Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//FimmtíuogTvö

10. febrúar 2007 klukkan 14:19
Ryan Hansen : : Dick Casablancas

Ég hef tekið þá frábæru ákvörðun að byrja að horfa á The O.C aftur. Það er fjórðu seríu sem er verið að sýna núna á Skjá einum jafnvel þótt að ég hafi bara horft á fyrri hlutann á þriðju seríu og gefist svo upp. Ég sá nefnilega ekki seinni hlutann vegna þess að ég var alltaf í vinnunni í sumar þegar það var sýnt. Og líka þegar það var endursýnt. Það er eitthvað svo kjánalegt að eiga fyrstu tvær seríurnar og hafa ekki séð síðustu tvær. [fyrst að þær verða nú bara fjórar]. Alltílagi. Þá er það ákveðið; ég verð límd við sjónvarpið á mánudögum.

Eftir að hafa komið þessum gífurlega mikilvægu upplýsingum frá mér hlýtur öllum að líða miklu betur. Er það ekki? Já vitiði ég er sammála. Þetta hljóta að hafa verið tilgangslausustu upplýsingar í sögu mannkynsins. Ef þið viljið vita á hvað annað ég er að horfa þessa dagana þá er það ekkert mál sko.

The O.C
Heroes
Veronica Mars
House
One Tree Hill

Þetta eru sem sé þættirnir sem að ég verð að horfa á. Ég verð alveg bandbrjáluð ef einhver á heimilinu svo mikið sem hugsar um að snerta fjarstýringuna á meðan einhver af þessum þáttum er í gangi. Reyndar er ég búin að ala foreldra mína svo vel upp að þeir eru farnir að horfa á alla þessa þætti með mér. Nema náttúrulega The O.C þar sem að ég er ekki alveg byrjuð að horfa á þá. En það kemur bara.

Fyrir utan sjónvarpið er ekkert sérstaklega áhugavert að gerast í mínu lífi. Ekki það að sjónvarpið sé eitthvað mitt líf. Síðast þegar að ég vissi þá bjó ég hvorki í Kaliforníu né Tree Hill, ég leysi ekki glæpamál þegar ég hef ekkert að gera, er ekki læknir og hef enga ofurnáttúrulega hæfileika. Nema ef að blogg um ekki neitt teljist til þeirra. Sem ég stórefast um.

Nei. Ég er bara endalaust í skólanum með þessar tuttuguogfjórar einingar mínar. Tuttugastaogfjórða einingin kemur frá því að ég og Sara erum að fara að sjálfboðaliðast fyrir Rauða Krossinn. Tveir tímar í viku í tíu vikur. Ég er líka búin að vera aðalskemmtun Þorgerðar í skólanum. Hún er alltaf að hlæja að mér. Aðallega af því að ég veit ekkert um bíla. En annars líka bara svona almennt. Það er annars gott að einhver getur haft gaman af manni. Kannski er ég bara svona svakalega fyndin og hún er að hlæja með mér en ekki að mér. [þó að ég hallist frekar að því síðarnefnda]

Ótrúlegt en satt þá er ég að fara að fá æfingaleyfi. Það er hreinlega ótrúlegt miðað við hvað ég veit lítið um bíla, samkvæmt Þorgerði. Ég á bara eftir að fara í þrjá ökutíma og hvissbammbúmm ég verð farin að keyra um götur Akraness og vonandi víðar. Áður en ég fæ æfingaleyfið þá þarf ég bara að taka tvo tíma í að bakka og leggja í stæði og svo fer einn tími í Borgarnes. Það skil ég alls ekki. Borgarnes? Af öllum stöðum þá þarf ég að keyra upp í Borgarnes til að fá æfingaleyfi. Og tilgangurinn er?

Restin af þessum laugardegi fer í lærdóm, tiltekt og mjög líklega það að horfa á fyrstu seríu af The O.C

Ryan Atwood
Helga er að missa sig í sjónvarpspersónum
Brummbrumm-astu þá einhverntímann í bæinn!!!
#1
10. febrúar 2007 klukkan 14:27
Gangi þér vel að Brummast!!! Og já helst bara einhvertíman í bæinn!!! Ég brummaðist til þín!!! (þótt þú hafir svo gleymt því... :'( ) :P
#2
10. febrúar 2007 klukkan 16:29
 
Hjörtur
þú lætur mig vita þegar þú ferð að keyra um tungurnar því þá ætla ég að halda mig frá veginum:D.
ÞARF að fara að hitta þig, kominn með fráhvarfseinkenni. Síðan ertu ein af fáum sem skilur húmorinn minn:) hehe
#3
11. febrúar 2007 klukkan 15:24
Hvernig í veröldinni er hægt að fá fráhvarfseinkenni frá mér??
Hvernig lýsir sér það eiginlega?

En já við verðum að fara að hittast, þetta gengur ekki lengur =)
#4
11. febrúar 2007 klukkan 18:04

Skrifa athugasemd

Prófíll