//SextíuogFjögur
13. apríl 2007 klukkan 19:01
Halló halló halló! Erum við að tala um frábæra þriggja daga skólaviku. Svona ætti skólavikan bara að vera alltaf. Þá væri maður ekki alltaf svona óendanlega þreyttur. Ég held reyndar að ég eigi eftir að læra eitthvað pínupons til að geta verið í góðum gír alla helgina. Ég er nefnilega að fara til Akureyrar á morgun. Klukkan ellefu að staðartíma. Ég && Sara ætlum að vera rútufélagar. Ég elska rútufélaga. Rútuferðir eru hundleiðinlegar þegar maður hefur engan til að tala við. Treystið mér, ég veit það.
En já við erum sem sé að fara til Akureyrar til að rústa Söngkeppni framhaldsskólanna. Alla vega þeirri hlið sem snýr að stuðningsliðinu. Ef að við verðum ekki með besta stuðningsliðið í sögu kepninnar þá veit ég bara ekki hvað. Keppnin byrjar klukkan átta annaðkvöld og er til eitthvað um ellefu. Klukkutíma síðar er svo risastórt ball þar sem að Páll Óskar && hljómsvetin Buff munu spila. Ég ætla svo að fá að kúra hjá Lýdíu minni á vistinni alveg þangað til að ég þarf að snúa aftur til heimalandsins en rútan mun fara klukkan hálf eitt að Akureyrskum tíma. Verið viðbúin að stilla úrin ykkar því að ég hef heyrt að tímamismunurinn sé yfirþyrmandi. Nei, annars verður bara gaman að fara til Akureyrar & hitta fullt af fólki. Eru ekki allir að fara annars? Ég sé ykkur bara þar, ókei?
Maður er búinn að vera ýkt duglegur alla þessa viku að hlaða að sér stórkostlegum einkunnum. Níu í söguprófi, 9 & 7 í Laxþvæludæluprófunum [flettigluggaprófið vafðist aðeins fyrir mér] og 9 & 9.2 í tveimur hrikagantagríðaryndislega erfiðum dönskuprófum. Ég reyni eins og ég get að vera frábær. :]
Næsta vika er líka bara svona þriggja daga yndisskólavika. Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn & elskulega skólastjórnin [eða hver sem það nú var] ákvað að við skyldum bara vera í fríi á föstudaginn líka. Ég ætla að nýta næstu helgi algjörlega í tætlur & læra. Kíki kannski eitthvað í bæinn ef ég má vera að því. Maður er víst alveg hrikalega upptekin þessa dagana þegar að prófin eru bara eftir nokkrar vikur. Það eru nákvæmlega tíu skóladagar eftir þangað til að ég fer í próf. Og svo þegar prófin eru búin þá er bara beint á Hvolsvöll að vinna. Já, það eru pulsurnar aftur. Maður fær bara ekki nóg af því að pakka milljón pulsum inn á einu sumri.
Núna ætla ég að fara að róa mig niður, ég er víst alveg brjálæðislega æst, og lesa einn kafla í stærðfræði. Þegar því er lokið ætla ég að lesa tvo kafla í sögu. Þar á eftir ætla ég að borða sveittan Skútuborgara & pakka niður fyrir ferðina á morgun.
En já við erum sem sé að fara til Akureyrar til að rústa Söngkeppni framhaldsskólanna. Alla vega þeirri hlið sem snýr að stuðningsliðinu. Ef að við verðum ekki með besta stuðningsliðið í sögu kepninnar þá veit ég bara ekki hvað. Keppnin byrjar klukkan átta annaðkvöld og er til eitthvað um ellefu. Klukkutíma síðar er svo risastórt ball þar sem að Páll Óskar && hljómsvetin Buff munu spila. Ég ætla svo að fá að kúra hjá Lýdíu minni á vistinni alveg þangað til að ég þarf að snúa aftur til heimalandsins en rútan mun fara klukkan hálf eitt að Akureyrskum tíma. Verið viðbúin að stilla úrin ykkar því að ég hef heyrt að tímamismunurinn sé yfirþyrmandi. Nei, annars verður bara gaman að fara til Akureyrar & hitta fullt af fólki. Eru ekki allir að fara annars? Ég sé ykkur bara þar, ókei?
Maður er búinn að vera ýkt duglegur alla þessa viku að hlaða að sér stórkostlegum einkunnum. Níu í söguprófi, 9 & 7 í Lax
Næsta vika er líka bara svona þriggja daga yndisskólavika. Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn & elskulega skólastjórnin [eða hver sem það nú var] ákvað að við skyldum bara vera í fríi á föstudaginn líka. Ég ætla að nýta næstu helgi algjörlega í tætlur & læra. Kíki kannski eitthvað í bæinn ef ég má vera að því. Maður er víst alveg hrikalega upptekin þessa dagana þegar að prófin eru bara eftir nokkrar vikur. Það eru nákvæmlega tíu skóladagar eftir þangað til að ég fer í próf. Og svo þegar prófin eru búin þá er bara beint á Hvolsvöll að vinna. Já, það eru pulsurnar aftur. Maður fær bara ekki nóg af því að pakka milljón pulsum inn á einu sumri.
Núna ætla ég að fara að róa mig niður, ég er víst alveg brjálæðislega æst, og lesa einn kafla í stærðfræði. Þegar því er lokið ætla ég að lesa tvo kafla í sögu. Þar á eftir ætla ég að borða sveittan Skútuborgara & pakka niður fyrir ferðina á morgun.
End þenn itt iss Akureyri, þeinkjúverínæs.

Ég er svo harðkjarna
Ég er svo harðkjarna
Erla
hey ég vona að það verði gaman hjá þér á akureyris ef þú ferð á greifan viltu fá smá berneisesósu hnda mér í krukku?? Passaðu þig elskjú í lkessu mamman.
#2
13. apríl 2007 klukkan 23:55
Áslaug
hæ..
..vonandi var gaman á Akureyri..
...við sjáumst bæ
..vonandi var gaman á Akureyri..
...við sjáumst bæ
#3
15. apríl 2007 klukkan 22:22
ojjj þér!!! gastu ekki sagt mér fyrr að þú værir að fara á keppnina... þá hefði ég pottþétt þraukað slappleikann og það og komið!!! AULI!!!
En endilega reyndu að kíkja í bæinn og á MIG um helgina!!!
lov jú tú píses!!!
BJ

#4
18. apríl 2007 klukkan 11:02

þekki þig aldeilis ekki neitt en sá að þú kommentaðir á bloggið hjá mér.
vildi bara þakka þér fyrir innlitið, gaman að heyra frá þér.
bisous du france,
alda