Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//FimmtíuogŢrjú

15. febrúar 2007 klukkan 17:04
Horsey : : I Miss You

Er það bara rugl í mér eða er miklu einfaldara að vera strákur en stelpa? Ég hef reyndar, eins og flestir, bara verið annað kynið, í mínu tilfelli stelpa, þannig að ég hef ekki hugmynd um hvernig það er að vera strákur. En samt held ég einhvern veginn að það sé þúsund sinnum einfaldara, á allan hátt. Þegar ég var lítil langaði mig alltaf að vera strákur. Það var reyndar ekki alveg út af því að það væri einfaldara, kannski frekar af því að það var miklu skemmtilegra. En mér tókst alla vega að vera stelpa og haga mér eins og strákur fyrstu grunnskólaár mín. Ég er samt algjörlega sátt við að vera stelpa en ekki strákur þannig að ekki fara að misskilja mig og halda að ég sé að fara að stökkva í kynsskiptiaðgerð. Alls ekki!

Skólinn er búinn að vera fríkí þessa vikuna. Skólinn er reyndar alltaf frekar fríkí en hann er búinn að vera sérstaklega fríkí núna. Ég er náttúrulega snillingur með hvorki meira né minna en þrjátíuogtvo tíma inní töflu þar af tveir árekstrar. Eðlisfræðinni hefur tekist að rugla mig svo mikið í hausnum að ég veit varla hvar ég er þegar ég er í tíma. Ég rembist og rembist við að læra þetta og er alltaf nýbúin að ná því sem að kennarinn er að segja þegar hann byrjar á næsta atriði. En maðurinn er rugludallur þannig að þessir tímar eru æði! Ert þú með kennara sem að hleypur um stofuna, sýnir allt sem hann talar um, snýr borðum á hvolf og hleypur á veggi í tíma? Hélt ekki.

Þetta hlýtur samt allt að fara að koma. Allt er erfitt þangað til að maður lærir það [fróðleiksmoli dagsins]
Ég kunni ekki einu sinni að keyra fyrr en í miðjum desember og ég er að fara að fá æfingaleyfi! Á morgun er síðasti ökutíminn minn fyrir æfingaleyfið. Ég er að fara að bakka & leggja í stæði upp við elliheimilið. Ráðlegg öllum ellismellum að halda sig innandyra á meðan það athæfi fer fram. Þið megið bara öll halda ykkur heima við á meðan ég bakka í stæðið, svona öryggisins vegna. Svo þarf ég bara að fá einhverja stimpla og undirskriftir frá öllum foreldrum mínum um að þeir ætli að leyfa mér að keyra og hókuspókus ég verð komin með æfingaleyfi. Með svona fallegan grænan límmiða aftan á bílnum. Eða segul. Eða hvað sem þetta dæmi er.

Um helgina ætla ég svo að stökkva í sveitasæluna. Áætlunin er að missa röddina í SingStar, borða nammi & góðan mat. Svo þarf maður víst að læra fyrir efnafræðipróf sem maður þarf að taka á mánudaginn. Er maður ruglaður? Þessi vika er ekki einu sinni búin og maður er byrjaður að plana þá næstu. Ég er bara að vona að Dagný drukkni ekki í lærdómi svo að hún geti líkað komið um helgina. Það væri æði.


Helga hefur ekki hugmynd um hvað hún var að blogga
Hæbb! hér var ég í heimsókn :D, bara að kvitta fyrir mig.
Þegar ég var að lesa þetta mjög svo fína blogg hjá þér, þá rakst ég á skondinn skít!!!! Sniðugt: "Ég hef reyndar, eins og flestir, bara verið stelpa þannig að ég hef ekki hugmynd um hvernig það er að vera strákur" FLESTIR hahaha, bara smá ábending ... það eru til strákar, svo ótrúlegt sem það kann að vera ;) Sjáumst!
#1
16. febrúar 2007 klukkan 07:21
Strákar? Hvað er það =P

Haha nei ég er búin að breyta þessu ;]
#2
16. febrúar 2007 klukkan 08:04
Er mér ekki boðið í singstar?:O

og efnafræðikennarinn okkar er mjög svipaður nema hann rekst á borðin í stað þess að snúa þeim við:D
#3
18. febrúar 2007 klukkan 03:40

Skrifa athugasemd

Prófíll