Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogTvö

21. september 2007 klukkan 17:47
a

Bara af því að ég er búin að vera að lesa öll blogg sem til eru á þessu jarðríki þá ákvað ég að blogga fyrir þá sem að gætu átt það á hættu að ráfa inn á mitt blogg. Ókei smá ýkjur kannski en þetta er ekki fjarri lagi. Það verður allt bara svo dautt hérna þegar við erum fá heima. Erum akkúrat þrjú núna í Völvinu. Ég, Gísli og Óskar. Óskar og Gísli eru báðir að skrifa sína ritgerð, sem að ég er btw búin með, þannig að ég sit hérna og er eiginlega að láta mér leiðast. Leiðist samt ekki þannig séð, heldur hef bara ekkert að gera. Skiljiði? :]

É
g veit að ykkur dauðlangar öll að heyra um mitt yndislega spennandi daglega líf í skólanum þannig að ég kem hérna með aðalatriðin. Í gær var kennsla í ICI [ég á að muna hvað þetta stendur fyrir; International Christian eða eitthvað] bæði fyrir og eftir hádegi. Christian Maturity heitir bókin sem við erum að fara í og er hún voðalega fræðandi og skemmtileg. Við erum með voða kósí kennslustundir, lesum bókina bara saman og þar sem að hún er á ensku fáum við að heyra ýmis afbrigði af hinum og þessum enskum orðum. Framburðurinn verður sérstaklega aðlandi þegar maður er búinn að lesa lengi og kannski mikið í einu og svo koma nokkur orð í einu sem að eru frekar krefjandi. Specific er eitt af þessum orðum sem að vefjast of mikið fyrir manni þegar maður er búinn að lesa lengi. En það er bara heimilslegt þegar að sú manneskja sem að er að lesa ælir orðinu út úr sér.

Sumir eru farnir að kvarta undan of miklum mat. Meirihlutinn af íbúunum, ásamt kennaranum, segjast vera komnir með bumbu. Sagan segir að fólk fitni í skólanum út af miklum og góðum mat. Ég hins vegar er alltaf svöng. Maginn á mér kemur daglega með dágóðan skammt af garnagauli. Sérstaklega í tímanum sem er frá 9 til 12. Ég fæ mig oftast ekki til að borða einhvern risaskammt af morgunmat sem að endar með fyrrgreindum afleiðingum. Ég get samt verið sammála þessu með mikinn og góðan mat. Í gær var kjúklingur í hádegismatinn og í dag var það kjötsúpa. Nokkuð massíft.

Áðan var hópnum skellt í myndatöku. Drösluðumst upp á einhvern hól, sem var víst í einkaeign, og þar tók Beta margar myndir af okkur. Þær voru hver annari kjánalegri og einstaklingsmyndirnar voru tjah, ég verð mjög ánægð þegar að hún verður búin að laga þær til og fótósjoppa þær aðeins til. Annars er ég búin að vera að reyna að taka myndir í gríð og erg. Maður verður að eiga myndir af þessum vetri. Þær koma örugglega fljótlega inná síðuna og svo fleiri í kjölfarið. Þetta er svo fallegt og áhugavert fólk sem ég bý með.

En ég er að pæla í að fara að lesa eitthvað.
Sem að hefur actually blaðsíður.
Ekki bara html.

Ég held að bloggveturinn verði bara fínn. Er þaggi?
Hey girl! Flott blogg hjá þér =)
Hahaha... skil þig svo vel... maður ráfar um netið, skoðar allt og er alveg! Af hverju bloggar fólk ekki... svo fattar maður að kannski væri að blogga þar sem maður hefur ekki bloggað í 2 vikur eða svo =D voða skemmtilegt =)
Gaman að heyra hvað þér gengur vel ;) heyri í þér ;*
#1
22. september 2007 klukkan 12:57
DagbjörtHey girlie ;D Flott bloggur og gaman að heyra hvernig gengur í mci!
#2
23. september 2007 klukkan 01:18
 
Rakel
Það er rosalega gaman að heyra hvað þú ert að gera :), frábært hvað allt gengur vel, við verðum að heyrast :) haha
#3
23. september 2007 klukkan 16:34
Hey!!! Vá. ég er eginlega hissa að þú minntist ekkert á það að þú átt afmæli á laugardaginn, loksins að fara að komast í hóp 17 ára ökuníðinga...:P
Vonandi getum við hittst aðeins, ef ekki á laugardaginn, þá bara annaðhvort aðeins fyrir eða aðeins eftir, ég er reyndar ekki búin að kaupa ammlisgjöfina þína, en það kemur með laununum sem ég fæ útborguð á föstudaginn (held ég og vona)! Ég elska póstinn fyrir að borga manni út daginn fyrir 1., eða ef 1. er á laugard eða sunnud þá á föstud fyrir.
C ya!
Love ya!
Miss ya!

Birna
#4
24. september 2007 klukkan 09:16
Vá!!!! Það hlýtur að vera GG stuð hjá þér!!! Vonandi gengur þér vel!!!

-Sahara Rós
#5
24. september 2007 klukkan 18:47
Flott blogg og æðislegt að heyra að þér líði vel og gangi vel í MCI þú ert algjört yndi ;**
Sé þig einhvern tíman fljótlega vonandi :P
#6
24. september 2007 klukkan 23:30

Skrifa athugasemd

Prófíll