Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Sjötíu

21. maí 2007 klukkan 00:17
X

Jæja, núna er ég bara búin með eitt heilt ár í fjölbraut && er komin í sumarfrí. Ég er samt nokkuð viss um að þetta geti ekki talist sem mikið sumarfrí þar sem að strax á morgun er ég að fara að vinna eins && brjálæðingur. Þetta getur ekki talist eðlilegt && hvað þá heilbrigt! Maður er í skóla níu mánuði á ári og svo loksins þegar maður losnar undan allri stærðfræðinni & öllu ruglinu sem maður þarf að rembast við að skilja þá fær maður sér vinnu og vinnur eins og maður sé nýsloppinn út af einhverri stofnun. Og til hvers? Nú, til þess að geta átt fyrir öllum skólabókunum & skólafötunum & allskonar afþreyingu sem að kemur í veg fyrir að maður missi vitið yfir veturinn. En það eru bara 24 dagar í það að ég stingi af til Spánar && það verður sko alvöru sumarfrí.

En já, á einhvern undraverðan hátt þá náði ég að nota hausinn á mér rétt && ná öllum sjö prófunum sem ég tók. Ég stóð mig nú bara nokkuð vel í þeim og fékk tvær áttur & fimm níur. Íþróttirnar eiga samt allt mitt stolt þar sem að mér tókst að ná mér í níu í íþróttum 202 takkfyrirtakk! Og eins og þið vitið kannski þá er ég alls enginn íþróttaálfur. Það er bæting síðan í 102 en þá fékk ég átta. Og ég kann ekki einu sinni að sippa. [bannað að stríða mér já] Málið er bara að þegar stelpurnar voru úti að sippa & í snúsnú þá var ég úti í fótbolta & að prakkarast með öllum hinum strákunum.

Um helgina fór ég í bæinn, öllum til mikillar undrunar [not]. Á fimmtudaginn keyrði ég alla leið frá Akranesi og útí Hafnarfjörð í afmæli. Síðan skutlaði mamma mér til Birnu && við gerðum ýmislegt skemmtilegt á fimmtudagskvöldið && föstudagsmorgun. Fór svo til Arons þegar hann var búinn að hringja nokkrum sinnum í mig hálfvælandi: 'Hvar ertu?' og var þar þangað til að við fórum á samkomu í Veginum. Eftir samkomuna fórum við svo eitthvað að rúnta & ég er eiginlega ekki viss um hvað við vorum að gera. Dabbi var í einhverju voða stuði && var allur í því að skilja fólk eftir. Hann skildi Aron eftir hjá Holtagörðum eftir að Aron stökk út úr bílnum á rauðu ljósi [Benni & Ragga pikkuðu hann svo upp] og svo seinna um kvöldið/nóttina skildi hann Köru & Þór aðeins eftir uppí Heiðmörk á meðan við tókum smárúnt með Aron hálfsofandi í aftursætinu. Við fórum svo voða 'snemma' heim á okkar mælikvarða eða um þrjú.

Í gær eða á laugardaginn fór ég svo til Arons && við gerðum nákvæmlega ekki neitt allan daginn! Það var voða kósí && það er algjörlega nauðsynlegt að taka sér einn heilan dag í að gera ekki neitt með manneskju sem er gott að halda utan um. :]

En ég var víst búin að ákveða að snúa sólarhringnum ekki algjörlega við í sumar. Kannski óþarfi að láta þetta enda eins og síðasta sumar endaði. Að fara að sofa klukkan fjögur um nótt, vakna klukkan tvö & fara í vinnu klukkan þrjú er ekki alveg að fara að ganga. Ætla núna að setja nokkrar myndir inná þessa síðu && tala svo aðeins meira við Maríu í símann && fara svo að sofa. Ég kem með eitthvað skemmtilegt blogg einn daginn ;]

♥ Mánuður
aaaa! awsome.. I really really missed you on saturday :D en jáá.. svona er lífið.. hvar ertu annars að vinna ? ég gleymdi algerlega að spyrja af því ;) en ójæja.. geggjað blogg.. kemuru í bæjinn næstu helgi ? ef svo er panta ég að hitta þig :O fittar það inní skedjúlið þitt ?

-katrin ósk ;)
#1
21. maí 2007 klukkan 11:43
Já ég veit ég beilaði =/
En já ég býst klárlega við því að koma í bæinn næstu helgi && þá get ég örugglega hitt þig.
Held að málið sé bara að hafa einhvern hiting á laugardagskvöldið ;]

Þú átt alveg að geta fittað inní skedjúlið mitt =D
#2
21. maí 2007 klukkan 20:55
Að fara að sofa kl 04 og vakna kl 14 virkar alveg!!
Virkaði það ekki nokkurnveginn síðasta sumar??:P

En Þú misstir ekki af neinu þegar þú fórst á hvolfsvöll, Þessi hittingur sem var, var ekkert mega-fun
Mun meir af þessu sem gerir fólk ruglaðra en það er!!
Fullt af því

En Hittingur næsta laugardag væri ,Very Nice'
#3
21. maí 2007 klukkan 22:19
HEY GIRL! Til hamingju með að vera komin í sumarfrí!!! =D Og til hamingju með brjálaðar einkunnir =D
Alveg sammála þér... strita allan vetur við að komast í gegnum tugi bóka og síðan vinna eins og brjálaðingur bara til að eiga efni á þeim! Seeyou soon =*
#4
21. maí 2007 klukkan 22:41
Til hamingju með þessar einkunnir ! Ég myndi örugglega bara ,, gráta úr gleði ef að ég hefði fengið svona góðar einkunnir , en það er reyndar bara ég :)

&& ég ætla að koma með gott gisk um að <3mánuður sé þvi að þú og Aron eruð búin að vera saman í mánuð?
&& því kem ég með annað gisk og óska þér til hamingju með mánuðinn ! :* :)
#5
22. maí 2007 klukkan 12:41
ég sakna þín ssvvoooooonnnnaaa mmmiiiikkkiiiðððð!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! elskjú mamma
#6
22. maí 2007 klukkan 16:19
 
Rakel
Það er farið illa með mann Helga * þjáning * ó við þjáumst :) (með broskalli, það er afrek)
#7
24. maí 2007 klukkan 21:40

Skrifa athugasemd

Prófíll