Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogÞrettán

11. nóvember 2007 klukkan 13:22
PIGLET!

Nu skal vi prodda svenska! Nei, annars ég kann ekkert í sænsku. Ekki nema að syngja eitt alltof glaðlegt lag;
Hallelujah; jeg elskar dig Jesus!
En já ég sit hérna við eldhúsborðið hans Rickard Lundgren og horfi yfir garðinn hans. Ótrúlega flott útsýni; típískt jólapóstkort. Snjór yfir öllu & svona lítil sænsk bryggja út á á sem að rennur hérna fram hjá. Guðrún Marta, Óskar && Hjalti eru að útbúa hádegismatinn handa okkur. Lilja & Gísli eru úti á bryggjunni að fíflast með veiðstöng og myndavél. Voða kósí stemning.

Við erum búin að vera nánast á fullu síðan við komum hingað. Við byrjuðum á því að fljúga til Kaupmannahafnar & tjilluðum aðeins á flugvellinum þar. Ég smakkaði eitthvað Starbucks dæmi; ekki kaffi samt, það er ennþá ógeðslegt. Síðan tókum við lest til Malmö, stukkum þar út && skiptum um lest sem fór til Katrineholm. Alltíallt tók ferðalagið frá Völvufelli 11 til Katrineholm þrettán tíma. Ég & Eydís sofum í kjallaranum hjá Rickard Lundgren og fjölskyldu & það er mjög þægilegt. Á miðvikudaginn fengum við kennslu frá forstöðumanninum í Agabe-center um mismunandi persónuleika. Eftir hádegið fórum við síðan í bæ sem að heitir Eskilstuna. Fórum þar út á göturnar & buðum fólki á samkomu. Í kjölfarið af þeirri samkomu frelsuðust tveir.

Fimmtudagurinn var frekar kósí dagur. Fengum kennslu frá Mr. Andersson [Jonas] && vorum á nettu tjilli allan daginn. Enduðum daginn á að fara í keilu & gekk það misvel. Ég vann samt bæði Hjalta og Gísla í seinni umferðinni! =] Á föstudaginn fengum við síðan kennslu frá Rickard um kirkjuplöntun. Seinnipartinn fórum við síðan í bæ sem heitir Nyköbing og vorum að bjóða fólki í svona kristilega félagsmiðstöð. Það mætti alveg hellingur af ókristnum & ég talaði mjög mikið við tvær ókristnar stelpur sem voru þarna. Það var mjög góð hljómsveit þar að spila & ég fílaði hana í tætlur. Wrestling With Angels heitir hún og þú getur fundið hana á mæspeis ;]

Í gær fengum við síðan að sofa út. Hallelúja! Fórum í kirkjuna og vorum bara eitthvað að dunda okkur við að taka til. Báðum líka með ykkur í andanum þegar bænagangan var á Íslandi! Um kvöldið fórum við svo út að rölta að reyna að veiða fólk. Við stelpurnar [Ég, Eydís, Lilja & gMarta] fórum á McDonalds og veiddum einhverja 8-10 múslimastráka sem að voru svona 14-16 ára. Fórum með þá til baka og vorum eitthvað að spjalla við þá. Gekk bara nokkuð ágætlega held ég. Síðan fór ég með strákunum að rölta um allan bæinn & mér var KALT! Hitti líka tvo fulla stráka & ég get sagt ykkur að þeir eru alveg jafn ruglaðir og fullir Íslendingar.

Áðan vorum við á samkomu í Hvítasunnukirkjunni á staðnum. Ég vitnaði á ensku & það gekk alveg ágætlega. Það gekk alla vega betur en ég hélt. Gísli vitnaði líka && við erum öll búin að vera eitthvað að tjá okkur á ensku. Svo þegar við förum til Afríku þurfum við held ég öll að prédika, á ensku í þokkabót. Ég verð bara einhver allt önnur manneskja þegar þessi vetur klárast!

Ástarkveðjur frá kaldri Svíþjóð ;*

Tanja Rós ÍvarsdóttirOOh en gaman :)
Vona að þú eigir það yndislegt þarna ;)
#1
11. nóvember 2007 klukkan 15:09
Ég er farinn að sakna þín klikkaðslega mikið:O:O:O!
farðu að kíkja á vatnið eða láta mig vita með lausan tíma hjá þér:)
#2
11. nóvember 2007 klukkan 18:29
Hæ yndislegust, gott að heyra að allt gengur vel og að það er gaman að "veiða"fólk. elska þvi og sakna þín. Mamma.
#3
11. nóvember 2007 klukkan 19:38
hehehehe elska ekki því þig heldur elska ég þig.
mamman
#4
11. nóvember 2007 klukkan 19:39
þóRHvað er málið með Mr. Anderson ;)
Heitir hann Jonas Anderson eða....?

Æjjj, bara eitthvað að pælast
:]


En gaman að heyra frá þér í Svergie!
Hvenær verður komið heim??
#5
12. nóvember 2007 klukkan 12:41
Helga ÞórarinsdóttirHaha já hann heitir Jonas Andersson!

En já ég fer til Kaupmannahafnar á morgun && svo home sweet home á miðvikudaginn =]

Hallelúja!
Ég hlakka ýkt til að koma heim =]
#6
12. nóvember 2007 klukkan 22:48

Skrifa athugasemd

Prófíll