Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SextíuogSjö

02. maí 2007 klukkan 10:10
Læra

Síðasti skóladagurinn er í dag. Ég á eftir að fara í tvo tíma plús eina stutta umsjón og þá er ég tæknilega séð búin með heilt ár í fjölbraut. Á bara eftir að taka sjö próf og þá er þetta komið. Ég er ekki að ná því að það sé ár síðan ég tók samræmdu prófin. Mér finnst eins og sumarið hafi verið í fyrradag. Ég fæ hausverk á því að hugsa um það hvað tíminn líður hratt. Veit einhver um stopptakkann?

Ég er búin að vera alveg einstaklega upptekin síðustu daga. Lífið alveg að fara með mann hérna. Endalaust mikið að gera í skólanum & endalaust mikið að gera ekkiískólanum líka. Kennararnir fengu náttúrulega kast tveimur vikum fyrir próf og skelltu endalausum verkefnum & hlutaprófum á mig. Það er eins og allir kennararnir fatti alltíeinu að þeir eigi eftir að kenna helminginn af námsefninu og reyna að troða því uppá okkur á tveimur síðustu vikunum. Svo þarf maður að sjálfsögðu að sinna gæludýrinu kærastanum eitthvað smá.

Frábærlegheitin í mér náðu hámarki á föstudaginn þegar ég sleppti dimmisjóninu til að taka strætó til Arons. Ég & afi villtumst samt aðeins á leiðinni úr Ártúninu heim til Arons þar sem að hann á heima á fáránlega einföldum stað. Þetta var of einfalt fyrir mig. Ég var hjá honum til sjö en þá þurfti hann að fara að æfa sig á gítarinn uppí Vegi. Hildur sótti mig & við fórum á KFC & keyptum liggur við allan kjúklinginn á staðnum. Við vorum svo komin heim í sveitina um miðnætti. Laugardagurinn fór í trampólínhopp. Pabbi og Hildur ákváðu að bjóða mér & Áslaugu út að borða og í bíó um kvöldið þannig að við fórum á Selfoss. Borðuðum pizzu & fórum svo á Mr. Bean. Það voru nákvæmlega sex manneskjur í bíó. Skemmtilegt nokk. Sunnudagurinn fór í aðeins meira trampólínhopp auk þess sem að Hjörtur Freyr frændaskinn kom í heimsókn. Ég fékk að sýna honum meistarlega hæfileika mína sem bílstjóri && ég get fullvissað ykkur öll um að hann hlaut engan varanlegan skaða af því.

Í gær gerðist ég svo frábær kærasta aftur & var komin til Arons klukkan hálf tíu. [Mamma var að fara á Jesúkonufund] Var svo bara með Aroni aaaaaallan daginn að gera eiginlega ekki neitt. Bara gaman saman & svona. Fórum svo ein í bíó þar sem að allt fólkið var að fara að hittast eitthvað [Cluelezz/Monalith-dæmi]. Fórum á Blades of Glory sem er bara snilldarmynd. Napoleon Dynamite <3 Fengum okkur svo pizzu & tókum strætó aftur heim til Arons. Horfðum á nokkra Friendsþætti && svo kom mamma klukkan ellefu og sótti mig. Aron átti mjög erfitt með að skila mér og á tímabili hélt ég að ég þyrfti að skera hann af mér.

Ég er náttúrulega snillingur og tókst að gleyma gleraugun mínum heima hjá Aroni. Fæ þau samt vonandi aftur áður en ég fer í eðlisfræðiprófið í fyrramálið. Algjör óþarfi að vera hálfblindur í svona prófi. Svo er enskupróf á föstudaginn && eftir það tek ég strætó í bæinn til að fara að vinna í Bísón. Ég er líka að fara að vinna á laugardaginn og svo fer ég heim að læra undir stærðfræðiprófið sem er á mánudaginn. Allt að ske sko. :]

Ji! Hvað er ég búin að skrifa Aron oft?
Ég er að verða verri en hann sjálfur.
Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron Aron
#1
02. maí 2007 klukkan 10:20
þú fílar það
#2
02. maí 2007 klukkan 10:25
nafnið mitt er ekki neins staðar í textanum ='(
María María María María María María María María María María....
;*
#3
02. maí 2007 klukkan 11:47
Ekki mitt heldur....og mér er eiginlega nokk sama sko
#4
02. maí 2007 klukkan 13:39
Í sambandi við tímann sem líður hratt þá er ég alveg 100% sammála af þér!!
Ótrúlegt hvað það er stutt síðan sumarið var og samræmdu voru og þannig, Tíminn líður einsog ég veit ekki hvað
En í sambandi við gærdaginn, ég vissi um einhver plön um að fara í bíó en ekki meir
Ég var að læra og fór svo í þetta grill dæmi hjá dabba svo tæknilega séð var ég ekki að beila:P
En gott mál að það hafi verið gaman!!
Þú veist að það er samkoma á föstudaginn í Fíló.....og líka veginum!!:P
#5
02. maí 2007 klukkan 14:42
*Helga þú ert alger snillingur:P
En aww... sætu:*
Sé þig bara sæta;)
#6
02. maí 2007 klukkan 16:45

Skrifa athugasemd

Prófíll