FjörtíuogFjögur
06. janúar 2007 klukkan 06:35
: : 
Já halló. Fyrsta blogg ársins tvöþúsundogsjö. Árið hófst með tilheyrandi ljósum og látum en ég lét mér nægja eitt handblys. Það var alveg nógu hræðilegt fyrir mig ásamt glóðinni sem ringdi yfir mig úr köku nágrannans. Óþægilegasta glóð sem ég hef fengið yfir mig. Í fyrra hló ég eins og vitleysingur að skaupinu og var sú eina á heimilinu sem sá húmorinn við Ólívur Ragnar Grímsson. Hló samt örugglega meira að Kaupþings auglýsingunni með John Cleese og Þorsteini Guðmundssyni. Ég hef reyndar hlegið af örugglega öllum KB banka auglýsingunum sem hann hefur leikið í, þ.e. Þorsteinn.
Á þriðjudaginn fór ég í bæinn til að vinna en þar sem að nánast allar búðirnar í Kringlunni voru lokaðar þá lokuðum við Bryndís búðinni og ég fór bara heim til Dagnýjar. Dagný var reyndar í vinnunni en ég tók bara sjónvarpið traustataki og horfði bæði á Alfie og Kill Bill vol 1. Jude Law var fallegur eins og ávallt og Kill Bill var ein sú gervilegasta mynd sem ég hef á ævi minni séð. Blóðið bara spýttist út um allt eins og því væri sprautað úr tómatssósuflösku. Miðvikudagurinn fór í það að undirbúa útsöluna sem byrjaði á fimmtudaginn. Klukkan fimm var útsalan undirbúin þannig að ég skellti mér í bíó með Dagnýju & Áslaugu á Happy Feet. Ótrúlega fyndin og skemmtileg mynd. Sérstaklega miðað við að hún er um mörgæsir. Á fimmtudaginn byrjaði svo útsalan og ég skal sko segja þér að hún var Geðveiki með stóru og feitu G-i. Ég var aðallega á kassanum að skanna inn og stimpla afsláttinn inn og ég er handviss um að ef ég heyri eitt 'Bíp' í viðbót þá stekk ég út um gluggann í herberginu mínu! Á fimmtudaginn var ég líka búin um fimm í vinnunni og nýtti mér það í botn að Kringlan er opin til níu á fimmtudögum. Keypti mér glæsileg leðurstígvél, bol & Billabong tösku; Ætla svo að fara í Smáralindina og gá hvort að ég geti ekki eytt meira af öllum þessum peningi sem ég á. En ef þig langaði að vita það þá er ég rík. =]
Og að verða veik. Ég er líka að verða veik. Var ýkt slöpp í gær þegar ég fór að sofa. Ég kenni reykingastybbunni hjá Fríðu & Gústa um enda þurfti ég að anda í gegnum peysuna mína til að geta horft á House. Vaknaði svo í morgun að deyja í öllu andlitinu. Bruddi íbúfen og drakk kakó í allan dag en samt er ég ekkert skárri. Ég vona bara innilega að ég nái að sofa þetta úr mér af því að ég er að fara í brúðkaup á morgun. Svo er vinnan á sunnudaginn og skólinn á mánudaginn. Jebb, það er alltaf nóg að gera hjá mér.
Ég nenni svo ótrúlega ekki að sjá hvernig stundaskráin mín er þar sem að ég er viss um að það verða sko fleiri árekstar í henni heldur en í klessubílunum í tívolíinu!
Helga yfirmáta slöpp & þreytt
fallegt blogggggggggggg með litlu g-i;)
#2
08. janúar 2007 klukkan 23:54
Ekkert að minnast á að ég keypti mér bol líka? :P
Þú ert eins og ég með ónefnt nammi frá Góu-Lindu sem kemur í grænum bréfum.
Ojj!
Bííp!
Þú ert eins og ég með ónefnt nammi frá Góu-Lindu sem kemur í grænum bréfum.
Ojj!
Bííp!
#3
09. janúar 2007 klukkan 19:07
Jæja þá er það opinbert. Þegar ég kem heim úr skólanum klukkan rúmlega fimm í dag þá er ég að vera að stökkva út um gluggann.
Veit ekki alveg hvernig ég fer að því þar sem að glugginn er pínulítill en þetta reddast bara.
Veit ekki alveg hvernig ég fer að því þar sem að glugginn er pínulítill en þetta reddast bara.
#4
09. janúar 2007 klukkan 19:11
1) Samkvæmt mínum útreikningum eru ekki miklar líkur á að þú komist út um hann.
2) Það er svona eins meters fall.
En það er nú samt fall.
Ekki hoppa plís..
Ég tek þetta til baka..
Pííb.
2) Það er svona eins meters fall.
En það er nú samt fall.
Ekki hoppa plís..
Ég tek þetta til baka..
Pííb.
#5
09. janúar 2007 klukkan 19:15
Harpa
heheh gaman þú er bara svona eins og ég eftir þennan vinnu dag hehe en já kill Biall eru góðar myndir hehe sakna þín
#6
10. janúar 2007 klukkan 03:50


Ekkert Kjaftæði =D
Sé Þig seinna