Og ég hélt að það væri mikið að gera hjá mér.
Úff.
En maður kíkir kannski á þig í vinnunni á fimmtudaginn bara.
//FjörtíuogSjö
22. janúar 2007 klukkan 02:07
: : 
Oj, oj og aftur oj! Ég hélt að Íslendingar væru orðnir svona sæmilega góðir í handbolta en nei, einhverjum Úkraínumönnum tókst að valta yfir okkur áðan. Þetta voru reyndar einhverjir Úkraínskir risar en það er engin afsökun. Ég sé ekki fram á að við verðum heimsmeistarar þetta árið frekar en síðast eða þarsíðast. Ég verð bara að sætta mig við það að Íslendingar verða aldrei heimsmeistara í neinu, nema kannski glímu eða einhverri álíka lúðalegri íþrótt.
Sigurinn á Áströlum var líka bara djók og ég tel það ekki einu sinni með. Að sigra Ástrala í handbolta er mjög svipað og að að vinna okkur Íslendinga í fótbolta. Ég horfði reyndar ekki á leikinn en náði samt fyrstu 10 mínútum í útvarpinu þegar ég var að keyra undir Akrafjallinu. Ég var nefnilega í ökutíma og keyrði næstum því útaf =] Ótrúlega dugleg! Svo drap ég líka einu sinni á bílkvikindinu en ég vil samt eiginlega ekki tala um það.
Þegar að ökutímanum lauk skutlaði ég sjálfri mér á strætó, nei ég klessti ekki á strætó, og tók strætó með henni Biddu í Reykjavík. Afi kom og sótti okkur og skutlaði Biddu í Völvufellið en mér til Ásthildar. Ég, Ásthildur & Natalía gerðum okkur svo tilbúnar fyrir árshátíðina. Við fórum með Jóhannesi niður í Fíló og þar hittum við fullt af fólki. Ég & Ásthildur sátum svo á borðinu með besta fólkinu og að sjálfsögðu gullfiskinum honum Nemó, sem að ég nefndi svona frumlega. Á árshátíðinni borðuðum við ótrúlega góðan mat, horfðum á frábær skemmtiatriði og dönsuðum eins og okkur væri borgað fyrir það. Ég komst líka að því að það er ekkert rosalega þægilegt að vera að dansa við einhvern og reka hnéð á manni í hnéð á manneskjunni sem maður er að dansa við. Það er eiginlega bara frekar mjög óþægilegt. En já það var alveg óendanlega gaman að hitta allt þetta fólk sem að ég hef eki hitt síðan égveitekkihvenær! Ég, Ásthildur & Natalía fengum svo far heim með honum Hafliða sem var að fara að vinna. Jahá um nótt, ekki furða að manneskjan sofni allstaðar =P En já ég og Ásthildur reyndum svo að horfa á Master of Disguise en vorum orðnar svo þreyttar að við fórum bara að sofa. Og svo vaknaði ég með blóðnasir í morgun. Yummy yummy!
En í síðustu viku fóru ég og Sunneva í Ö-1 og stóðum okkur með glæsibrag. Við lærðum allt um umferðarmerkin og nú get ég bent á hvaða umferðarmerki sem er og sagt þér hvað það þýðir, eða svona næstum því. Ég og Sunneva tókum eitt svona bóklegt æfingarbílpróf saman og það munaði bara einni villu að við hefðum náð! En það falla hvort sem er allir á þessu æfingarprófi þannig að við vorum alveg þokkalega stoltar. Ég fattaði það í ökuskólanum að ég er að verða blind! Ég sá nákvæmlega ekki neitt á glærurnar og er að fara til augnlæknis á miðvikudaginn til að athuga hvort að ég þurfi gleraugu. =/
Þessi vika sem er að byrja eða er byrjuð, ég veit ekkert hvar ykkar vika byrjar, verður geðveiki hjá mér. Á morgun þurfum ég og Sara að stinga af úr stærðfræði til að fara upp í Rauða Kross og sjálfboðaliðast eitthvað og eftir það þarf ég að komast í íþróttir og spila handbolta. Gleði! Á miðvikudaginn er ég að fara til augnlæknis og á fimmtudaginn hef ég 12 mínútur til að koma mér úr síðasta tímanum og upp í strætisvagn á leið til Reykjavíkur. Já, ég er að fara að vinna til níu á fimmtudaginn. Svo er náttúrulega líka þetta típíska [þoli þetta orð ekki; kann ekki að skrifa það], skóli og heimalærdómur. Ég hafði hugsað mér að fara á ball á ML ball um helgina en með þessu áframhaldi sé ég fram á það að sofna í einhverju mjúku rúmi áður en að ballið byrjar. Eitthvert rúm laust? Pwettyplease.
En núna ætla ég að fara að læra í eðlisfræði svo að ég drukkni ekki í heimalærdómi í vikunni. Og Þór? Ég vil bara biðjast afsökunar ef að það virkaði eins og ég væri að hunsa þig í gær. Það var alls ekki ætlunin : [

Helga eðlisfræðilega þreytt
já tAkkk HELGA....þEttA Er HræðiLEGtA útLit Hjá þér kona Góð....þEttA Er Ljótt
#3
24. janúar 2007 klukkan 00:24
Heyrðu nú mig! Sem systir mín átt þú að elska mig og styðja allt sem ég geri; þar á meðal það að ég skipti um útlit á bloggsíðunni minni.
Reyndu að gagnrýna mig næst þegar bloggsíðan þín verður flott =P

#4
24. janúar 2007 klukkan 01:15
harpa
Helga eg er mogud ut i u nuna takk fyrir ad kalla mig luda eg stunda glimu takk fyrir eg er i filu nei bara grin en hey gettu hvar eg er ja rett hja u eg er i frakklandi hehe en hy eg vil sammt fa ad heyra afsounarbeidni utaf glimunni takk annars.... sakna u
#5
24. janúar 2007 klukkan 03:36
Ég var einmitt að velta því fyrir mér af hverju þú værir ekki búin að commenta í svona langan tíma! Fattaði það svo áðan þegar ég var í sturtu, þú ert í Frakklandi =D
En já ég vil biðjast afsökunar á að hafa kallað glímu lúðaíþrótt & tek það líka fram að ég æfði einu sinni glímu og var í rauninni að kalla sjálfa mig lúða þar sem að ég get ekkert í handbolta.
Takkfyrirtakk skemmtu þér vel í Frankrig =]

#6
24. janúar 2007 klukkan 04:11
Harpa
heheh takk fyrir en nuna er ég komin heim frá frakklandi hehe sakna u helga erum við þá bara ekki lúðar saman??? nei við erum bara snillar saman
#7
30. janúar 2007 klukkan 15:20

En sorry ef þér leið þannig. En þú þarft alls ekki að biðjast fyrirgefningar
En ég náði æfinga krossaprófinu í ö1!!! haha
Sé þig seinna:D