Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//NíutíuogÁtta

08. september 2007 klukkan 17:11
Grettir

[ Sometimes I wish I did act like a boy ]

Heima er best. Langbest. Mér líður alltaf sjálkrafa alveg ótrúlega vel. Eitthvað öryggi sem felst í því að vera heima hjá sér. Núna er ég að sjá um litlu gríslingana systkinin þar sem að mamma&Hjalti eru í Reykjavík og eru að fara á tónleika í Fíladelfíu í kvöld. Þegar þau koma heim vona ég innilega að mamma hjálpi mér að pakka niður. Ég veit ekkert hvað ég er að fara að gera. Veit svona sirka hvað ég þarf og ætla að taka með mér en ég fæ mig ekki til að fara niður í herbergið mitt og pakka öllu dótinu mínu ofan í tösku. Ætla að njóta þess að vera heima í nokkra klukkutíma í viðbót áður en ég fer að pakka öllu niður.

Á morgun eftir hádegi flyt ég svo að heiman. Það telst bara víst með þó að ég komi aftur. Ég er að fara að flytja í Völvufellið þannig að ef þið eruð að leita að mér í vetur þá vitiði hvar mig er að finna. Skólasetningin er klukkan 10 á mánudaginn og eftir hádegi höldum við af stað uppí Kot. Verðum þar í viku og svo bara veit ég ekki meir. Fyndið að vita nokkurn veginn ekkert hvað maður er að fara að gera næstu níu mánuðina. Ég veit að ég er að fara í Biblíuskóla og that's it.

En núna er ég loksins búin í sumarvinnunni. Einni af þremur. Var ekkert smá glöð þegar ég labbaði út úr sjoppunni um hálf sex leytið í gær, vitandi það að ég þyrfti aldrei aftur að fara aftur þangað. Birna kom og sótti mig og síðan eftir kvöldmatinn rölti ég niður í Veg. Þetta var alveg yndisleg samkoma og ég fékk þessa fullvissu um að það sem ég er að fara að gera er það rétta. Svo var líka annað mál sem að ég held að hafi leysts alla, vega mín megin; ég þarf bara tíma. Eftir samkomuna fórum ég, Dabbi og Aron á Devito's þar sem að ég & Aron vorum svöng. Skutluðum síðan Aroni heim, sorrý ef að þú varst eitthvað fúll, og fórum til Þórs. Byrjuðum að horfa á Simpsons The Movie en svo þurftu allir að fara. Ég og Dabbi skutluðum Helgu heim og síðan hringdi Tanja í okkur og þurfti hjálp við að skipta um dekk. Við náðum að miðla einhverjum upplýsingum til hennar og þetta reddaðist á endanum. Síðan fór ég bara heim að sofa.

Keypti mér geðveika Converse skó áðan uppí Ozone. Keypti líka nýjan síma á miðvikudaginn, bleikan síma. Mamma&Hjalti gáfu mér fyrirfram afmælisgjöf sem að ég notaði til að kaupa símann. En núna er ég hætt að eyða peningi, þarf virkilega á honum að halda í vetur. Gangi mér vel.

 
María
ÉG KOMST INNÁ!!!

You have no idea how long I've waited to be able to do that!

Og bara gangi þér vel með allt.
Veit að ég á ekkert eftir að heyra mikið í þér á næstunni.
En láttu mig samt endilega vita ef þú meikar að hitta mig á morgun.
:)
#1
08. september 2007 klukkan 23:05
þóRKotið...?
Hvað ætlið þið að gera þar??
En þú sagðir að þú vissir það ekki þannig að þú seigir mér það bara seinna!

En flutt að heiman 16 4/5 ára er rosalegt! Ég er samt viss um að ef það er einhver ástæða til að flíta sér svona mikið þá er það þetta!

Biblíuskóli!(ég öfunda þig bara pínu)
Gangi þér geðveikt vel og við sjáumst bráðlega bara!

:)
#2
09. september 2007 klukkan 16:12

Skrifa athugasemd

Prófíll