Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//FjörtíuogNíu

30. janúar 2007 klukkan 03:03
Stupid Factory : : I love you Cherry Much

Ég held að ég sé eitthvað öfugsnúin. Eftir því sem ég fer í fleiri ökutíma því lélegri bílstjóri finnst mér ég vera. Ég var að reyna að bakka í stæði áðan og ég vil bara hér með biðja eigendur bílanna sem ég bakkaði næstum því á innilegrar afsökunar. Ég hef það mér til varnar að það var óendanlega dimmt úti & ég ætla bara að prófa aftur þegar ég sé eitthvað.

Ég er búin að upplifa veröldina á nýjan hátt síðan á föstudaginn. Ég er farin að sjá hlutina sem eru langt í burtu og í morgun tókst mér loksins að fatta hvað sögukennarinn var að gera með þessar glósur upp á töflu. Þetta voru í alvörunni orð en ekki bara klessa í móðu. Hvað haldiði að hafi gerst? Jú, ég er komin með gleraugu. Eftir sextán ár af því að vera ekki með gleraugu, teina, rauðhærð og örvhent. [En það voru einmitt verri kostir lífsins þegar ég var átta ára] Núna verð ég víst að hætta að kalla fólk gleraugnagláma og byrja að kalla sjálfa mig gleraugnaglám. Ég meika það samt ekki að þið kallið mig gleraugnaglám þannig að ekki.

Á föstudaginn keyrði Dagný [æfingarakstur gott fólk] mig og foreldra hennar austur í sveitina. Þau voru nefnilega að fara á þorrablótið í sveitinni og ég og Dagný pössuðum gríslingina á meðan. Börnin sofnuðu eftir að við höfðum raðað pizzu, snakki & búðing [bú-þing eins & Þorfinnur orðaði það] ofan í þau. Ég & Dagný horfðum svo á A Walk To Remember og gerðum þá samning um að fara í roadtrip til Bandaríkjanna. Við ætlum nefnilega að finna hann Shane West & hann Chad Michael Murray =]
Daginn eftir fórum við í bæinn af því að gamla fólkið var að fara í matarboð í Grindavík. Ég, Dagný, Þórhildur & Þorfinnur gistum heima hjá Fríðu og Gústa og borðuðum örugglega ólöglega mikið magn af nammi. Ég fékk loksins að sjá She's The Man og gat ekki hætt að segja Dagnýju hversu krúttlegur Channing Tatum væri.

Í íþróttum áðan gerðist ég mjög íþróttamannskonuleg og skoraði eitt stykki frábært mark í handbolta. Skotnýtingin hefur reyndar ekki verið mjög góð hjá mér þar sem að ég var bara búin að reyna að skora í svona sjöhundruð skipti og skaut alltaf boltanum beint í fangið á markverðinum. Mér tókst ekki að vera eins og L&I sem að skoraði endalaust mikið af mörkum í leiknum á móti Slóvenum og ætlar að rústa Dönum á morgun. Ókei? Mér finnst það bara vera ýkt góður díll. En núna ætla ég að gerast sófarotta og horfa á Heroes & svo C.S.I. =]

Shane West

Helga ætlar ekki að bakka í stæði
heheheheheheh komin með gleraugu ég skal ekki kalla u g......gám heh e þetta er ekki einusinui fyndið ég þarf að fara lika til augnlæknis sjónin i mer fer versnandi og er égf orðin geggjað fjærsín hehe en já sakna u en ég var ekki sófarotta i gær heldu var ég uppi minu æðislega mjúka góða rúmi að lesa fyrir ísl 403 takk fyrir og Helga þú veist hvað rúmið mitt er mjúgt og gott svo það var ekki alveg að ganga að vera uppi rumi því mig langaði bara aða fara að sofa:/ en já ætla að hætta þessu verða að fara bæbæ

ps. það er ball um elgina kíkiru ekki á mig u mátt vera um helgina og ég er ekki að vinna.
#1
30. janúar 2007 klukkan 15:27
takk Helga...þetta er 1 rauðhærð systir þín af tveimur sem er að commenta
------->GLERAUGNAGLÁMUR<---------
#2
30. janúar 2007 klukkan 22:24
Bömmer með gleraugun:/ Get samt ekki neitað því að ég hlakka soldið til að sjá þig með þau!! En gangi þér vel að aðlagagast því að vera g...glámur

PS:Það er erfitt að bakka. Þú ert örugglega ekki svona léleg að keyra.
#3
30. janúar 2007 klukkan 22:28
Áslaug: Sunneva er EKKI rauðhærð
#4
30. janúar 2007 klukkan 23:52
Jæja. Var þetta skot á mig, eða var þetta skot á mig?
Ég hef verið eða er allt af þessu sem að þú nefndir þarna uppi.
Og ég verð bara að segja að mér finnst ég tilheyra miklum minnihluta eftir að hafa lesið þetta blogg.

Meira hef ég ekki að segja.
#5
31. janúar 2007 klukkan 17:38

Skrifa athugasemd

Prófíll