//EitthundraðogEitt
19. september 2007 klukkan 21:41

Góða kvöldið. Ég sit núna inni í kennslustofunni í Völvufelli 11 með poppskál og kók í dós fyrir framan mig. Augljóslega með tölvuna líka og svo eru fjórar bækur í faðmlögum við hliðina á mér. Biblían, study-biblían, 'Biblían bók bókanna' og Ensk-íslensk íslensk-ensk orðabók. Hvað haldiði að ég hafi verið að gera annað en að læra? Megnið af samnemendum mínum stungu af til að fara á einhvern fund niðrí bæ þannig að ég sökkti mér ofan í lærdóminn. Lilja umsjónaraðili situr stöku sinnum við hliðina á mér með Doritos, ídýfu og kók, eða þegar hún nær að sitja kyrr.
Ég var að byrja á fyrstu minnisversaritgerðinni minni sem ég á að skila á þriðjudaginn. Alltaf gott að byrja snemma og það er miklu betra að vita af því að maður sé þó alla vega byrjaður. Ég er líka búin að læra þrjú minnisvers sem ég á að taka próf í á þriðjudaginn. Man þau nánast orðrétt, gleymast stundum einhverjar samtengingar en ég get lofað ykkur því að ég veð búin að steingleyma þeim á laugardaginn. En jæja maður reynir. Í gær fórum við öll saman í leikræna tjáningu niðrí Fíladelfíu. Það var skrautlegt. Hálfhlæjandi allan tímann og leið frekar kjánalega saman við hláturinn. Ég lifði þó af og síðan tóku við snögg þrif á kirkjunni. Vorum í góðu tjilli í gær frá um 3 þangað til að kvöldmaturinn var klukkan 7. Eftir kvöldmat var kröftug bænastund og smá fundur í sambandi við unglingasamkomur og unglingastarfið. Ég er orðin einhvers konar glæruyfirumsjónarmaður og sé um það að það sé alltaf fólk á glærum. Þannig að ef þú hefur gífurlegan áhuga á að vera á glærum þá skaltu bara tala við mig og ég redda því ;]
Í dag vorum við að læra. Ótrúlega fyndið hvað við tökum langan tíma í að fara yfir einn kafla. Við tölum náttúrulega endalaust og erum með kennara sem að hefur tjáningarþörf á við fimmtán. Mitt í allri kennslunni lýsti Hjalti yfir stríði á móti mér og Eydísi þar sem við sátum í okkar mestu makindum eftir að hafa kastað álpappírskúlu í höfuðið á honum. Óli litil [haha fleiri litlir xD] var eitthvað með honum í liði en ég og Hjalti tókum því langalvarlegast með tilheyrandi koddaköstum eftir tímann. Ég og Eydís roomie fengum svo Óla litla til að skutla okkur niðrí Mjódd. Ég fór í einhvern gullfallegan kassa og tókst að rumpa af einni passamynd, í fjórum eintökum, sem að mun skellast á ökuskírteinið mitt! Fórum í Nettó og keyptum ýmsar nauðsynjarþvottaefni og gos og tókum svo strætó aftur heim í Völvufellið. Klukkan sex var súpan og brauðið niðrí Fíladelfíu og þar fékk Kata mín loksins að hitta mig eftir langa og erfiða bið. Ég og Eydís eyddum svo stundinni með Frumherjunum sem voru að læra um eldvarnir. Merkilegt nokk. Ég fílaði þá nokkuð vel.
Og núna er ég bara heima. Poppið er alveg að verða búið og kókið líka. Ég er að pæla í að skella mér í náttfötin, skrifa kannski nokkrar línur í ritgerðina í viðbót og vona svo ásamt Lilju að sambýlingar okkar skili sér heim fljótlega. Það er alltof hljótt hérna!!
