Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SextíuogNíu

15. maí 2007 klukkan 15:48
Stop That

Sæll veri alheimurinn eða alla vega sá hluti af honum sem að staulast einstöku sinnum inná þessa síðu & les kannski nokkur orð. Ég ætti eiginlega að vera að læra fyrir íslenskuprófið sem ég fer í klukkan níu í fyrramálið en þar sem að þessi bloggfærsla er skrifuð á okkar ástkæra móðurmáli þá gæti þetta vel flokkast sem undirbúningsæfing fyrir væntanlegar ritgerðarspurningar í prófinu á morgun. Loksins, loksins tek ég síðasta prófið mitt! Ég er búin að vera að taka sex próf á síðustu tveimur vikum. Get ekki beðið eftir því að vera búin með fyrsta árið mitt && þurfa ekki að hugsa um lógaritma, kúgildi & hver drap hvern í Laxdælu. Planið er að gera þetta að besta sumri veraldar. Verð að öllum líkindum flakkandi á milli höfuðborgarsvæðisins & Hvolsvallar í allt sumar. :]

Ég var einmitt á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Keyrði sjálfa mig til tannlæknis á föstudaginn og var búin um hádegið. Rölti aðeins niður laugarveginn með Hjalta & litlu systkinum mínum tveimur þar sem að einhver blindfullur kall [klukkan tólf á hádegi takkfyrirjá] byrjaði að tala við Edgar. Ég reyndi náttúrulega eins og ég gat að forða litla bróður mínum frá kallinum en í sannleika sagt þá var ég hræddust við hann af okkur. Síðan var mér skutlað í Grafarvoginn til Arons. Var þar þangað til að Aron fór á æfingu uppí Vegi en þá fór ég til hennar Birnu frænku minnar. Við skelltum okkur svo á samkomu í Fíladelfíu en ég hafði nefnilega ekki farið í nokkrar vikur þangað. Eftir samkomuna var nákvæmlega ekki neitt að gerast þannig að Þór hringdi í Andra & hann kom ásamt Hannesi að sækja okkur. Keyrðum heim til Andra & löbbuðum síðan til Dabba en þar var verið að halda uppá afmælið þeirra Röggu & Andra & Hannesar [alla vega smá]. Um leið og ég kom inn var mér bent inní herbergi með þeim orðum: 'Aron er þarna.' & af því að ég er svo hlýðin ung stúlka þá fór ég bara til Arons ;]

Í afmælinu var mikið stuð & voru þar tveir hnakkz sem að settu mestan svip á afmælið, blindfull. Eftir að hafa verið lengi inni að gera eiginlega ekki neitt þá var öllum hent út í göngutúr. Löggan kom víst & tók hnakkana en einhvern veginn missti ég algjörlega af því. Ætlunin var að labba útí FB en þar sem að helmingurinn af fólkinu sá löggubíl á hverju horni snérum við bara við. En á leiðinni aftur heim til Dabba sáu þau einn löggubíl í viðbót og urðu þess vegna að taka korterskrók fram hjá honum. Við hin sem vorum hvorki of ung til að vera úti eftir miðnætti né búin að vera að drekka eitthvað annað en gos héldum bara áfram & skemmtum okkur mjög mikið þegar við sáum að 'löggubíllinn' var bara sendibíll. Stuttu eftir að allir voru komnir aftur heim til Dabba yfirgáfu næstum því allir afmælið en þá byrjaði alvöru partýið sko. Málið var að Andri var búinn að drekka soldið mikið & Hannes það mikið að hann lá inná klósetti. Ég, Aron, Dabbi & Þór vorum öll edrú && strákarnir skemmtu sér stórkostlega við að misnota Andra greyið aðeins. Þetta var samt allt löglegt & innan siðferðismarka. Ég var reyndar mjög þakklát Aroni þegar hann greip fyrir augun á mér af því að annars hefði ég séð ýmislegt sem að enginn vill sjá takkfyrirnei. Dabbi lenti svo í því að skutla öllum heim og hann átti það hlutverk um helgina.

Á laugardaginn vaknaði ég klukkan eitt & var komin til Arons um þrjú. Þá fór strax í gang risaplanleggerí á MSN sem að Aron vildi ekki taka þátt í. Þannig að á meðan Aron lá uppí rúmi planaði ég svaka hitting heima hjá Kötu [eða planaði hann með Kötu & strákunum]. Dabbi, Andri & Þór komu svo og sóttu mig & Aron um sjö leitið og við fórum í Mosfellsbæinn til Kötu. Eftir endalaust skutl til & frá KFC/Subway fóru allir voða saddir & sælir að horfa á 'Let's Go To Prison' sem var snilldarmynd. Eftir myndina fórum við aðeins á trampólín, svo aftur inn & á endanum rak Kata okkur út á róló. Ekkert mikið hægt að segja um það en myndirnar eru alla vega komnar inná www.cluelezz.central.is. Við fórum svo aftur inn þegar að Aron tók fótboltann sem við vorum með & sparkaði honum burt en það þýddi sem sé að hann vildi fara inn. Þroskinn alveg að fara með mann ha? [Æi þú ert yndislegur ;*] Síðan fórum við inn í Buzz en ekki spurningaleikinn. Nei þetta var einhver apaíþróttaskemmtileikur eða eitthvað álíka. Ég & Aron vorum saman í liði og komumst fljótlega að þeirri niðurstöðu að karlmaðurinn á bara að vera með fjarstýringuna. Ég klúðraði öllu =] Svo varð Dabbi sybbinn og þá þurftu allir að fara. En þetta var besti hittingur ever!

