//SextíuogTvö
08. apríl 2007 klukkan 20:02
Páskar!
Ég ætla að vera ógeðslega bjartsýn og vona að það fari ekki allt í klessu. Ókei?
Páskafríið er núna búið að vera í viku og mér er búið að takast að gera nákvæmlega ekki neitt. Eða svona þannig séð. Síðustu helgi fór ég í bæinn á samkomu á föstudeginum og gisti svo hjá Dagnýju. Á laugardeginum var hún að vinna frá tíu til tíu þannig að ég þurfti að redda mér einhverju að gera. Ég var ekki lengi að því og plataði Ásthildi með mér í Smáralindina þar sem að við hittum Iðunni & Maríu. Þar voru gerð ýmis mjög nauðsynleg kaup en ég var aðallega að reyna að redda kvöldinu. Ég og Þór vorum í stöðugu símasambandi en svo gerðist hann þrjóskur og ég á skilið stórt klapp fyrir að hafa hringt í allt þetta fólk. Ásthildur fór í afmæli eftir Smáralindina þannig að ég skakklappaðist á eftir Iðunni heim til hennar þar sem að við horfðum á stóran skammt af House. Síminn minn ákvað svo að deyja sem olli því að Ásthildur hringdi út og suður til að ná í mig. Þór kom svo með mömmu sinni og hún var sérlegur bílstjóri okkar á leiðinni í afmælið til Betu. [Náðum í Ásthildi heim til hennar & svona] Í afmælinu hitti ég Alexöndru eyjameyju og var það mjög gaman. :] Það var barnaþema í afmælinu og af því tilefni fórum við í pakkaleik og í annan leik sem hét 'Áttu Vatnsglas?'. Sá leikur var mjög flókinn en samt ótrúlega skemmtilegur; Tania tábrotnaði reyndar en það mátti alveg búast við einhverju slysi miðað við æsinginn sem var á fólki.
Á sunnudaginn fórum ég og Dagný ásamt helling af ættingjum austur í sveitina. Ég og Dagný urðum svo eftir í sveitasælunni og ég verð að viðurkenna að ég gerði nákvæmlega ekki neitt! Jú ég keyrði eitthvað smá og svo var ég svolítið á fjórhjólinu. Jú heyrðu, ég hjálpaði afa að týna einhverjar spýtur upp á vagn. Duglega ég. Á þriðjudaginn fórum ég, Áslaug, Sigrún, Dagný & Hildur í bæinn og gerðum margt skemmtilegt. Þar á meðal fórum við með bílinn í skoðun og ég held að það hafi ekki verið mikill vafi á því að ég og Dagný erum á bílprófsaldrinum [hún nýkomin með bílpróf] af því að við stóðum og horfðum á bílinn í skoðun. Bremsuprófun og eitthvað fleira skemmtilegt. Ég og Áslaug tókum svo strætisvagninn mikla upp á Akranes og fórum heim. Hafiði séð tólf ára barn með GSM síma nýlega? Það er svo yndislega furðuleg sjón. Ég var komin með svaka minnimáttarkennd yfir því að það var alltaf verið að hringja í systur mína en ekki mig.
Fimmtudagurinn fór í afmælið hennar Áslaugar. Svaka stuð og svaka gaman. Skírdagskvöldið endaði svo með hláturskasti þar sem að Ómar ákvað að tjá sig á geimversku í gegnum MSN. Ég hef ekki hlegið svona mikið síðan ég veit ekki hvenær. Á föstudaginn langa skruppum við mæðgurnar [ég, Áslaug & Mamma] í bæjarferð. Við byrjuðum á Stælnum þar sem að við borðuðum sveitta hamborgara, það var í alvörunni svitalykt af mínum. Síðan hentum ég & mamma Áslaugu út hjá Esteri Söru og fórum niður í Laugardalshöll á afmælisfund AA-samtakanna. Það var ágætt og ég sá alveg tvær frægar manneskjur.[OMGZZZZ&$] Eftir fundinn fórum ég og mamma á rúntinn og við skemmtum okkur alveg konunglega. Mamma fylltist einhverri svakalegri löngun í nammi og ég, góða dóttirin sem ég er, fylgdi henni inn í ellefuellefu og hlóð nammi á afgreiðsluborðið. Þá heyrðist í þeirri gömlu; 'Svona lítið?' Fullorðið fólk er undarlegt.
Eftir stuttan og sykurmikinn rúnt fórum við niður í Fíladelfíu á styrktartónleika MCI-biblíuskólans en þau eru að fara til Pakistans í lok mánaðarins. Þetta voru nokkuð flottir tónleikar og ég skemmti mér mjög vel. Það má reyndar rekja til þess að ég hitti fullt af skemmtilegu fólki ;]
Núna sit ég bara í sófanum í Þórsmörkinni á Selfossi hjá ömmu og afa. Fólkið er að borða ís en ég er búin að borða heilt páskaegg í dag þannig að ég legg ekki í meiri mat, ekki strax. Ég ætla nefnilega að verða feit. Sjáiði það ekki ýkt mikið fyrir ykkur? Ég ætla að borða á mig gat! Ég á bara eitt páskaegg eftir af þessum tveimur sem ég fékk. Áslaug hafði mjög mikið fyrir því að vekja mig klukkan sjö í morgun og ég drattaðist á fætur og fann páskaeggið mitt. Svo settist ég bara upp í rúm með Húbbrí og fór að dunda mér í Sims. Haha, ég fer svo yndislega innímig þegar ég er í honum að það líða tveir tímar án þess að ég taki eftir því. Ég var ótrúlega dugleg og keyrði alla leið frá Akranesi og til Selfoss og á þeirri leið eru hvorki meira né minna en þrettán hringtorg. Þakkaþérfyrir.