Ég var að byrja á fyrstu minnisversaritgerðinni minni sem ég á að skila á þriðjudaginn. Alltaf gott að byrja snemma og það er miklu betra að vita af því að maður sé þó alla vega byrjaður. Ég er líka búin að læra þrjú minnisvers sem ég á að taka próf í á þriðjudaginn. Man þau nánast orðrétt, gleymast stundum einhverjar samtengingar en ég get lofað ykkur því að ég veð búin að steingleyma þeim á laugardaginn. En jæja maður reynir. Í gær fórum við öll saman í leikræna tjáningu niðrí Fíladelfíu. Það var skrautlegt. Hálfhlæjandi allan tímann og leið frekar kjánalega saman við hláturinn. Ég lifði þó af og síðan tóku við snögg þrif á kirkjunni. Vorum í góðu tjilli í gær frá um 3 þangað til að kvöldmaturinn var klukkan 7. Eftir kvöldmat var kröftug bænastund og smá fundur í sambandi við unglingasamkomur og unglingastarfið. Ég er orðin einhvers konar glæruyfirumsjónarmaður og sé um það að það sé alltaf fólk á glærum. Þannig að ef þú hefur gífurlegan áhuga á að vera á glærum þá skaltu bara tala við mig og ég redda því ;]
Í dag vorum við að læra. Ótrúlega fyndið hvað við tökum langan tíma í að fara yfir einn kafla. Við tölum náttúrulega endalaust og erum með kennara sem að hefur tjáningarþörf á við fimmtán. Mitt í allri kennslunni lýsti Hjalti yfir stríði á móti mér og Eydísi þar sem við sátum í okkar mestu makindum eftir að hafa kastað álpappírskúlu í höfuðið á honum. Óli litil [haha fleiri litlir xD] var eitthvað með honum í liði en ég og Hjalti tókum því langalvarlegast með tilheyrandi koddaköstum eftir tímann. Ég og Eydís roomie fengum svo Óla litla til að skutla okkur niðrí Mjódd. Ég fór í einhvern gullfallegan kassa og tókst að rumpa af einni passamynd, í fjórum eintökum, sem að mun skellast á ökuskírteinið mitt! Fórum í Nettó og keyptum ýmsar nauðsynjar
Og núna er ég bara heima. Poppið er alveg að verða búið og kókið líka. Ég er að pæla í að skella mér í náttfötin, skrifa kannski nokkrar línur í ritgerðina í viðbót og vona svo ásamt Lilju að sambýlingar okkar skili sér heim fljótlega. Það er alltof hljótt hérna!!
http://www.travli.central.is
kataa
ég meika þetta án gríns ekki mikið lenguuur!! shet.. ég er fegin að þú ert ekki á akranesi.. allavega gott að vita af þér í bæjnum.. ég sakna þín ÞÓTT að ég hitti þig fyrir minna en 3 tímum!!
#1
19. september 2007 klukkan 22:36
Gaman að lesa þetta blogg.
Ég nefnilega oft hugsað hvernig það sé að vera í biblíuskóla með skemmtilegu fólki og núna er maður rólega að fá svona góða mynd af þessu
,Fyrsta' bloggið lofar allavega góðu!
Sleepover í fíló á föstudaginn!
Verða Biblíuskólanemarnir þar á meðal??

#2
19. september 2007 klukkan 22:52
hæ,hæ, gott að heyra að þú sért svona samviskusöm að læra..ekki að ég sé eitthvað hissa.
Popp og kók þetta er bara eins og heima ;) elska þig og viðsöknum þín mikið
mamma.
Popp og kók þetta er bara eins og heima ;) elska þig og viðsöknum þín mikið
mamma.
#3
20. september 2007 klukkan 10:44
flott blogg hjá þér =) sammála þóri... gaman að heyra svona hvernig þetta gengur allt fyrir sig...
leikræn tjáning... amma mín var að kenna þér ^^, (árný er það ekki?)
hehe... sé þig kannski í þessu sleepoveri á föstudaginn... veistu e-ð um þetta... ?
leikræn tjáning... amma mín var að kenna þér ^^, (árný er það ekki?)
hehe... sé þig kannski í þessu sleepoveri á föstudaginn... veistu e-ð um þetta... ?
#4
20. september 2007 klukkan 11:20
Ég vissi ekki af þessu sleepoveri en það má vel vera að ég verði þar.Yndislegt hvað maður er mikið inní þessu en er samt ekkert inní þessu. =]
TanjaRós = jújú það var hún amma þín ;]
#5
20. september 2007 klukkan 11:58
Lýdía
gott að vita að það er nó að gera hjá þér gangiþér vel með ritgerðina!!
#6
21. september 2007 klukkan 12:10
Gott að heyra að allt gengur vel!!! Ég er hérna niðrí Domus Vox að bíða eftir henni elsku Maríu okkar!!! hún er í söngtíma, var búin snemma í skólanum þannig að ég brummaðist inn í Hafnarfjörð og sótti hana og við fórum niðrí Domus Vox og ég fór í söngtíma og María beið (eftir að hún færi í tíma) og núna er hún í tíma og ég að bíða eftir henni.
#7
21. september 2007 klukkan 15:45