//ÁttatíuogEitt
07. júlí 2007 klukkan 14:04

Mig langar til að blogga. Langar til að koma með eitthvað ofur blogg sem að gæti jafnvel leyst allan alheimsvanda. Kata er farin að bíða && sextán komment á eitt blogg segja mér að fólk kíkir alla vega á síðuna mína. Ég nenni ekki að koma með blogg um hvað ég er búin að vera að gera síðustu daga. Finnst það einhvern veginn svo óáhugavert að ég legg það ekki á aðra að lesa um það.
Í mjög grófum dráttum er ég samt bara búin að vera að vinna. Vinna allan daginn && gera eitthvað á kvöldin sem að veldur því að ég er algjörlega búin á því þegar ég fer að sofa. Veit ekki alveg hvað ég meika það mikið lengur að vera alltaf að gera eitthvað á kvöldin. Væri miklu frekar til í það að fara bara að tjilla með einhverjum eftir vinnu, þá hefði ég alla vega einhverja orku.
En í gær fór ég með Kötu í Fíló. Og eins og það er oft með samkomurnar þá var ég akkúrat á réttum stað á réttum tíma. Prédikunin talaði alveg rosalega mikið til mín. Ég er svo mikið búin að vera að velta hlutum fyrir mér && pæla í því hvort að eitthvað af því sem ég er búin að vera að gera skipti einhverju máli. Ég er reyndar alveg jafn ringluð eftir þessa samkomu þar sem að það voru engin svör, en ég veit alla vega núna að þetta er heilbrigt. Ég er ekki bara einhver rugludallur sem að veit ekki neitt. :]
Jaaaaá, ég byrjaði á þessu bloggi í gær [07.07.07] en svo fór ég í klukkutíma matarpásu && hitti Dabba&Andra&Hannes. Þannig að ég er bara að klára það núna. Húbbrí er reyndar í einhverju rugli þannig að ég er búin að henda öllu út sem ég þarf ekki. En hún neitar ennþá að opna iTunes-ið þannig að ég held að ég verði að uninstalla því && installa því svo aftur. Er það ekki bara málið?
Farin að reyna að laga tölvuna!
http://www.monalith.is
kataa
hæ helgur.. ég ætla að skrifa með íslenskum stöfum fyrir þig kjáni ;) við erum samt eiginlega að horfa á pursuit of happyness.. þannig að ég er bara farin.. ég var nú hvort eð er á staðnum alla vikuna öruglega.. þannig að ég er bara farin ;) bææææææj kjáni
#1
08. júlí 2007 klukkan 18:31
Hæj! Flott blogg hjá þér og takk fyrir afmælisóskina! Jább... bráðum fer maður að fá bílpróf.. þetta er allt að gerast hérna ^^,
#2
09. júlí 2007 klukkan 16:09
Klukk! Þú ert'ann =)
---> http://dajesusfreak.bloggar.is/
---> http://dajesusfreak.bloggar.is/
#3
11. júlí 2007 klukkan 22:49

