28. október 2007 klukkan 21:49

Helga er í vetrarfríi!Þetta indæla vetrarfrí byrjaði á miðvikudagskvöldið, ég og Lilja stukkum strax á sæluna og leigðum Hot Fuzz. Borðuðum síðan pizzu og nammi yfir fyndinni mynd, ef þú hefur séð Shaun of the Dead þá var þetta eiginlega alveg eins, sami breski húmorinn og svipað mikið magn af blóði. Ekkert ljótu blóði samt, bara svona fyndnu blóði. En svo kom móðir mín kær og ég fór heim með henni uppá Akranes. Á fimmtudaginn var ég að stússast útum allt á bílnum; fór í bankann, sótti Edgar í skólann, fór í klippingu og út í búð. Yndislegt að geta bara gert þetta alveg sjálfur!
Á föstudaginn fór ég með mömmu í bæinn. Við sóttum Kötu fyrst í Mosó og svo hentum við mömmu einhvers staðar út í Norðlingaholtinu. Ég og Kata byrjuðum á því að fara niðrí Fíló og að borða, síðan reddaði ég Gísla á glærurnar og brunaði upp í Krossinn. Þór, eftir nokkra samskiptaörðugleika, var búinn að taka frá sæti fyrir okkur og við vorum að fíla okkur í botn á þessari Herkvaðningu. Í einu laginu stóðum við einar uppi að dansa! Það var silly. Eftir herkvaðninguna fórum ég, Kata, Þór, Sahara og Tanja í Grafarvoginn þar sem Tanja var að passa hús. Skemmtum okkur stórvel við að leika við brjálaða ketti [sérstaklega Þór], spila & hlusta á tónlist og svo að bera saman fólk á Facebook.
Kata && ég erum svo bara búnar að vera í tjilli um helgina. Horfðum í gær á einverja mynd sem var soldið spes en samt fyndin. Alltaf gott að vera með bestu vinkonu sinni að gera ekki neitt =] Núna á ég eitt kvöld og einn dag eftir af þessu vetrarfríi. Veit ekkert hvað ég geri á morgun en það verður áreiðanlega mjög skemmtilegt og áhugavert. Haustmótið er um næstu helgi og verðum við í biblíuskólanum á fullu í þjónustu þar. Ég til dæmis hringdi í alla Hvítasunnusöfnuðina á landinu á þriðjudaginn og var að spyrja þá út í mótið. Og ég er með símafóbíu, verí næs. Svo á þriðjudaginn í næstu viku [6.nóvember] legg ég land undir fót og flýg til Danmerkur, tek síðan lest til Svíþjóðar and that's about it. Við fengum einhverja stórfurðulega áætlun sem hafði áður verið skrifuð á servíettu og ég skildi minna en ekki baun. En ég er þó að fara til Svíþjóðar! Og ég býst fastlega við því að ég komi aftur til Íslands. Og svo fer ég beint á Soaking mótið uppí Koti, í þjónustu. Eftir það ætla ég að anda.
Hvað kom eiginlega fyrir alla kommentarana?
Ég heimta bið fallega um komment.
=]
Helga Þórarinsdóttir
Ég veit samt ekkert hvað ég á að seigja
.....
Það var reyndar mjööög gaman á herkvaðningu og þessir samskipta örðuleikar voru bara skemmtilegir, allavega eftirá, þegar þú varst búinn að taka síman uppaf jörðinni;)
þóR