//FjörtíuogÞrjú
: : 
Ég trúi því varla að árið 2007 sé að fara að koma. Árið sem að ég fæ bílpróf, árið sem ég er búin að vera bíða eftir og árið sem að ég hélt að myndi aldrei koma er að koma í kvöld. Ég var að hugsa áðan um allt sem ég er að búin að gera í ár og þá mundi ég ekki eftir neinu sem gerðist fyrir maí. Það var eins og einhver hefði þurrkað fyrstu fjóra mánuðina út úr hausnum á mér. Enn svo þegar ég fór að hugsa aðeins betur þá mundi ég eftir alveg fullt af hlutum sem að gerðust, eða þú veist ekki alveg fullt bara smá fullt.
-----^^^^-----
- Fór ég til Vestmannaeyja í fyrsta skiptið
- Fór ég á þrjú unglingamót. Í janúar, mars & júní
- Eyddi ég öllu páskafríinu í að læra fyrir samrænda náttúrufræðiprófið
- Tók ég öll samræmdu prófin
- Fór ég í River Rafting
- Útskrifaðist ég úr grunnskóla með 8.7 í meðaleinkunn
- Dúxaði ég í íslensku
- Eignaðist ég litla systur hana Sunnevu Rut
- Flutti ég að heiman yfir sumarið
- Flutti ég á Hvolsvöll til að vinna í SS
- Vann ég eins og hestur í SS í tvo mánuði
- Átti ég besta sumar í heimigeimi!
- Keypti ég mér nýjan síma.
- Borðaði ég fimm sinnum á Subway. Fyrstu fimm skiptin
- Kynntist ég fullt af frábæru fólki.
- Varð ég bloggóð.
- Urðu Ítalir heimsmeistarar í fótbolta!
- Fór ég á Kotmót.
- =]
- Byrjaði ég í Fjölbraut.
- Byrjaði ég á náttúrufræðibraut í FVA
- Planaði ég það að taka stúdentinn á þremur árum
- Fór ég til Noregs á Ný Kynslóð mót
- Kláraði ég fyrstu önnina mína í fjölbraut með 9 í meðaleinkunn
- Fékk ég 25 einingar fyrir fyrstu önnina mína
- Fórég í þrjá ökutíma og ekki hærra en annan gír
- Vann ég í Bison í Kringlunni í jólafríinu.
-----^^^^-----
- Ætla ég að klára tvær annir í viðbót
- Ætla ég að fá mér vinnu með skóla
- Fer ég til Spánar í tvær vikur
- Ætla ég að eiga langbesta sumarið í heimgeimi
- Ætla ég að taka bílprófið
- Og ná því
- Verð ég sautján ára
- Ætla ég að hætta að vera svona mikill asni =]
- Ætla ég að vera duglegari að læra heima.
- Sérstaklega í stærðfræði
- Ætla ég að njóta lífsins
Jahá, það er nú bara svoleiðis. Það er rosalega fyndið að á gamlársdag þá fer maður alltaf að hugsa um allt sem maður gerði á árinu og hvað maður hefði ekki átt að gera eða gera og hverju maður myndi vilja breyta. Svo ákveður maður að verða mikli betri manneskja á næsta ári en svo strax í febrúar er maður hættur að pæla í því. Svo fer þetta í hringi =] Ég hef samt aldrei verið fyrir það að strengja áramótaheit. Ég set mér frekar bara markmið, ekkert tengt áramótunum neitt.
En áramótin eru alltaf frekar skemmtilegur tími. Ég elska að horfa á annálana og lesa árslista yfir hinu ýmsu hluti. Eins og núna er ég að hlusta á árslista FM957. Ætla bara svona til gamans að nefna þrjú uppáhaldslögin mín árið 2006. Ekkert betra en annað; öll jafngóð.
Move Along - The All American Rejects
Sexyback - Justin Timberlake
Helga kemur með blogg á næsta ári
p.s. hey pældu i því ég hef ekki hitt þig siðan i fyrra hehe
Vonum að það verði hundraðogfimmtíu sinnum betra en 2006. : ]


En við sjáumst einhverntíman:D