Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SjötíuogFimm

06. júní 2007 klukkan 20:05
I Don't Get It

Til hamingju ég. Í dag eru akkúrat ár síðan að ég byrjaði að blogga á Frílsa mínum && ákvað líkaminn minn að fagna því með því að verða bara veikur. Já ég vaknaði með mesta magaverk sem að sögur fara af. Hringdi í SS & tilkynnti mig veika og er svo bara búin að vera að horfa á Friends && slaka á. Jú & tölvast eitthvað smá, það er víst. Ég er nokkuð þreytt þar sem að ég er búin að vera að vinna heila tuttugu tíma á þessum tveimur dögum. Átta tímar á mánudaginn og tólf í gær. Þetta skilar sér vonandi allt í peningi um mánaðamótin.

Ég held samt að ég verði að spara einhverja peninga svo að ég eigi fyrir blessaða bílprófinu. Ohh ég hlakka ekkert smá til að geta farið að keyra sjálf && þurfa ekki að hafa þetta græna skilti alltaf aftan á. Vandamálið er samt að ég á engan bíl && er ekki að fara að kaupa mér einn í bráð þannig að ég mun ennþá þurfa að fá far. Vitiði hvað væri ótrúlega frábært? Ef að ákveðnar manneskjur *hóst*Aron&Þór*hóst* myndu bara vera komnir með bílpróf þegar að ég kæmi aftur frá Spáni. Þá væri ekki alltaf bara einn Dabbi driver sem að ræður því algjörlega hvenær allir fara heim. Dabbi gerirðu þér grein fyrir því hvað þú hefur mikið vald yfir okkur litlu börnunum? Ef að þú ert þreyttur þá verða bara allir að gjöra svo vel að fara heim. Vá, fáið ykkur bílpróf áður en að Dabbi fer að misnota þetta vald!

Fyrst á dagskrá hjá mér er samt að fara til Spánar, hætta að hugsa && kaupa mér helling af fötum. Svo eftir það er það bara hellingur af hittinum && bara skemmtilegheit. Það er alveg hægt að gera þetta sumar að besta sumri veraldar þrátt fyrir þetta. Það verður þá bara gaman hjá okkur vinunum er það ekki? Vinir eru frábærir! Ég elska alla vini mína til Plútó && aftur til baka [svona sirka sjö sinnum].

Finnst ég eiginlega þurfa að minnast á hana Kötu mína þar sem að hún er búin að semja ótrúlega flott lag sem að ég var að heyra áðan. Ég kom meira að segja með textann sem hún notaði í viðlaginu. Það var ofur. Síðan ætluðum við að semja stalker-lag yfir msn en það fór eitthvað út um þúfur þegar strákarnir fóru að segja að ég væri þunglynd. Þetta kallast fjörugt ímyndunarafl þakka ykkur fyrir!

haha! takk fyrir hrósið á laginu, lovley! just remember I will be here for you,, ;) Always
#1
06. júní 2007 klukkan 22:45
hahaha:D bara snilldar blogg ástarhnossið mitt!;D gera meira svona!:D er líka búin að næla mér í mega hvef!:D en hlakkar til kotsins jeij!:D allir að slæppast þar sammen!:D og já er að fara að byrja í fyrsta ökkutimanum minum á þriðjudag svo þetta er allt á leiðinni!;).. og jálangar að sjá þennan texta stúlkur!;DxD:F..love you pumkin juice!;* blogg more blogg more!:D:D..hehe:P bæbæ;**;*************
#2
07. júní 2007 klukkan 14:05
 
þóR
Ég skal reyna að vera búinn að redda mér bílprófi þegar þú kemur heim aftur!!
Svona til að gefa Dabba meira svigrúm:D

En flott blogg
Og ekki láta ,þetta' eyðileggja Allt Sumrið!

kv.þóR
#3
07. júní 2007 klukkan 15:23
bloggaði nýtt blogg Helga =O þú verður helst að fara ða blogga 2svar á dag nú þegar ég er farin að kíkja hérna.. oft á dag.. 8-)
#4
08. júní 2007 klukkan 16:54
Þú ert svo kröfuhörð Katrín!

Bloggið kemur þegar það kemur && svo kem ég líka þegar ég kem && þá verður sko gaman.
Þá verð ég brún && sæt og svona;D
#5
08. júní 2007 klukkan 22:12
ég,,? kröfuhörð ? HA =O!?
#6
08. júní 2007 klukkan 23:32

Skrifa athugasemd

Prófíll