Flott blogg btw=)//NíutíuogEitt

[Lag; First Time - Lifehouse]
Það er svo ekkert að gerast hjá mér þessa dagana. Er búin að vera að vinna í Grillkofanum síðustu fjóra daga && ótrúlegt en satt þá er ég farin að verða nokkuð góð í öllu þessu grillveseni. Ég! Manneskjan sem að liggur við að þurfi leiðibeiningar til að rista eitt stykki brauðsneið. Það gæti reyndar líka verið að ég sé ömurleg en það þori enginn að kvarta. Vinnan er mjög þægileg upp á það að stundum er bara nákvæmlega ekki neitt að gera en svo er kannski bara ágætlega mikið að gera í soldinn tíma && svo aftur ekki neitt. Í hádeginu er reyndar alltaf ágætt að gera en við erum alltaf tvö þá. Ég er sem sé að vinna með/á móti nítján ára strák && það er frekar fyndið þegar við erum bæði && það er ekkert að gera. Þá stöndum við hvor í sínum enda sjoppunnar && þegjum. Haha, veeeei.

Mér leiðist í vinnunni
En já Kata kemur heim á þriðjudaginn! Hlakka alveg óendanlega mikið til að fá hana heim. Hún byrjar samt örugglega bara strax að busast í Menntaskólanum sínum. Vá, það eru allir að fara í byrja í skólanum í næstu viku; nema ég. Ótrúlega gaman hjá mér að lónerast í sjoppunni á meðan allir eru í skólanum. Meh. Kata vildi reyndar fá blogg um sig en ég held að ég sleppi því bara && geri svona iTunes leikdæmi til að stytta ykkur [sem sé Kötu] stundir. Hef ekkert meira að segja í augnablikinu. Nema kannski það að ég labbaði heim úr vinnunni í dag. Alla leið frá Langholtsveginum && upp í Engihjalla. Duglega ég!
iTunes leikur
9. Twenty-Four oceans. Twenty-Four skies. Twenty-Four failures. And Twenty-four tries --- Oh, oh. I am the second man
10. A thousand times I've failed. Still your mercy remains --- My heart and my soul. I give you control.
Þið eigið sem sé að giska hvaða lög þetta eru && fyrir ykkur sem skiljið ekki þá er þetta;; Byrjun á lagi --- Byrjun á viðlagi. Sumt af þessu er ógeðslega auðvelt *hóst*átta*hóst* en annað er aðeins erfiðara ;] Skemmtið ykkur.
Hey takk fyrir seinast! Þú ert algert æði! :D
Sko þetta eru textabrot úr lögum && fyrst kemur byrjunin á laginu && svo byrjunin á viðlaginu ;] En já sko ég er að fara í Biblíuskólann && hann byrjar ekki fyrr en 10.september.
=)
og ég á afmæli á morgun!! vííí!!!!!!!!!! ég heimta afmælisblogg!!!
2-íslenskt lag
3- fle fle fle.. ég ´tla bara ða herma eftir þór og segja keane - bedshaped
4- veit ekki
5- neibb
6- ég man EKKI hvað lagið heitir en ég er að segja þér það að ég er að syngja það í hausnum mínum
7- vit ikke
8-Hallelujah-Jeff Buckley
9-24-Switchfoot
10-Inside Out-Hillsongs
flott blogg.. takk fyrir mig :D
Kataa!Ég sem ætlaði að treysta á þig að vita þetta allt saman.
Fleh, ég hlusta greinilega á of töff tónlist fyrir ykkur =D


2-???
3-Bedshaped-Keane
4-???
5-???
6-???(kannast samt geðveikt við það)
7-Avril Lavigne??
8-Hallelujah-Jeff Buckley
9-24-Switchfoot
10-Inside Out-Hillsongs