Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SjötíuogSjö

12. júní 2007 klukkan 00:46
kg

Loksins loksins gerist eitthvað í mínu lífi sem er bloggvert. Eða svona þannig séð. Það alla vega gerðist eitthvað annað en pulsur && skinka eða eitthvað álíka kjöt. Annars er ég að melta það svona inní mér hvað ég ætli að gera þegar ég kem frá Spáni, hvort að ég haldi áfram í pulsunum eða snúi mér að djobbi þar sem ég get átt mér smá líf. Ég velti þessu bara fyrir mér útá Spáni. Spyr kannski lamadýrin. Það verða að vera lamadýr í þessum dýragarði sem ég fer í.

En já, á laugardaginn fór ég með Kristínu && krökkunum uppá Akranes í afmæli til hennar Sunnevu Rutar [sem er einmitt eins árs í dag ;*]. Þar var fullt af fólki en mér fannst samt best að komast heim til mín vitandi það að ég gæti verið þar í tvo daga, ekki bara tvo tíma eins og síðast. Ég eyddi síðan laugardagskvöldinu í sjónvarpsgláp með fjölskyldunni && naut mín bara mjög vel með poppskálina á bumbunni. Horfðum á The Wedding Planner && ég vil bara taka það fram að hann Matthew McConaughey er miklu fallegri í henni heldur en í Sahara. [Mjög mikilvægar upplýsingar]

Á sunnudaginn vaknaði ég í MÍNU rúmi, mínu frábæra mjúka rúmi && skellti mér á samkomu. Rosalega fín samkoma && það mættu alveg óvenjumargir [sem að er mjög gott ;)]. Eftir samkomuna fór ég bara heim og var eiginlega bara að láta mér leiðast á MSN. Ákvað svo bara eftir að hafa talað við Dabba&Kötu&Andra á MSN að skella mér bara með strætó í bæinn && hitta þau. Þannig að klukkan 15:41 borgaði ég hundraðkall til að fara í Mosfellsbæ. Ég hitti Berglindi í strætó && var bara að spjalla við hana á leiðinni. Andri keyrði næstum yfir mig af gleði þegar hann sá mig en tók síðan eitthvað svaka gelgjukast && var endalaust mikið að pirrast útí mig og Kötu. Hann var alveg á því að skilja okkur eftir heima hjá Kötu && stinga svo bara af með Dabba eitthvað en okkur leist ekkert alltof vel á það. Á endanum fékkst hann til að skulta okkur heim til sín && þaðan löbbuðum ég, Kata && Dabbi heim til Dabba. Fórum reyndar bara beint í bílinn hans && skutluðumst í Garðabæinn að sækja Þór.

Eftir að Þór var búinn að joina 'partý-ið' fórum við aftur heim til Dabba && beint inn í herbergið hans að horfa á 28 Days Later. Ótrúlega gaman að horfa á mynd && tala bara endalaust, engin manneskja sem að sussar endalaust á mann af því að hún er ekki að ná myndinni. Húmorinn í okkur mér var orðinn frekar súr á tímabili && pældi Þór mjög mikið í því;; 'Af hverju hann færi nú ekki bara líka úr buxunum?' Sem sé aðalkallinn í myndinni sem var Cillian Murphy [en það breytir voða litlu]. Það voru líka miklar vangaveltur að hálfu Dabba um hesta- og kindazombies . ;] Þegar myndin var búin vorum við orðin frekar svöng && fórum þess vegna að ná í Andra og borðuðum hann && fórum síðan öll saman á Hamborgarabúllu Tómasar. Þaðan lá svo leiðin uppí Veg þar sem ætlunin var að ná í fólk til að fara í fótbolta. Okkur tókst síðan að draga Röggu&Benna með okkur upp í Garðabæ þar sem að við ætluðum sko að fara í fótbolta. Eeeen svo var svo mikið af fólki að allir hættu við nema Dabbi & Þór. Ragga&Benni skutluðu síðan mér & Kötu uppí Mosó && líklega Andra heim til sín eftir það. Alla vega tók ég bara strætó heim til mín og fór bara beint upp í rúm að sofa.

Í dag ætluðu síðan mamma&Hjalti að skutla mér alla leið á Hvolsvöll í vinnuna en síðan bilaði bíllinn á miðri leið þannig að ég varð að gjöra svo vel að húkka mér far frá Skeiðavegamótunum. Það var smá ævintýri. Síðan fór ég bara í vinnuna && hafði á tímabilinu svo lítið að gera að skórnir mínir eru allir útkrotaðir. Næst þegar mér leiðist í vinnunni ætla ég að fjarlæga alla penna fyrst svo að skórnir mínir endi ekki á einhverju listasafni sem listaverk.

Besta gullkorn EVER;

Kata; 'Helga, ekki borða símann þinn!'
---
Helga; 'En þetta er samlokusími'

Farin í sturtu && svo að sofa
Elskjú all
[&& Dabba meira en Andra xD]
 
þóR
the lamas know:D

En já, það var mikið að eitthvað markvert gerðist í lífinu
Ég held að það sé einfaldlega ekki heilbrigt að búa á stað sem heitir Hvölsvöllur, sérstaklega þegar allir vinir og fjölskylda eru ekki ,bara' annarstaðar
Heldur allt annarstaðar!!

fyndið að heyra um Andra á gegljuni, ég hef heyrt sögur um þetta en núna veit ég fyrir víst hver Andri er í rauninni!!
En myndin var skemmtileg, spurning að horfa á hana aftur til að vita um hvað hún snérist annað en að drepa Zombía
Pæling....

En til hamingju með systur þína:D

Þú ættir kannski að óska mér til hamingju fyrir heimsins lengsta komment
pæling....
#1
12. júní 2007 klukkan 12:37
Gott að þér líður vel með okkur , ekki á morgun heldur hinn...vona að vaxið hafi gengið vel æiæiæi. btw bíllinn er með hand ónýta vél...skelltu þér á hnén og biddu fyrir bílnum svo þú getir keyrt að æfingaleyfi loknu hehehehe elskjú mamma.
#2
12. júní 2007 klukkan 13:15
Ég pældi voða mikið í þessu Þór && já,

Til hamingju með heimsins lengsta komment.

[Það var samt heví skemmtilegt að fá svona langt komment;;]

Lengi lifi löng komment!
#3
13. júní 2007 klukkan 12:41
the LAMAS TOTALLY KNOW :O
#4
13. júní 2007 klukkan 22:57

Skrifa athugasemd

Prófíll