//FimmtíuogEitt
07. febrúar 2007 klukkan 11:58
: : 
Fúlt, fúlt, fúlt, fúlt! Þannig er líf mitt búið að vera síðan á föstudaginn. Síðasta helgi var án efa fúlasta helgi sem ég hef á ævi minni lifað og þær hafa samt verið þónokkrar. Á föstudaginn vaknaði ég með hina alræmdu ælupest og eyddi meiri hluta dagsins á baðherbergisgólfinu með Fréttablaðið fyrir framan mig. Hinum hlutanum af deginum eyddi ég annað hvort uppi í rúmi sofandi eða uppi í sófa horfandi á One Tree Hill.
Laugardagurinn var alveg jafn fúll og föstudagurinn. Ég var ógeðslega slöpp og þar að auki töpuðu Íslendingar fyrir Spánverjum [sem voru reyndar Heimsmeistarar] og áttunda sætið varð staðreynd. Viðbjóðslega fúlt. Sérstaklega þar sem við vorum bara nokkrum sentímetrum frá undanúrslitum. Ég man ekkert hvað ég gerði á sunnudaginn þannig að hann hlýtur að hafa verið fúll. Og í skólanum er búið að vera alltof mikið að læra og ég er búin að hafa alltof mikið að gera plús það að ég er að drukkna úr kvefi. Þannig að allt í allt eru þessir fimm dagar búnir að vera fúlir.
Eins og það hefði ekki verið nógu fúlt að æla úr sér innyflunum á föstudaginn þá gat ég að sjálfsögðu ekki farið til Hörpu um helgina sem toppaði bara þessa fúlu helgi. Nú taka við endalausar skipulagningar þar sem að ég þarf að gera svo mikið á allt of stuttum tíma. Áður en ég sný mér við verður kominn apríl og þá er bara mánuður í próf! Og ég á eftir að gera svo mikið. Ég þarf að vinna, fara til Hörpu, fara til pabba, afmælið hennar Áslaugar og afmælið hennar Maríu! Hjálpi mér, hjálpi mér.
Ég vildi að það væri hægt að færa afmælið mitt. Bara svona einu sinni. Ég nenni ekki að bíða í september eftir bílprófinu! Er löglegt að láta mig bíða svona lengi? Allt í kringum mig er fólk að taka bílpróf, falla á bílprófi, taka bílpróf, ná bílprófi og loks fá bílpróf! Og ég er ekki einu sinni komin með æfingaakstur. Þetta er hreint ekki sanngjarnt. [ókei þetta er kannski sanngjarnt en mér finnst það ekki]. Mér finnst samt óendanlega skrítið að vera bráðum að fara að keyra bíl með foreldrum mínum. Þau munu hlæja að mér! Ég verð aðalskemmtikraftur foreldra minna næstu mánuðina. Ji, hvað mig hlakkar til.
Erum við að tala um að fara að gera eitthvað almennilegt áður en maður skundast í skólann og fer í næstu fjóra tíma? Stærðfræði, enska, íslenska & efnafræði. Og ég nenni bara í efnafræði. Þetta ætti að vera gaman.

Helga lofar að næsta blogg verði ekki fúlt
Mamma
Já það verður hlegið af stressi en bíllinn er í kaskó þannig að þetta sleppur Hey hvernig er hægt að drukkna úr kvefi ? drukknar maður í horinu? Mamman
#1
07. febrúar 2007 klukkan 14:27
HELGA!! ÉG ER HNEIKSLUÐ!! við mamma heimsóktum ykkur á sunnudaginn og mannst ekki einusinni eftir því!!! ég er bara virkilega FÚL!!!
#2
07. febrúar 2007 klukkan 15:34
Ji minn eini! Ég er greinilega að verða gömul 8-)
Ég biðst afsökunar.
Ég biðst afsökunar.
#3
07. febrúar 2007 klukkan 18:04
heheh heyrðu þú mátt bara koma þegarþér hentar krúttið mitt og hey ég er einu og álfu ári eldri en u og ekki er ég komin með prófið þótt það hrjái mig nu svoltið en þé er mér eiginlega sama nema að ég get ekki brunað uppá Akranes till þín en já vona að u batnir og veistu ég er sammála u með eitt það var fult að u komst ekki en þa býður bara betri tima
sakna þín bæbæb
sakna þín bæbæb
#4
08. febrúar 2007 klukkan 13:38