Faith is taking the first step, even when you don’t see the whole staircase.
Martin Luther
Martin Luther
harpa
heheh ég sé að þetta hefur verið annasöm vika hjá þer heheheheheh not en já skilaðu til Áslaugar frá mér afmæliskveðjum hehehehe sakna þín bæbæb i bili
#1
09. apríl 2007 klukkan 22:33
Jahá annasöm segirðu? :]
En ég skal koma afmæliskveðjum til skila jafnvel þótt að barnið hafi orðið tólf ára þann átjánda febrúar.

#2
09. apríl 2007 klukkan 22:35
harpa
óóóóóóóó:$ rn það stendur þarna að það hafi verið að halda upp á afmælið hennar:S hvða á ég að vita að það hafi verið fyrir 1 mánuði eða ekkað
#3
09. apríl 2007 klukkan 22:37
hehehe, þú ert mesti kjáninn :P. Djöfull ertu öflugur dræver, mér verður alltaf svo flögurt á leiðinni til Reykjavíkur út af öllum þessum viðurstiggilegu hringtorgum sem ég skil ekkert af hverju það þarf að hafa svona mikið af!. Mér á aldrei eftir að verða hleift út á götuna, ég tók bílpróf á vís.is og fékk 20 villur og í sjálfu bílprófinu má maður fá 3, áfram ég!, ég er náttla ekki búin að fara í einn einasta bóklega ökutíma. En heyri í þér :)
#4
09. apríl 2007 klukkan 22:47
Hjörtur
dúleg stelpa, að keyra svona mikið:). Vonandi gerðiru ekki eins og ég... fékst ógeð á súkkulaði um páskana. Þetta á ekki að vera hægt!
#5
10. apríl 2007 klukkan 00:15
Tábrotnaði einhver í ,Áttu Vatnslglas'??
Kannski ljót að seigja þetta, en þvílík snilld!!
Undirstrikar algjðrlega æsingin í liðinu!!:D
Ég er samt ekkert að fagna tábrotinu:P
Það hljómar bara svo vel þegar maður seigir frá þessu:D

#6
10. apríl 2007 klukkan 13:33
Nákvæmlega þetta hljómar ótrúlega vel.
Leikurinn hljómar nefnilega virkilega óspennandi þegar maður heyrir nafnið.
Og það að einhver hafi tábrotnað segir bara hversu æstir allir voru og hversu gaman var.
Haha!
Aumingja Tania, við eitthvað að dásemdast á brotnu tánni hennar.
Elska tána þína Tania! ;*
Hún er æði ;D

#7
10. apríl 2007 klukkan 14:27