Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SjötíuogEitt

24. maí 2007 klukkan 23:26
Svampur Sveinsson

Ái. Ái ái ái ái. Ég er svo skelfilega rétthent að ég finn til. Ég er búin að vera að vinna síðan á mánudaginn && ég er komin með harðsperrur í upphandlegginn plús vöðvabólgu í axlirnar, bæði hægra megin. Allt út af því að ég þarf að gera allt með hægri hendinni. Af hverju get ég ekki verið jafnhent? Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég er í skóla & í bóklegu námi; ég myndi aldrei nenna að vera að vinna einhverja erfiðisvinnu allt árið um kring. Ég læt aðra um það && pulsast bara á sumrin. En þetta er alltílagi þar sem ég er búin að panta nudd hjá Aroni mínum þegar ég kem í bæinn á laugardaginn. ;*

Þ
að er búið að vera nóg að gera í vinnunni en samt ekki of mikið. Búin að vera að vinna frá tólf til átta þessa vikuna && byrja svo á alvöru massakvöldvöktum á þriðjudaginn. Ég á örugglega eftir að draga Hörpu með mér í sund eitthvað í næstu viku. Þá verð ég orðin eitthvað brún áður en ég skelli mér til Spánar í sólina. Tania sagðist svo ætla að draga mig með sér í ræktina. Það verður skemmtileg sjón. Ég, Helga Þórarinsdóttir, í líkamsrækt? Hah!

Einhvern tímann er ég svo að fara að horfa á Star Wars með Aroni. Allar sex. Honum fannst víst eitthvað kjánalegt að ég hefði aldrei horft á þær. Svo þarf ég að horfa á Superman myndirnar með mömmu && það voru víst einhverjar fleiri myndir sem að ég á að horfa á með hinu & þessu fólki. Svo verður líklega einhverskonar hittingur á laugardaginn en það er ekki alveg búið að klára planleggeríið.

Hellú... flott blogg =)
Hefuru aldrei séð Superman eða Starwars?? Wow... ég elska þessar myndir =D
#1
25. maí 2007 klukkan 10:58
Supermann, gömlu eru Crap, ekkert skemmtilegar eða kúl, ég hef ekki séð nýju þannig ég veit ekkert með hana

En þótt að Mamma mín er á öðru máli, þá er StarWars skyldusjón!!
#2
25. maí 2007 klukkan 15:25
 
kataa
Sneeelld að hitta þiig á lördag og byrjum sunnudagsins, því við sváfum saman haha!! :D
#3
27. maí 2007 klukkan 20:41

Skrifa athugasemd

Prófíll