Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogÞrjú

25. september 2007 klukkan 17:13
a

iPod snúrur hverfa í Völvufelli 11. Það er staðreynd. Ef þú átt slíka snúru og hefur í hyggju að flytja hingað inn einn daginn þá myndi ég hugsa alvarlega um það að hafa hana í bandi. Eða bara í rassvasanum. Ég er búin að týna minni og Lilja týndi sinni um daginn. Sú snúra gæti hins vegar verið komin í leitirnar en mín virðist vera horfin af yfirborði jarðarinnar. Oh jæja, það eiga fleiri iPod á þessu heimili; ég fæ bara lánað þangað til að mín ákveður að snúa aftur til síns heima.

Ég og Kötulíus vorum ofurtöffaðar á laugardagskvöldið og mættum langfyrstar í innflutningspartý til Árna og Tómasar. Samræðurnar voru einstaklega þvingaðar fyrst en eftir þriggja tíma dvöl í agnarsmárri íbúð sem var troðfull af manneskjum fór ég bara heim með Lilju. Á sunnudaginn tókum ég og Lilja síðan nett tjill á daginn. Ég fylgdi henni á einhvern fund og þaðan fórum við síðan í Hagkaup. Skemmtum okkur stórvel þar við að skoða allt og ekkert; keyptum okkur að lokum Domino's pizzu og fórum heim með hana og ís og lágum í leti. Klukkan hálf fimm var síðan samkoma þar sem að ég og Gísli tókum skírn. Fyrst leit allt út fyrir það að skírnin yrði alveg síðast af því að það gleymdist að kveikja á vatninu. En rétt fyrir prédikunina skírði Hjalti mig og Gísla í surprisingly miklu og heitu vatni. Eftir samkomuna fór ég með stórfjölskyldunni [mínus pabbi & Þorfinnur] út að borða á Aski.

Í gær var ég bara heima. Gerði nánast ekki neitt. Og í morgun klukkan ellefu tók ég verklega bílprófið. Og viti menn ég stóðst það. Helga Þórarinsdóttir er að fara að fá bílpróf á laugardaginn; á afmælisdaginn sinn góðir hálsar! Sumir ættu að taka Helgu sér til fyrirmyndar en þar sem afmæli sumra eru löngu liðin og bílprófið kom ekki á þeim degi er það víst of seint. Skutlaðist með passamyndina til Sýslumannsins og reddaði einhverjum pappírum. Afi skutlaði mér síðan niðrí Fíladelfíu þar sem að ég þurfti að skrifa á enn fleiri pappíra. Skrifaði undir eitthvað sem segir að ég sé formlega komin í Hvítasunnukirkjuna á Íslandi. Tók svo minnisversaprófið ógurlega og það gekk nokkuð vel. Var nokkuð sátt í þær tíu sekúndur sem liðu þangað til að ég fékk næsta minnisversablað. Miklu lengri vers og fleiri. Veeei. En ég held að maður læri þetta bara líka eins og hitt. Og í sambandi við það þá ætla ég að fara að líma þessi vers inná innanvert heilahvelið á mér. Eða leggja mig. Bæði kemur sterklega til greina.

þóRTil hamingju með bílprófið!
Ég hefði defintetly tekið þig til fyrirmyndar ef þú ættir afmæli á undan mér en það er víst of seint núna:)

Við sjáumst bara á næstunni!

#1
25. september 2007 klukkan 22:57
Tanja Rós ÍvarsdóttirHæj Sæta! Gaman að hitta þig í partýinu á laugardaginn! =)
Og tilykke með bæði skírnina og bílprófið!!! OFurmikið að ske hjá þér þessa dagana... =)
Haltu áfram með flottu bloggin ;) Gaman að lesa um þetta allt og biblíuskólann ;)
*knús
#2
26. september 2007 klukkan 18:33
 
Birna
gott að LESA að þú sért búin að ná prófinu... hefði verið gaman að heyra þetta frá þér, t.d. þessar >5 mín sem við hittumst í gær... ég var reyndar búin að frétta þetta frá Maríu í gærkvöld...

I MISS YOU!!!
#3
28. september 2007 klukkan 20:01

Skrifa athugasemd

Prófíll