Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogTíu

22. október 2007 klukkan 17:44
a

Ég er alvarlega að hugsa um það að skila ökuskírteininu mínu inn og fá bara endurborgað. Ég var að fá reikninginn fyrir seinni hlutanum af ökunáminu. Við erum að tala um að mitt bílpróf var dýrt bílpróf. Allur kostnaðurinn samanlagður, ökutímar & prófin tvö, var tæpur hundraðogfimmtíuþúsund íslenskar krónur. Takkfyrirtakk. Ég man eftir því þegar ég var lítil og ekki einu sinni með aldur til að hugsa um bíla þá sögðu allir að bílprófið kostaði svona hundraðþúsund && mér var líka sagt það þegar ég byrjaði að læra á bíl. Annað hvort er ég svona svakalega lélegur nemandi að ég verð að borga súpermikið til að læra að keyra eða þá að það er eitthvað svona verðbólgukjaftæði. Eða eitthvað svona sem tengist peningum sem að veldur því að allt verður voða dýrt! Já nákvæmlega svoleiðis.

En að öðrum og skemmtilegri hlutum þá fór ég á magnaða unglingasamkomu í Fíló á föstudaginn. Ég get sagt ykkur það að það er ekki mjög algengt að það þurfi að fá fólk til að hætta að biðja && það er nánast ekkert talað; bara lofgjörð & bæn. Vorum með svona eldgöng og þetta var bara mögnuð samkoma. Á laugardagsmorgninum vaknaði ég við ömurlegt veður && ákvað að fara ekkert á fætur. Fór að lokum á fætur & fór í afmæli til Evu Margrétar. Var þar allan daginn og svo þegar ég kom heim var mér boðið út að borða. Fór með Sunnu á American Style niðrí bæ && við hittum þar Lilju, Gísla, Kristó & Birgi Stein krullhærða. Fengum okkur að borða og svo fékk Gísli þá snilldarhugmynd að fara að spila einhversstaðar kristilega tónlist í tilefni mannfjöldans sem var niðríbæ á Airwaves. Ákváðum að hafa svona minitónleika í húsnæðinu þar sem mamma hennar Sunnu er að fara að opna kaffihús.

Eydís og ég röltum upp Laugaveginn á móti Þór, Kötu og fleirum, við hittum síðan Aron þar sem að hann var að koma úr vinnunni. Við þrjú tróðum okkur svo inní bíl til Þórs, Kötu && Köru og þar sem að ég er minnst þá fékk ég hásætið (eða sko ofan á Aroni). Niðríbæ var svo fullt af kristnu fólki samankomið og það var nokkuð góð stemning. Aron tók þá ákvörðun að labba heim til sín og þar sem að ég á víst að hafa einhvern hemil á honum þá hékk ég á honum. Það endaði skrautlega þar sem að hann ákvað bara að labba heim til sín með mig á bakinu og ég átti bara að gista heima hjá honum. Síðan vildi hann líka fara að skoða endurnar þannig að ég drattaðist á eftir honum út að tjörninni. Verí spes. En tónleikarnir voru góðir og það voru alveg nokkrir sem að voru að forvitnast um þetta. Þurftum svo reyndar að pakka öllu saman þar sem að það kom í ljós að við máttum ekki vera þarna. En þetta var mjög skemmtilegt kvöld.

Vetrarfrí næstu helgi hjá mér. Það verður gott að geta verið heima í nokkra daga. Síðan er það bara Svíþjóðin sjötta nóvember && Soaking mótið eftir það. En já, núna er bloggið nánast búið þar sem að hausinn á mér er nokkuð tómur. Vil bara að enda á því að tjá mig aðeins um íslenska veðrið í dag && segja ykkur að það er ömurlegt!
BLEUGH!!

haha :D þú ert dúlla :D ég hlakka til að koma til þin næstu helgi :D

Ég elska þig :D
#1
22. október 2007 klukkan 21:37
 
Dagbjört
SOAKINGMÓTIÐ!! Klárlega, can't wait :D En awesome blogg og takk fyrir seinast !
#2
23. október 2007 klukkan 12:49
Sahara Rós ÍvarsdóttirVá! Ég heyrði þetta með seinustu samkomu í fíló! :D GG!!!!! Haha og það var gaman niðrí bæ :D Gaman að hitta ykkur öll :) C U! :D
#3
23. október 2007 klukkan 17:51

Skrifa athugasemd

Prófíll