Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//FimmtíuogFjögur

20. febrúar 2007 klukkan 21:50
Modela : : Model

Ég stórefast um að þetta sé besta leiðin til að komast yfir hittþettaþaðhann en samt geri ég það. Það er eins og ég hafi gaman af því að láta mér líða illa. Sem að er svolítið þversagnarkennt þar sem að í báðum tilfellum er verið að tala um mig. Hluti af mér sér þvílíkt ýkt eftir þessu öllu saman & óskar þess að ekkert af þessu hefði gerst [svona eins og venjulega] en hinn hlutinn, ég er einföld; skiptist í tvo hluta, vill fá tækifæri aftur og gera allt svo allt öðruvísi. En þetta kemur allt niður á eitt;; Þetta átti ekkert að fara svona. Ég átti ekki að fara svona.

Akranes er ekki besti staður í heimigeimi. Satt að segja þá hef ég ekki hugmynd um hvaða staður er það. Mig langar til að fara eitthvert en ég veit ekkert hvert mig langar að fara. Hefur þig einhvern tímann langað til að vera ekki neinstaðar? Í augnablikinu er það bara 'default' stillingin á mér. Mér finnst eins og mér myndi líða svo miklu betur annars staðar en veit ekkert hvar. Mig langar til að flytja á eyðieyju. Taka bestu vini mína með mér & búa á eyðieyju einhvers staðar úti í rassgati. [sem að við lærum ekki um fyrr en í 6.kafla - Finnbogi] Ég sakna ykkar alla leið til Plútós-ég-er-ekki-lengur-reikistjarna-og-heiti-ekki-lengur-Plútó! Og Harpa Bergþórsdóttir, Njálsgötu eitthvað, Hvolsvelli? Ég er ekki í fýlu út í þig & ég er ekki alveg manngerðin til að fara í fýlu út í einn né neinn þannig að komdu því bara inn í hausinn á þér að ég er aaaalveg að fara að koma í heimsókn. <3

Þegar þessu öllu er lokið má til dæmis minnast á það að ég er komin með æfingaleyfi. Ég afrekaði það þrátt fyrir að hafa drepið sjö sinnum á bílnum í síðasta ökutímanum mínum sem var á föstudaginn. Sveitin var tekin með stæl um helgina; singstar, snakk, efnafræði, eurovision plús hryllingsmyndir sem enda svo á því að vera ekkert hryllilegar er fín blanda. Í gær [það var mánudagur í gær rigth?] fékk ég svo æfingaleyfið. Mér gekk alveg ágætlega að keyra eða þangað til að móðir mín kær fattaði að hún hefði gleymt bókinni heima, panikkaði og rak mig úr bílstjórasætinu. Svekk. Mér tókst líka að steingleyma íþróttaskónum mínum heima þannig að knattspyrnan í íþróttum var tekin á sokkaleistunum!

Í dag mundi ég eftir íþróttaskónum og sást það greinilega á því hvernig ég átti völlinn. Eða það vil ég alla vega meina. Ég skoraði þrjú heil mörk og skal það tekið fram að liðin voru blönduð, bæði strákar & stelpur í liðunum. Það að stelpa komi við boltann hlýtur að teljast afrek út af fyrir sig. Aksturinn í dag gekk ekki nógu vel. Mér tókst að drepa nokkrum sinnum á bílnum við að taka af stað í brekku og svo vel vildi til að Leifur keyrði fram hjá á því augnabliki. Ég mun halda áfram að vera aðhlátursefni bekkjarfélaga minna á morgun & ávallt. Móðir mín fékk svo næstum því taugaáfall, hjartaáfall eða bara bæði í einu þegar ég að missti algjörlega af biðskyldunni [það var sól í augunum á mér] og æddi út á götuna. Annars er ég nú bara ágætur bílstjóri.

Helga ætlar að fara að skipuleggja sig betur og munu vinir hennar vonandi njóta góðs af því. Heimanám fyrst & annað svo. [kemur vinunum reyndar mjööög lítið við en ég vildi bara koma því á framfæri] Las reyndar ágætan texta um 101 ways to avoid studying í enskutíma & sá sjálfa mig smá í þeim texta. Miðað við hvernig ég skipulegg, eða frekar skipulegg ekki, heimanámið mitt þá ætti ég að vera löngu fallin í öllu! En vinirnir munu vonandi njóta góðs af því að ég ætla að reyna að komast bæði til Hafnarfjarðar & á Hvolsvöll einhvern tímann næstu helgar. Það eiga nefnilega tvö apaskrípi afmæli í mars sem að ég elska í tætlur. =]

Helga gefst upp
koddu í sveitina og við skulum svekkja okkur saman, drekka mikið kók og borða endalaust nammi:). Ef ekki þá verð ég bara að koma á Akranes, þó að ég megi varla fara út úr húsi:S... (ég biðst afsökunar fyrir ónæmiskerfið mitt)
#1
20. febrúar 2007 klukkan 22:19
Bara til Hafnafjarðar! Ekki í Kópavog?? :'( :'( *sniff sniff væl*

Iss ég er betri brummari en þú :P, fæ æfingaleyfið á föstudaginn (á morgun)


Hvað heitir Ég-heiti-ekki-lengur-Plútó þá???
#2
22. febrúar 2007 klukkan 09:19
Heyrðu nú mig! Þú kemur bara sjálf í Hafnarfjörðinn í þetta sérlega afmælispartý!

Og um brummið. Má ég minna þig á að ég er einum og hálfum mánuði yngri en þú & fékk æfingaleyfið viku á undan þér? Og það er miklu erfiðara að keyra með foreldrum en ökukennara þannig að bíddu bara. Bíddu bara Iðunn! *múhahaha*

Plútó heitir einhverjum fullt af tölustöfum. 143130 eða eitthvað álíka. [ætla að gá]
Plútó-ég-heiti-ekki-lengur-Plútó-heldur-134340 Hann heitir það!
#3
22. febrúar 2007 klukkan 12:20
 
Iðunn...
Já okei en ég vil líka heimsókn :'(

Og ég er búin að bíða, keyrði helling með mömmu um helgina, gegg bara vel sko
#4
26. febrúar 2007 klukkan 10:46
Helló er svona brjálað að gera?hvenær ætlaru að bloggst næst? sakna blogganna þinna elskjú
#5
26. febrúar 2007 klukkan 11:46

Skrifa athugasemd

Prófíll