Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Níutíu

13. ágúst 2007 klukkan 21:43
a

[Lag; Take It All - Hillsong]

Í morgun þegar ég sat í strætisvagninum á leið minni til Reykjavíkur áttaði ég mig allt í einu á svolitlu. Ég er nánast flutt að heiman. Fannst það frekar undarlegt að hugsa um það þar sem að ég átti engan veginn von á því að vera komin svona langt á leið með að flytja að heiman áður en að ég yrði sautján. Var einhvern veginn aldrei búin að pæla neitt í þessu; ætlaði bara að búa heima þangað til að ég fengi nóg, giftast einhverjum ótrúlega ríkum kalli, kaupa hús && lifa svo happily ever after. Fín áætlun sem að myndi alveg ganga svo að lengi sem að kallinn væri bæði sætur && skemmtilegur í bland við auðæfin. Annars held ég að ég hafi bara gott af þessu. Verð bæði sjálfstæðari && andlega sterkari þegar ég þarf að hugsa um mig sjálfa.

Stundum vildi ég samt að ég byggi í bænum. Bara einhvers staðar á höfuðborgarsvæðinu væri fínt. Hef einhvern veginn ímyndað mér að lífið væri mun einfaldara ef að ég byggi nær öllum vinum mínum. Hlutirnir myndu einhvern veginn ganga betur upp. Ég er reyndar að fara að búa í bænum í allan vetur en það verður samt einhvern veginn svo spes. Æi, ég veit ekkert hvað ég vil && ætla bara að láta það sem gerist gerast. Alltaf best þannig.

En ég er komin með vinnu sem að mun stytta mér stundir þangað til að ég fer í MCI. Ég verð að vinna í Grillkofanum á Langholtsvegi && örugglega eitthvað upp í Norðlingaholti líka. Byrjaði í dag && þurfti að taka strætó klukkan 07:41 til þess að mæta í vinnuna klukkan 9. Byrjaði daginn á því að búa til heilan helling af langlokum && samlokum ég veit ekki hvernig lokum. Gerði svo endalaust af pylsum fyrir pylsuglaða Íslendinga. Það er líka svona grill þarna þar sem við búum til hamborgara && samlokur && franskar && fleira skemmtilegt. Ég þurfti að gjöra svo vel að læra á það þar sem að ég varð einnig að gjöra svo vel að vera ein í sjoppunni í ca tvo tíma vegna miskilnings. Á mínum fyrsta degi. Jahá, skúbbaði frá mér einu samlokutilboði, einum stökum hamborgara && einu beikonborgaratilboði. Og þetta var allt vel ætt. Eða það kvartaði alla vega enginn.

Er síðan að fara að vinna aftur á morgun klukkan níu. Herra strætó verður vinur minn í nokkra daga en síðan held ég að ég fari bara heim til Birnu && lúlli þar. Svona til að undirstrika það hvað ég er illilega flutt að heiman. Veriði svo voða dugleg að tala við mig þar sem að mig langar í vini! Ah, Katrín ég sakna þín sjúklega. =[ Hey! Kotmótsmyndirnar eru komnar á síðuna && myndirnar síðan á laugardaginn fara að detta inn.

Kommentið yndi
aww.. eg sakna thin lika dullan min =) heimsækji siduna thina svona 5 sinnum a dag, thad er asnalegt hvad eg er mikid inna henni,,

loveya
#1
13. ágúst 2007 klukkan 22:43
Helga ÞórarinsdóttirÞað er ekkert asnalegt; bara Desperate.

Eins && við komumst að á msn fyrir örfáum mínútum þá ertu A Desperate Housewive;
Without the house && the husband, making you a no wife.
Leaving you just desperate!

Ohh, vá komdu heim!
#2
13. ágúst 2007 klukkan 22:47
Komdu frekar fyrr heldur en seinna... þetta litla sem þú ert hérna heima er alveg að bjarga andlegu hliðini!! þótt ég hitti fólk í vinnunni er það mikið öðruvísi að hafa þig hérna heima!!! og ég er mjög sátt við að þú sért svona eiginlega flutt að heiman... sérstaklega af því þú býrð hjá mér!!:P og hey... eftir sunnudaginn get ég skuttlast með þig...;P
#3
13. ágúst 2007 klukkan 22:53
þóRFlottað blogg og nýjar myndir
Og flott hjá þér að meika daginn þrátt fyrir allan ruglinginn
Ég hefði feitast ekki getað rassgat;P
Gott að ég var ekki þú og þú ekki ég þegar ég/þú vann/st á þessum stað!

Sé þig
#4
14. ágúst 2007 klukkan 00:51
Hæ Yndi,

hver leyfði þér að flytja að heiman?? ekki ég komdu bara heim eins og skot....
hehehehehe. ég sakna þín, í vetur legg ég bara fjóra diska á borðið ekki fimm..skæl skæl.
Guð blessi það sem þú ætlar að gera í vetur elska þig í klessu
mamma
P.S. þú ert víst að fullorðnast bara aðeins of hratt fyrir minn smekk...
#5
14. ágúst 2007 klukkan 12:14
Hæ :D Hvað segirru? Takk fyrir seinast! :D
Flottar kotmótsmyndir! :D
#6
14. ágúst 2007 klukkan 19:56
Lilja BirgisdóttirMér lýst mjög vel á að þú sért að flytja inn til mín ;)
Erla mín, þetta verður allt í lagi, ég skal skila henni í betra ástandi en ég tók við henni, sérstaklega þar sem að Guð fær að vinna verkið í henni...hann mun samt ekkert klára það á þessum mánuðum en fær vonandi að gera heeeeelling :D

Sjáumst eigi síðar en 10.september
#7
14. ágúst 2007 klukkan 21:25

Skrifa athugasemd

Prófíll