fyrir lífinu mínu og gera bara það sem hann vill.

Því að ég þekki þær fyrirætlanir sem ég hefi í hyggju með yður - segir Drottinn - fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju að veita yður vonarríka framtíð.
[Jeremía 29:11]

Ég held að ég ætti að skrifa eitthvað töff núna. Til dæmis hvað Glætan bókakaffi er notalegur staður eða kannski hvað unglingasamkoman á föstudaginn var mögnuð. Kannski ætti ég að skrifa um það hvernig Guð er að breyta fólki. Eða kannski ekki að skrifa neitt. En í rauninni hef ég ekkert að segja þannig séð. Ekki nema það sem ég er búin að segja nú þegar. Fyndið hvernig sumir hlutir hætta bara að hafa áhrif á mann þó að maður hugsi jafn mikið um þá.

GEIT!
[Ég hvet ykkur öll til að kommenta á þetta blogg;
sem virðist hafa verið skrifað
af
undarlegri manneskju]

Hæ sætan mín, sko 7 ár er ekki mikill munur þannig í sambandi en ef einhver er 7 árum eldri en t.d. þú þá er einhver bara 11 árum yngri en ég og 10 árum yngri en Hjalti...bara að pæla.

lov mamman
#1
27. nóvember 2007 klukkan 10:45
 
steinunn
hæhæ, flott blogg hjá þér.
#2
27. nóvember 2007 klukkan 11:20
Tanja Rós Ívarsdóttirhaha.. awesome blossom :)
mér finnst 7 ár misjanflega mikið eftir aldri ... á okkar aldri er það mikið en þegar maður er aðeins eldri þá er það kannski ok ;)
en já ég vona bara að Guð blessi þig bara áframhaldandi :)
*koss og knús*
#3
27. nóvember 2007 klukkan 14:28
þóRSjö ár er ekkert svaka mikið ef þú ert kominn yfir....svona......20 ár
18 eru svona mörkin...

Fyrir neðan það er eiginlega bara óhugnalegt og 'krípý'

Jer: 29-11
Er mjög kúlað vers=]
#4
28. nóvember 2007 klukkan 01:06
hæ ég er alltaf að reyna að gera Hjalta eldri en hann er auðvitað er einhver 12 árum yngri en hann.....en ég elska þig í klessu mamman.
#5
28. nóvember 2007 klukkan 12:03
Helga ÞórarinsdóttirHaha, ykkur að kenna að vera svona ung! =]
#6
28. nóvember 2007 klukkan 12:12
haha.. ég veit um hvern þú ert að tala =) :O ég elska þig í tætlur.. :D

-Bæjí
#7
28. nóvember 2007 klukkan 15:49

Skrifa athugasemd

Prófíll