//ÞrjátíuogNíu
04. desember 2006 klukkan 04:52
: : 
Manneskjan sem sagði að systkini væru besta getnaðarvörnin hitti svo sannarlega naglann á höfuðið. Ég get alla vega ekki hugsað mér að fara að eignast börn núna eftir að hafa borið ábyrgðina á litla bróður mínum í næstum eina og hálfa viku. Hann er búinn að vera yndislega þrjóskur, frekur, neikvæður & einfaldlega leiðinlegur við mig síðan að mamma og Hjalti skelltu sér til Svíþjóðar og tóku hana Sunnevu með. Hann sagði mér til dæmis áðan þegar við fórum í rútuna á Selfossi að hann væri búinn að borða þannig að ég var ekkert að spyrja hann hvort hann væri svangur þegar við komum í bæinn, en nei þá var hann víst svona voðalega svangur að hann gat varla labbað. Ég er náttúrulega frábær systir og lét afa stoppa á Burger King til að barnið & ég gætum fengið okkur að borða. Ég hélt að ég myndi verða gráhærð þarna inni; þetta yndislega barn lék sér að því að labba á fólk, stíga á tærnar á mér og hvað sem ég sagði þá hlýddi hann mér alls ekki. Mér var farið að líða frekar asnalega þar sem að fólk var farið að horfa á mig og hélt örugglega að ég ætti þetta brjálaða barn. Ég er ekkert smá fegin og glöð að mamma er að koma heim á morgun!
Annars er mjög lítið búið að gerast hjá mér. Ég fór hvorki á Mýrina né á James Bond en það skiptir svo sem litlu máli. Horfði á Home Alone 1, Nanny McPhee, Princess Diaries 2, Stick It & Break Up um helgina ;] Ég get svo bara nauðgað kvikmyndahúsum höfuðborgarsvæðisins þegar ég fer að vinna í Kringlunni. Bæði Ólöf & Þór eru búin að segja að þau ætli að koma að kíkja á mig, eru það kannski einhverjir fleiri sem ég gæti átt von á? Það er alltaf gaman að hitta fólk. Það væri líka frábært ef að einhver myndi nenna að gera eitthvað með mér, ekki bara kíkja á mig í vinnuna, til dæmis að fara í bíó með mér. =] Pretty please?
Mig langar í bílpróf. Núna og helst í gær. Ég er komin með svo mikið ógeð á rútum & strætóum og því að fá far hjá afa mínum. Mig langar bara að geta gert þetta sjálf! En kannski þyrfti ég þá að fara að hringja í ökukennarann og það tekur því eiginlega ekki núna af því að ég er að fara að byrja í prófum. Fimm próf & þá er þetta búið. Þessi fyrsta önn mín af sex. Verð vonandi komin með 24 einingar í kringum 19.desember. Verð bara að ná þessu líffræðidæmi sem að ég skil ekki neitt í og þá er ég í góðum málum. Hin fögin eru ekki það erfið, nema kannski stærðfræðin. Hún er alltaf frekar böggandi.
Heyrðu svo er ég að fara að yfirgefa þetta skítapleis þann fjórtánda júní næstkomandi. Ég er að fara til Spánar og verð þar í tvær vikur! Ég ætla mér svo feitt að verða brún. Kolbrún & glansandi ljóshærð.

Helga Farin til Spánar í huganum.
Mamma
Hæ sjáumst á eftir. Ég sskal svo reyna að ala Edgar betur upp fyrir næstu ferð....hehehe elska þig mamman
#1
04. desember 2006 klukkan 14:41
ég skal koma í bíó með þér ef þú reddar fari fyrir mig í bæjinn og borgar fyrir mig;D;D
#2
05. desember 2006 klukkan 03:10
Harpa Berg
hæhæh ég var lika buin að seigjast ætla að kikja á þig og gera ekkað með þér ég skal reyna að koma og fara i bíjó og ekkað flipp sakna þín i tætlur og bestu kveðjur hvolsvallarbrjálaðingrinn þinn hún harpa:P
ps. ekki nauðga kvikmyndahúnonum þú gætir fengi að sitja inni meina fyrir nauðgun eða farið i skilorðsbundið fángelsi,hehehe og já ég hefði viljað sjá bróðir þinn á burger king hehe aumingja Helga ég hefði sko skammað hann

#3
06. desember 2006 klukkan 18:35
:Þ..veit það núna:P
#4
07. desember 2006 klukkan 01:12
hey!! ég skal alveg kíkja með þér í bíó!! og þú getur meira að segja slegið tvær flugur í einu höggi og dregið Maríu með okkur!!:P
og ull!! ég er bara að fara til Ítalíu í VIKU 18. júní! (en ég verð allavega í góðum félagsskap!!)

#5
08. desember 2006 klukkan 16:59