Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//FimmtíuogSjö

11. mars 2007 klukkan 15:24
A : : B

My Name Is Earl hafði rétt fyrir sér. Karma kemur alltaf aftur og bítur mann í rassinn. Og í mínu tilviki beit það mig mjög fast í rassinn. Ef að ég væri með svona lífslista eins og Earl J. Hickey þá stæði núna neðst á honum með stórum stöfum;
  • 1928364; Hló að Hirti þegar hann var veikur

Já flensan [eða var það karma] náði mér á endanum eins og meirihlutanum af Íslendingum. Við Íslendingar erum ótrúlegir með þessa flensu. Ef að maður á Seltjarnarnesi hóstar þá er frændi hans á Fáskrúðsfirði kominn með flensuna. Ég var orðin viss um að flensan hefði tekið U-beygju þegar hún hefði rekist á ótrúlega sterka ónæmiskerfið mitt en því miður varð ég að láta í minni pokann fyrir flensunni og gjöra svo vel að leggjast í rúmið með 39° hita. Flensan sjálf var kannski ekki mesta vandamálið heldur það að ég missti af leikhúsferðinni í bæinn & árshátíðinni. Ég bókstaflega hóstaði þetta allt frá mér. Ég get þó huggað mig við það að núna er ég á hraðri ferð í áttina að því að verða betri manneskja. Karma & allt það.

Ég er hætt við að fara í Gettu Betur. Ekki samt fara að hafa það upp eftir mér að ég hafi einhvern tímann ætlað í Gettu Betur, ég sagði það aldrei. En ég er samt hætt við að fara í Gettu Betur. Sáuð þið það að á föstudaginn? EmmErr voru svo sjúklega góðir að mig svimaði. Þrjátíuogátta stig? Tuttuguogtvö í hraðaspurningum? Ef að ég fer einhvern tímann í gettu betur þá verður það eftir að ég verð háskólamenntuð. Ég veit ekkert svona mikið. Ég á eftir að gera mig að fífli. En það skiptir engu máli þar sem að ég sagði aldrei að ég ætlaði í Gettu Betur. Ókei, kannski þegar ég var sjö ára en þá ætlaði ég líka að verða flugfreyja [eða listmálari eða dýralæknir] og þá var stefnan að vera í sjálfum Gettu-Betur-Skólanum. Það er bara einn skóli í Gettu Betur ef þú skilur mig. En núna nýlega eru það allir aðrir sem eru að segja mér að fara í Gettu Betur og ég er komin í hring inni í mér um hvort ég vilji fara eða ekki. Það kemur bara í ljós.

Æfingaaksturinn gengur framar öllum vonum og ég get hér með vottað það að ég hef ekki lent í neinu slysi. Ennþá. Keyrði næstum því út af á föstudaginn [á möl] vegna þess að athygli mín lenti á rauðum húsum í stað vegarins. Mannleg mistök sem að allir ættu að læra af. Rauð hús eru stórhættuleg. Ég er handviss um að rassabítandi karma býr í stóru rassabítandi rauðu húsi. Mér hefur líka tekist það að vera eina manneskjan á veginum sem notar þessi goðsagnakenndu stefnuljós. Ég ætla bara að leiðrétta allan miskilning sem hefur orðið í samfélaginu hér og nú og segja ykkur að þau eru til í raun og veru. Þetta er ekki svona dæmi eins og jólasveinninn eða Davíð Oddsson. Nei, það liggur enginn vafi um hvort að stefnuljós séu til. Ég býð mig hér fram til að bjóða stefnulausum landanum upp á tveggja vikna stefnuljósa-námskeið sem mun bera heitið;

''Hvert er ég eiginlega að fara & hvernig hjálpa stefnuljósin að komast þangað?''

Ástandið á vegum landsins er hörmulegt. Hringtorg eru þar fremst í flokki hörmunganna. Fólk gefur engin stefnuljós þannig að litlir saklausir ökunemar eins og ég sjálf vita ekkert hvenær öruggt er að leggja í hringavitleysuna. Svo dirfist fólk að leggjast á flautuna þegar maður situr við stýrið og veltir vöngum yfir því hvort að maður eigi að taka af stað og eiga það á hættunni að rispa lakkið eða eitthvað þaðan af verra. Mér var skapi næst að stökkva út úr bílnum, banka á rúðunni hjá kauða og spyrja hann hvort að það væri ekki allt í lagi heima hjá honum og hvaða erfiðleikar það væru sem að fengju hann til að flauta á saklausa ökunema. En virðingarinnar vegna hélt ég skapinu í skefjum. [Þetta gerðist sem sé í gær á Selfossi]

Ég nýtti mér í staðinn eðlisfræðiþekkingu mína og breytti reiðiorkunni í námsorku. [náskylt skrið- og stöðuorku] Í morgun settist ég við tölvuna mína og rumpaði tveimur Laxdæluverkefnum af & skilaði í þar til gerða skilamöppu á veraldarvefnum, nánar tiltekið á Plútó. Síðasti skiladagur er á miðvikudaginn en þar sem ég sé fram á að vera að drukkna í heimalærdómi, sjálboðaliðastarfi, sjónvarpsglápi & emmessenni þá ákvað ég að klára þetta í dag. Samkvæmt Elsu kallast það að vera of gáfaður.

Helga er of gáfuð fyrir stefnulausan landann
Svona er að gera grína af hressum frænda sínum.
sorry að ég komst ekki um helgina:S... pökkuð dagskrá. En næstu helgi er mjög mikilvægt að þú verðir risin úr rekkju, ef ég má orða það svoleiðis, og komir á árshátíðarball í ML (ég skal setja þig á gestalista)
#1
11. mars 2007 klukkan 19:01
Hjörtur FreIr? Ertu ekki með ufsiloni kjánaprik :]

En já ég skil pökkuðu dagskrána & vil bara hér með láta þig vita að mín dagskrá er álíka pökkuð næstu helgi & þess vegna kemst ég ekki á árshátíðarballið. Því miður.
#2
11. mars 2007 klukkan 19:24
 
Rakel
Vá Helga veistu að það er ógeðslega gaman að lesa bloggin þín...

HÚBBRÍ bwahahahaha
#3
11. mars 2007 klukkan 21:19
HAHAHA:D Snilldar blogg sætilíus!(K)..EarlRokkar!..xD..hehe:P..sjáumst um Helgina sæta(K)(L)(K)((L)
#4
14. mars 2007 klukkan 09:52
jor bloggs ar intrestíng!! very skemmtifull!! æ vill sí jú þarnæstu víkend, vonandi.
Æm bulling á lélegri íslensk/ensku and þatt is verí fun!!! hopfullí jú understand hvað æm bulling!!!
bæbæ sí jú þarnæstu víkend!!!
p.s. ég er í skólanum og mér leiðist!!!
#5
14. mars 2007 klukkan 12:28
 
steinunn
hæhæ, geggjað fúlt að fara ekki a söngvakeppnina en við sjáumst á morgun. bæjó
#6
14. mars 2007 klukkan 20:36

Skrifa athugasemd

Prófíll