Ég myndi samt giska á Túnisbúar eða Túnismenn.
Túnisar er of einfalt, minnir mig á túrista
//FjörtíuogÁtta
24. janúar 2007 klukkan 16:34
: : 
Eyða. Þannig er líf mitt núna. Ekki það að það sé eitthvað tómlegt, alls ekki, ég er bara í minni vikulegu eyðu í skólanum. Á eftir sögu & á undan umsjón. Ég er búin að vera rosalega dugleg síðustu 40 mínúturnar og læra í íslensku. Var að gera einhverja gífurlega spennandi persónulýsingu og vitiði hvern ég skrifaði um? Hana Hörpu mína! Svona smá aukaafsökunarbeiðni út af þessu með glímuna ;] Ég er reyndar alveg farin að sjá heimsmeistaratitilinn í hillingum, ókei kannski ekki alveg gullið en alla vega bronsið. Það er bara lágmark eftir að hafa unnið núverandi Evrópumeistara Frakka. Ég öskraði af gleði þegar ég áttaði mig á því að við vorum að fara áfram inn í milliriðil, með 2 stig og 8 mörk í plús. Það gerist ekki mikið betra =]
Þessi vika er ekki búin að vera eins brjáluð og ég hélt að hún myndi verða en það orsakast aðallega af því hversu margir kennarar eru veikir. Til að mynda þá var þetta alveg íþróttalaus vika hjá mér vegna þess að hún Anna, íþróttakennarinn, er veik. Tvöföld gleði! Reyndar sagði læknirinn sem ég fór að heimsækja í gær að ég mætti alls ekki stunda íþróttir þessa vikuna og að ég ætti að hvíla vinstri hendina. Af hverju? Jú, ég nefnilega vaknaði með eitthvað svaka kýli á föstudaginn sem hefur ekki gert annað en að stækka og í gær var ég alveg að drepast í því þannig að móðir mín ákvað að fara með mig til læknis í gær eftir skóla. Læknirirnn skoðaði þetta eitthvað og potaði í mig og svo sagði hann mér að leggjast niður og ákvað að kreista þetta svolítið. Náði svo í einhvern hníf og kroppaði í þetta og þá var þetta bara fullt af greftri. Ullabjakk! Hann pakkaði þessu inn í sáraumbúðir og skipaði mér að taka pensillín. Og ég á að hvíla vinstri hendina. Málið er að ég kann það bara ekki baun í bala. Ég nota hægri hendina mest þar sem að ég er rétthent. En ég hlýt að átta mig á þessu.
Á eftir er ég svo að fara til augnlæknis og svo í ökutíma. Einhvers staðar þarna á milli ætla ég líka að horfa á Íslendinga rústa Túnismönnum/búum. Hvað heitir fólk frá Túnis? Túnisar? Túnfiskar? Æi það skiptir engu máli. En nú ætla ég að fara að horfa á Veronica Mars. Fyrstu seríu. Ég fann hana nefnilega á internetinu. =]

Helga handlama á vinstri
Mín fyrst giskun er sko Túnisar, þótt að það minni mig líka á túrista, en svo myndi önnur giskun vera Túnisbúar, eða -menn.
Veit ekki mér finnst bara Túnisar hljóma rétt einhvernveginn.
En svo er þetta náttúrulega ég sem er að pæla þannig að ekki treysta þessu 100%
; ]

#3
24. janúar 2007 klukkan 17:52
Túnisar er málið:P Ég er nokkuð öruggur á því.
#4
25. janúar 2007 klukkan 01:39
Þú varst líka að horfa á leikinn =P
Ég áttaði mig á því þegar hann byrjaði að lýsa leiknum =D

#5
25. janúar 2007 klukkan 01:51
halló..ég er að skrifa atuhugasemd...bæ
#6
25. janúar 2007 klukkan 23:43
Það var ekki vegna þess að ég var að horfa á leikinn. Ég hef bara alltaf heyrt og sagt Túnisar. Ég lofa þér að ég vissi það áður en leikurinn byrjaði...!!!!
#7
25. janúar 2007 klukkan 23:45

Vona þín vegna að þú sért með normal sjón og þurfir ekki að fá gleraugu!
Túnisar.
Held ég.