Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//Eitthundrađ

16. september 2007 klukkan 22:26
a

Blogg númer eitthundrað. Það tók mig eitt ár og þrjá mánuði en ég er komin hingað. Og á þessum merku tímamótum þá veit ég ekkert hvað ég á að segja. Ég er búin að vera í þannig félagsskap alla vikuna að tjáningarþörf mín snarminnkaði. Stundum finnst mér bara betra að sitja og hlusta. Sérstaklega þegar ég er með fólki sem að ég er bara að kynnast.

Á sunnudaginn flutti ég að heiman. Núna á ég herbergisfélaga, hún heitir Eydís og við erum orðnar voða góðar vinkonur.Guðrún Marta verður hjá okkur í herbergi í einhverja nokkra mánuði en síðan verðum við tvær í þessu nokkuð stóra herbergi á meðan strákarnir hírast fimm í herberginu við hliðina á. Það eru sem sé sjö nemendur í biblíuskólanum MCI skólaárið 2007 - 2008. Fimm strákar og tvær stelpur. Ég fæ þann heiður að vera litla barnið í skólanum þetta árið. ['85 - '90]. Á mánudaginn fórum við síðan uppí Kot og vorum þar alla vikuna.

Þessi vika var bara í einu orði sagt yndisleg. Guð var að vinna í okkur og ég trúi því að þetta sé bara rétt byrjunin á því sem að hann ætlar að gera í vetur. Ég hlakka rosalega mikið til að sjá hvað hann ætlar að gera í mér og mínu lífi. Ég býst ekkert við einhverjum gjörbreytingum en ég veit samt alveg að ég mun breytast eitthvað. Breytast í þá átt að ég líkist Jesú meira, því að það er það sem við eigum að gera.

Og já, ég veit ekkert hvernig bloggástandi ég verð í þennan veturinn.
Við sjáum bara til ;]

ţóRVelkominn ,heim' og til hamingju međ ţau merku tímamót ađ ná 100-ađasta blogginu!
Hlakka til ađ sjá ţig!;)
#1
16. september 2007 klukkan 23:12
I miss you!! :´(
#2
17. september 2007 klukkan 22:47
Tanja Rós Ívarsdóttirtilykke min kaere veninde =)
takk yndislega fyrir kommentiđ og skemmtu ţér rooosa vel í nćrveru Guđs ;)
have fun ^^,
#3
18. september 2007 klukkan 22:46
Þetta verður bara gaman hjá þér. Njóttu þess bara vera í biblíuskólanum á meðan þú getur.
#4
19. september 2007 klukkan 17:27

Skrifa athugasemd

Prófíll