Ég vaknaði líka klukkan eitt á sunnudaginn & fór með Stínu, Jens & Birnu í afmæli til hans Birgis Snæs frænda míns sem er tveggja ára brjálæðingur. Eftir afmælið röltum við aðeins niður Laugarveginn && fórum svo bara heim að borða. Klukkan átta fór ég svo með strákunum [Aroni, Dabba & Andra] í bíó á myndina The Condemned. Það var alveg ágætismynd && það dóu allir nema tveir. Mikill boðskapur í þessari mynd og ég man það næst þegar ég bý til sjúkan sjónvarpsþátt til að sýna á netinu að hafa fangana á næstu eyju við hliðina á. ;] Eftir myndina var brunað upp í Mosó á tuttugu mínútum svo að ég næði nú strætónum upp í sveit.

Vá, þegar maður á líf þá verður maður eiginlega að blogga aftur. Ég ætlaði alls ekki að drepa ykkur með lengsta bloggi í heimigeimi. Það voru líka ótrúlega mörg nöfn eitthvað þarna. Eða kannski bara þau sömu alltaf aftur og aftur. Það er alltaf gaman að eignast nýja vini, ótrúlegt samt hvað ég kynnist bara strákum.

Takk fyrir helgina fólk!

=]
haha! fokking best í heimi hittingurinn.. og awsome icon efst, sem ég var kannski búin að segja við þig!! en það er fokking aftur hittingur næstu helgi ;)!! og btw , ég nennti í alvöörunni að lesa allt bloggið
#1
15. maí 2007 klukkan 17:02
Hahaha
Iconið uppi er snilld
En Kata róleg á fokking f-orðinu. Það þarf ekki alveg að nota það svona fokking mikið;D

En ég er feitann til í hitting aftur!!
Name the time and the place!!;)
#2
15. maí 2007 klukkan 19:20
yeha fokking count me in ! ;D

neee djóóókur :D langaði bara að vera með í umræðunni ;] ehh... ekki töff?

Eníháw! ... glæsilegt blog hjá þér. Það er alveg ótrúlegt hvað þú nennir að sinna þessu boggi vel, fínpússa stafina og litina og allt jesúsh hvað ég myndi aldrei nenna því ;D þúrt dugleg ;]

sjást frílsi ;D ;*
#3
15. maí 2007 klukkan 19:58
Loksins kom færsla ! Ég er búin að vera að bíða síðan 8 maí [minnir mig?] eftir nýrri færslu ,, en átta mig síðan á þvi að það er ekkert það langt síðan að sá dagur var, en þar sem að ég er of oft í tölvunni og býst við því að allir öpdeiti á klst fresti þá bjóst ég náttúrulega við fullt af færslum :D

eeen nöfn eru skemmtileg - þó ég þekki nú ekki neitt af þessu fólki :)

sjást ! :* - && ég þarf að sýna þér Apa :D
#4
15. maí 2007 klukkan 22:26
&& já - þið eruð sæt saman :)
#5
15. maí 2007 klukkan 22:27
Hæhæ Helga mín fagra bananahíði!;D.. Flott blogg hjá þér!:D..Las bara laugardag og föstudag:F..En þúst!::D..hehe;P..En já elska iconin!xD SNILLD stop that..>.<,. hahaha!xD.. En já langar í hitting aftur!:D..Fullt frí í sumar já!:D?
LOVE YOU BIG KLUKKS!:D;**(K)(L)(L)..Bæbæ:*
#6
15. maí 2007 klukkan 22:57
flott blogg hjá þér sæta.. þó svo að ég hafi hugsað um að hætta að lesa það þegar ég var búin með helminginn áhvað ég samt að halda áfram að blogga...
en já þið eruð klikkað sæt saman:*
#7
16. maí 2007 klukkan 12:27
Heyj þór :O ekkert fokking diss á fokking fokk orðinu :O,, ekkert fokking væl sko =).. en "Name the time and the place!!;)" afhverju Name ?,, það er eins og þú ætlir að leyja þér hóru.. hahahaha! =)
#8
16. maí 2007 klukkan 14:58
Haha Kata!?

Þetta er svona nefndu stað && stund. Hann er ekki að biðja um nafnið á neinum ;D
#9
16. maí 2007 klukkan 15:21
Hahahahaha
Nefndu stað og tíma og ég verð þar
Er þetta betra??

Og auðvitað Dissar maður fokking f-orðið
Að seigja það er stundum ósjálfrátt, þegar maður rekur sig í eða eitthvað
En það er sniðugt að reyna að nota það í hófi

í Hófi=Reyna að sleppa því
#10
16. maí 2007 klukkan 20:39
Sniðugt!
#11
17. maí 2007 klukkan 19:10
haha,, ég vissi þetta með staðinn og það sko.. :P,, og líka þetta comment um fokk orðið, það var eingin alvara í því ;),, hef ekkert á móti þér Þór ;),, en ég segji þetta orð pínu óvart alltaf ;) sorry man ;) :P
#12
17. maí 2007 klukkan 22:28
Hahaha, Ekkert mál
Ég hef heldur ekkert á móti þér:D
Þú ert bara ágæt, miðað við það sem ég hef séð:P
#13
18. maí 2007 klukkan 00:20

Skrifa athugasemd

Prófíll