//NíutíuogSjö
04. september 2007 klukkan 14:48

[ Sorry's not good enough ]
Ég er búin að finna verðandi eiginmann minn. Hann heitir Shia LaBeouf og ég þarf alltaf að athuga hvernig maður stafar eftirnafnið hans áður en ég skrifa það. Fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hver það er þá leikur hann aðalhlutverkið í bæði The Transformers og í Disturbia. Ég og Kata horfðum einmitt á Disturbia á laugardaginn && ég verð að játa að ég varð hálfsorgmædd í hvert skipti sem hann hvarf af skjánum. Ást við fyrstu sýn eða eitthvað svoleiðis kjaftæði held ég bara. Núna þarf ég bara að drífa mig til Bandaríkjanna, finna kallinn && tjá honum ást mína. Held reyndar að ég yrði send á geðsjúkrahús.
Helgin hjá mér && Kötu var best. Við tókum strætó upp á Akranes á föstudagskvöldið og vorum bara að taka því rólega þangað til að við fórum að sofa. Byrjuðum laugardaginn á því að horfa á fyrrnefnda fegurð í spennumyndinni Disturbia sem var bara nokkuð góð. Kata þurfti eitthvað að læra og síðan fórum við útí sjoppu að leigja myndir, keyptum líka tonn af nammi í Krónunni. Fórum aftur heim && fórum í myndaflipp [myndirnar koma bráðum inn] og ég get sagt ykkur það að við algjörlega misstum okkur. Fengum læri í kvöldmatinn && fórum síðan að horfa á myndirnar. Horfðum á The Grudge í gegnum hendurnar á okkur; ég hló reyndar í atriðinu sem að Kötu fannst lang ógeðslegast. Eftir Grudge horfðum við á verstu mynd í heimi; Popstar með Aaron Carter í aðalhlutverki. Myndin var hræðileg, geðveikt mikil klysja, báðar aðalpersónurnar fóru óendanlega í taugarnar á mér && ég hristi mig nokkrum sinnum vegna kjánahrolls. Á sunnudeginum fórum við á samkomu && svo keyrði ég okkur í Kringluna. Ég fékk nokkra boli && það var mjög gaman hjá mér, Kötu og Áslaugu inni í Hagkaupum; nánar tiltekið í snyrtivörudeildinni. Síðan skutlaði ég bara Kötu heim. Takk fyrir helgina ;*
Í dag && í gær er ég bara búin að vera að taka til í herberginu hjá mér. Ástæðan fyrir því að þetta tekur svona langan tíma er bæði sú að herbergið var hörmung ekkert skipulag eða neitt og líka vegna þess að maður fer alltaf að gera eitthvað allt annað þegar maður er að taka til. Dettur inn í eitthvað sem maður fann í öllu draslinu. Ég er búin að finna fullt af dóti. Fann til dæmis 11 þúsund krónur inn á bankareikningi í Glitni. Ég var löngu búin að gleyma því að það var stofnaður einhver reikningur fyrir Danmerkurferðina sem varð aldrei. Mér fannst það nokkuð töff. Síðan er ég líka búin að henda endalaust af einhverju drasli sem ég er búin að vera að geyma út af engum ástæðum. Herbergið mitt verður að vera í toppástandi í allan vetur þar sem að ég verð náttúrulega ekkert á staðnum til að sjá um það.
Tvöfaldur ökutími er svo planið í kvöld. Frá níu til ellefu. Veit ekki alveg hvernig það mun ganga að bakka í stæði í myrkri en það verður bara að ganga. Er að fara að keyra glænýjan Bens sem að ökuskólinn er að fara að fá á eftir. Ég tek einmitt prófið á þessum bíl sem að ég hef bara aldrei keyrt. Lærði á einhvern annan eldri sem að mér fannst bara ágætur, en hann var greinilega of gamall. Síðan á ég bara þrjá vinnudaga eftir && svo er helgin && svo byrja ég í skólanum á mánudaginn. Vá, hvað ég hlakka til.

Farin að leita að meiri pening í skúffunum mínum
Rakel
Gagni þér vel með peninginn vona að þú finnir eitthvað. Einnig má til gamans geta að ég er að fara í minn fyrsta ökutíma í dag vei :), þessi strákur lék líka í myndini holes, hún er eftir bókinni miljón holur sem ég las enmitt og er mjög góð, mæli með henni :)
#1
04. september 2007 klukkan 15:04
mer fannst i alvoru the grudge oged sleg, og dont you judge me..! en allavega.. hvad vard um garfield myndina efst?? =(
#2
04. september 2007 klukkan 23:52
#3
05. september 2007 klukkan 10:14
BARA VERIÐ AÐ STELA KALLINUM MÍNUM!!!! :@:P
hehe... hann er bara snilldar leikari... hann lék líka í Holes, fyrir þá sem muna eftir þeirri mynd... þegar ég fattaði að þetta væri hann vissi ég að ég yrði að sjá Transformers, og svo þegar ég heyrði að hann léki í Disturbia (btw þá vissi ég ekki einusinni um hvað myndin fjallaði) þá vissi ég að ég yrði að sjá hana!!! gaurinn er bara flottur... ég fer með þér til Bandaríkjanna og við finnum hann og tjáum honum ást okkar og svo velur hann mig og við lifum hamingju söm það sem eftir er, og þú mátt eiga eitt herbergi heima í höllinni okkar... (nei! ég er ekkert ruggluð, ég er bara skild þér!!!)
hehe... hlakka til að sjá þig í kvöld elsku dúllusnúllan mín!!!

#4
05. september 2007 klukkan 16:01
#5
07. september 2007 klukkan 13:52