//Áttatíu
04. júlí 2007 klukkan 19:24

Ókei, vá. Ég er mesti klaufi veraldar! Á einum sólarhring er mér búið að takast að klaufast meira en ég hef annars gert í öllum síðasta mánuði. Núna var Þór einmitt að minna mig á eitt slíkt atvik sem gerðist í bíóinu á laugardaginn. Ég held að mitt hlutverk í vinahópnum sé búið að breytast í að vera þessi frábæra í að vera skemmtikrafturinn && klaufinn. Alla vega sagði Þór að þetta gæti verið fyndið && sniðugt, alla vega stundum. =]
En já á laugardaginn var ég bara í vinnunni && svo komu Kata&Andri að heimsækja mig og Kata ákvað bara að vera með mér þangað til að ég væri búin. Hún var voða dugleg að hjálpa mér að brjóta saman && passa búðina meðan ég þurfti að hlaupa inn á lager [ég var ein að vinna]. Dabbi&&Andri komu svo og sóttu okkur. Eftir að hafa borðað á Stjörnutorginu fórum við heim til Dabba að gera ekki neitt. Í þessu 'ekki neinu' gerðist ég voða sniðug && lagðist ofan á Kötu&&Andra og reyndi að koma mér voða vel fyrir, þeim til ama. Það tókst ekki þannig að ég varð að láta mér nægja að sitja við hliðina á þeim. Við ákváðum að fara í bíó á 28 weeks later og skutluðumst þess vegna útí Garðabæ að ná í Þór. Síðan fórum við að kaupa miðana í Regnboganum. Einum & hálfum tíma áður en að myndin átti að byrja! Borðuðum ís && störðum á vegg á meðan við biðum. Rétt áður en að myndin byrjaði var ég að passa Burnið hans Þórs && eins mikill klaufi og ég er þá missti ég það. Tvisvar. Myndin sjálf var nokkuð góð && ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei ævinni verið jafn hrædd og spennt í bíói. Var komin öll upp í sætið, með hettuna nánast fyrir andlitinu og muldrandi 'ég er hræddur'. Brá samt mest þegar að Dabbi gaf mér olnbogaskot; hann var að bjóða mér popp. ;]
Á sunnudaginn fór ég bara í vinnuna && svo bara heim til Kötu að láta okkur leiðast. Síðan fór ég heim á Akranes að sofa. Gerði nánast ekki neitt á mánudaginn en það var samt ógeðslega gott að vera bara heima í fríi. Í gær fór ég á afmæli til Ástu vinkonu mömmu á Kjalarnesi, pikkaði síðan Kötu upp í Mosfellsbænum, henti dótinu inn til Birnu í Kópavoginum && fór í Kringluna með Kötu. Eftir að hafa verið í einhvern tíma í Kringlunni && eftir að Kata var búin að kaupa sér hellingsdót þá ákváðum við að taka strætó heim til Andra. Hann var ekkert alltof glaður þegar við tjáðum honum það að við værum í strætó á leiðinni en hann komst yfir það. Dabbi kom && sótti okkur þrjú og við fórum í Garðabæinn að sækja Þór. Við fórum svo í Keilu með Elsu, Þórunni, Dagbjörtu ljóshærðu && Heiðrúnu vinkonu hennar. Ég hef komist að þeirri vísindalegu niðurstöðu að ég er ekki góð í keilu. Fékk reyndar eina fellu þegar ég, Kata&&Dabbi köstuðum öll kúlum í einu ;] Og af því að ég er yndislegur klaufi þá tókst mér að missa keilukúlu... á tána á Dabba! Snillingur.
Ohh, núna á ég eftir að setja inn fullt af myndum síðan á Spáni plús allar myndirnar sem voru teknar í gærkvöldi! Jæja ég hef þá alla vega eitthvað að gera á meðan ég er ekki í vinnunni eða að klaufast.

Séykkur
http://monalith.is
Dabbi
Ég þakka bara fyrir keilukúluna... en það er nú bara þannig að tærnar á mér eru ekki eins og keilur í laginu... eða ekki svo ég viti.
#1
04. júlí 2007 klukkan 19:28
VIð verðum bara að fara athuga það!
Kannski kemurðu sjálfum þér && mér á óvart && ert bara með keilulaga tær.
Það væri fín afsökun.

#3
05. júlí 2007 klukkan 00:10
Hahahahaha!!xD snilld!;D, flott blog eskan!:D.. alltaf gaman að lesa bloggin þín:)! love youcutepie;*****************
#4
05. júlí 2007 klukkan 15:26
Já er það ekki bara... á ég að vera eitthvað rannsóknar dýr sem verður svo bara drepinn.. ekki cool...
#5
05. júlí 2007 klukkan 18:31
Þú verður ekkert drepinn Dabbi!
Kannskí lítilháttar skaddaður eftir rannsóknirnar en ekkert dauður neitt.
=]

#6
05. júlí 2007 klukkan 19:10
Rakel
Sælar Húbbrí - en er það samt ekki bara stytting á Húbert ??
Glæsilegt blogg, magnað hverju þú lendir í :)
En ég verð nú að fara að sjá þig, hef ekki séð þig í meira en 2 mánuði held ég - það sökkar
Við verðum að laga það :D
-Rakel

#7
05. júlí 2007 klukkan 20:26
Hahaha
Ásamt því að vera fyndinn klaufi þá ertu líka fyndinn bloggari
þú gast meiraðsegija líka bundið rosalega hnúta sem aðeins Sahara gat leyst
Þú ert of hæfileikarík

#8
05. júlí 2007 klukkan 20:29
Þór það er satt.
Þú átt eftir að njóta allra þessa hæfileika í sumar þar sem að þú ert fimmti meðlimurinn í fjögurra manna hópnum okkar [Kötu, Dabba&Andra].
Rakel! Ég veit! En ég er sko í bænum núna && verð í allt sumar.
Pæling með Fíló annað kvöld?
Ég verð þar.

#9
05. júlí 2007 klukkan 20:38
heyj :O ég er bara algerlega búin að missa af þessu bloggi helga mín! :O búin að missa af öllu fjörinu og allt.. kannski útaf því að ég er búin að horfa á 24 one tree hill þætti síðustu 2 sólarhringa.. aaaalllavega.. ég sjé þig á mrg í fíló right ? gott mál ;) call meee!! :D hittast einhvað fyrr eða?.. when are you off wörk görlý!?
#10
06. júlí 2007 klukkan 01:06
Rakel
Kata ég get ekki addað þér á msn ég veit ekki af hverju ....nennir þú að adda mér :)
#11
06. júlí 2007 klukkan 15:19
Rakel
Vá Helga ég þurfti að taka mér andartak og stoppa yfir glæsilegu og tignarlegu myndunum úr keiluni vááááá, fæddur ljósmyndari
#12
06. júlí 2007 klukkan 15:22
Elsa tók myndirnar!
&& hún var með þetta á bandvitlausri stillingu
Ég tók þessar skýru ;]

#13
06. júlí 2007 klukkan 15:25
þær voru samt svaðalega töff sumar!!:D
#14
06. júlí 2007 klukkan 15:30
Haha reyndar.
Þess vegna sleppti ég því að 'ritskoða' [myndskoða?] þær ;D

#15
06. júlí 2007 klukkan 15:54