Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SjötíuogTvö

29. maí 2007 klukkan 12:13
=/

Mánudagur, mánudagur, mánudagur. Mánudagar eru verstu dagar vikunnar. Þá á maður eftir að gera svo mikið && föstudagur er alltof langt í burtu. Scratch that. Ég var að fatta að það er þriðjudagur í dag. Þessi vika batnaði um helming á þessum tveimur sekúndum. Núna er ekki eins langt í föstudaginn & það var þegar það var mánudagur. Síðasta vika var mjög einsleit. Vakna, horfa á Friends, vinna, hitta Hörpu, sofa && svona gekk það nánast alla vikuna. Flestar vikur eru það reyndar en þessi var það sérstaklega mikið.

Á laugardaginn vaknaði ég klukkan korter yfir sex. Sandra & Radek komu klukkan hálf átta að sækja mig og ég fékk far með þeim í Reykjavíkina. Ég vakti Aron um níu með símtali && nokkrum mínútum síðar var ég komin til hans að kúra. Seinna um daginn gerðum við ýmislegt skemmtilegt eins & að hoppa á trampólíninu && svo lögðum við okkur. Hann hraut á mig eftir að hafa tilkynnt það hátíðlega að hann hryti ekki, en reddaði því svo með því að segja að hann hryti bara þegar honum liði vel.

Hittingurinn var planaður heima hjá Þór en svo kom í ljós að það var ekki hægt. Þá var ákveðið að hittast heima hjá Aroni. Fyrst fórum við á Devitos að borða && ég móðgaðist pínupons þegar Aron kallaði mig Kötu. Svo fórum við bara heim til Arons && horfðum á Children Of Men. Sumir misstu sig alveg í ljóskukommentunum && föttuðu það þegar myndin var meira en hálfnuð að konan væri ólétt. [En myndin fjallaði eiginlega um það] Eftir það var farið út á trampólínið && svo þegar við ætluðum aftur inn stoppaði ferðin í stigaganginum. Við sátum heillengi niður á gangi að gera ekki neitt en á endanum fórum ég, Aron & Dabbi upp && skildum alla eftir. Þau fóru víst eitthvað á rúntinn & rugl en við vorum bara að horfa á The Ladies Man. Síðan komu Andri, Þór & Kata aftur og þegar Andri var farinn þá fórum við hin að spila Veiðimann & tuttuguogeinn && svo kenndu þau mér póker. Um eittleytið þurftum ég & Kata að fara heim til hennar að sofa.

Ég vaknaði snemma á sunnudeginum líka til að fara á Akranes. Ég var heima hjá mér í nokkra klukkutíma & síðan fór ég með fjölskyldunni í sumarbústaðinn þar sem amma Conný varð 60 ára í gær. Þar var ég bara að tjilla && afi gerði endalaust grín að mér af því að ég sagðist vera að verða sautján. Í gær fór ég með afa & ömmu á Selfoss && Harpa yndi náði að redda mér fari með foreldrum sínum á Hvolsvöll. Þannig að engin rúta. Jibbý.

Ókei núna er ég alveg til í að Harpa birtist á tröppunum svo að ég geti hætt að horfa á tíundu seríu af Friends, farið með Hörpu út í apótek && gert síðan eitthvað skemmtilegt áður en ég mæti í vinnuna klukkan þrjú. Harpa komdu núna!

Er gert eitthvað skemmtilegt i Apotekinu á Hvolfsvelli??

Anyways, þetta var ágætis helgi, þú kemur væntanlega næstu helgi líka?!?
Kemstu kannski ekki fyrr en á laugardaginn??
Eða kemstu á Föstudaginn??

Iss þetta var greinilega ekki nógu gott blogg þarsem þetta komment mitt er eintómar spurningar!!!
Gera betur næst!!!

Neinei, fínasta blogg
Bleller
#1
29. maí 2007 klukkan 20:54
 
Rakel
Comment dauðans !
#2
29. maí 2007 klukkan 22:58
Þór minn? Apótekið á HVOLSvelli virkar alveg eins && apótek annars staðar.

Og nei ég kem ekki næstu helgi [fyrsta skiptið í ég veit ekki hvað margar vikur!] veit ekkert hvenær ég get komið næst að hitta ykkur fólk =/
#3
30. maí 2007 klukkan 00:09
Koddu í bæjinn eins fljótt og þú getur sæta ;) ég vill endilega sofa hjá þér aftur.. eða þú verður samt eiginlega að sofa hjá mér.. eða einhvað ;) allavega.. hvernær er svo málið að fara á Skagann í tjandi :D?
#4
30. maí 2007 klukkan 01:37
Vá! Ég elska Friends =) Yndislegustu þættir í heimi =D
Flott blogg hjá þér =)
Kemuru ekki mem í Heiðmörk á föstudaginn?
See you l8er =D
#5
30. maí 2007 klukkan 13:52
Nei því miður. =[

Er að vinna til 11 á föstudagskvöldum líka && kemst ekkert í bæinn þessa helgi.

Fúlt. Þið saknið mín bara ;]
#6
01. júní 2007 klukkan 00:24

Skrifa athugasemd

Prófíll