Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SextíuogÞrjú

10. apríl 2007 klukkan 21:47
Dansidans

Já, góðan daginn. Ég hef ekki hugmyndarflugið í að koma alltaf upp með ný og skemmtileg orð til að skrifa efst í bloggið þannig að mynd it is. Ég nenni ekki í skólann á morgun. Ég nenni heldur ekki að vera lengur í páskafríi. Ég nenni eiginlega ekki neinu. Ég er til í að fara að sofa og sofa þangað til einhverntímann. En lífið virkar því miður ekki þannig og ég verð að gjöra svo vel að vakna rúmlega sjö og drattast í þetta hús sem að ég er í alla daga. Æi þarna skólann þarna, Fjölbrautaskóla Vesturlands eitthvað. Maður verður víst að læra eitthvað í þrjár vikur og svo koma prófin. Eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm, sex og sjö. Ég er að fara að taka sjö lokapróf og bara til að fullkomna það þá röðuðust þau á fyrstu þrjá dagana, tvö á einn dag í miðjunni og svo tvo síðustu dagana. Þannig að ég verð í prófum 3 - 16 maí. Sé ykkur bara eftir það. ;]

Skipulagningin þessa dagana er alveg að fara með mig. Ég þurfti að gera eitt verkefni í öllu páskafríinu. Eitt lítið dönskuverkefni upp úr leiðinlegri og ótrúlega perralegri danskri bók. Þessi bók er horbjóður. Ég vil ekki einu sinni hugsa um hana, ég er meira að segja komin með danskt orð á heilann sem mig langar ekkert að vera með á heilanum. Oj bara. En já ég þurfti að gera þetta verkefni og í gær þá loksins tók ég það upp úr töskunni, horfði lengi á það áður en ég svaraði þremur spurningum og setti það aftur ofan í tösku. Í dag varð ég svo að berjast við letina í mér og náði að klára þessar spurningar, á nokkrum klukkutímum með nokkrum hléum. Á fimmtudaginn er ég svo að fara í Laxþvæludælupróf. Gleði!

Í bloggi númer fjörtíuogþrjú eða áramótablogginu mínu stendur skáletrað að árið 2007 ætli ég að hætta að vera svona mikill asni. Ég ætla bara að segja ykkur það að ég er á góðri leið með að sigrast á símafóbíunni minni. Eða kannski frekar fóbíunni við að tala í síma. Mér hefur nefnilega tekist að verða ótrúlega feimin og þá helst í gegnum síma. Ég get ekki hringt eitt né neitt og til dæmis get ég ekki talað við suma vini mína í símann; mér finnst það bara ýkt óþægilegt og kjánalegt. Ég held reyndar að ég sé bara kjáninn/asninn. Í dag er ég búin að vera voða dugleg að hringja út og suður í SS til að reyna að ná í starfsmannastjórann. Náði sambandi við skiptiborðið og kom þá ekki þetta dýrindis lag sem að spilaðist á meðan ég beið eftir að ná sambandi við stjórann. Neinei, þá var hann bara ekkert við og ég var vinsamlegast beðin um að hringja aftur á morgun. Ég þoli ekki símtöl!

Annar asnaskapur minn tekur lengri tíma. Svona eins og almenna feimnin og það að ég get ekki talað skýrt fyrir framan fullt af fólki. Svo er það hvernig maður hagar sér stundum, en þetta kemur allt með tímanum. Vonandi. Það bara verður að gera það. En ég held að ég sé annars bara ágæt er það ekki? :]

Ull!
Sjáiði tunguna á barninu?!

A signature always reveals a man's character - and sometimes even his name.
Evan Esar
Ég held ég fari bara í 4 eða 5 lokapróf =P

Þúrt bara ágæt!! Ágæt Ágæt!!
#1
11. apríl 2007 klukkan 08:47
 
Zteffý
Flott blogg sæta;)
Vonandi sér maður þig fljótlega:*
Og gangi þér bara vel í prófunum!!
#2
11. apríl 2007 klukkan 15:41
 
steinunn
Flott blogg hjá þér og geggjuð mynd. En sjáumst :D
#3
12. apríl 2007 klukkan 14:54
ég er að fara í 5 próf og þau dreyfast ágætlega.... 30. apríl, 3., 4., 7. og 9. maí...:P
lov jú tú píses!!
Birna
#4
18. apríl 2007 klukkan 14:31

Skrifa athugasemd

Prófíll