Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//ÞrjátíuogSjö

25. nóvember 2006 klukkan 22:47
Logan : : Logan

Enn einn laugardagurinn sem fer ekki í neitt annað en lærdóm. Í þetta skiptið er það efnafræðin sem krefst þess að vera lesin; Hlutapróf númer tvö á mánudaginn. Fyrir það próf þarf ég að vera búin að lesa fjórða, fimmta, sjötta og sjöunda kafla. Efnafræði er reyndar ekkert erfið en vandamálið er að ég næ varla að halda augunum opnum til að lesa og þegar ég næ að halda þeim opnum þá hverfur einbeitingin. Ekki nógu gott þarf sem að ég þyrfti eiginlega að ná að klára að lesa þetta einu sinni til tvisvar sinnum yfir og fara svo kannski að byrja á ritgerðinni sem ég á að skila á föstudaginn. Svo á ég eftir að fara í líffræðipróf á miðvikudaginn & skila erfðafræðiverkefni. Og þetta sem ég er búin að telja upp er bara í tveimur áföngum af þeim átta sem ég er í.

Í gær tókum ég & Edgar rútuna úr bænum og á Selfoss. Edgar pælir í ótrúlegustu hlutum miðað við að hann er sex ára; Hann var í gær að skoða stjörnurnar út um rútugluggann og spurði mig svo af hverju Plútó væri ekki lengur reikistjarna og væri bara stjarna núna. Ég sagði að einhverjir vísindamenn hefðu ákveðið þetta og þá spurði hann með sinni skæru rödd: "En er það ekki Guð sem ræður því?"' Eftir það svaraði ég öllum spurningum með Ég veit það ekki.

Afi Glúmur sótti Edgar á Selfoss en Birgir ætlaði að sækja mig. Hann, þessi yndislegi frændi minn, hringdi í mig þegar ég var í rútunni og sagði mér að hann nennti ekki á Selfoss og að ég fengi far hjá Símoni, síðan fékk ég númerið hjá Símoni og átti bara að hringja í hann. Hann var reyndar bara í næsta bíl við bílinn hjá afa þegar ég hringdi í hann og ég fékk rosalega fallegt comment frá honum
Já ég sé þig, þú stendur fallega.
Brunuðum svo upp á Laugarvatn á tíma sem hlýtur að teljast met, alla vega fyrir mig. Þegar komið var upp á Laugarvatn henti ég dótinu mínu inn í skáp hjá Hirti og fór svo að leita að honum sjálfum. Það var erfiðara en að finna skittles í skál af M&M-i. Hitti mikið af skrautlegu fólki á leiðinni sem kannaðist alltaf jafn mikið við mig en ég hafði aldrei séð það áður á ævinni. Fólk verður alveg rosalega vinalegt þegar það er í glasi. Fann hann að lokum og þá varð ég auðvitað að horfa á bæði atriðin hans í Blítt & Létt. "Helga sjáðu þarna er ég."

Ef þú hefur aldrei farið á ML ball þá ertu að missa af miklu og ég ætla svo þokkalega að fara aftur, jafnvel þótt að ég drekki ekki. ;] Það var geðveikt stuð á vistinni fyrir ballið og partýið byrjaði alveg þónokkrum klukkutímum fyrir ballið. Kynntist alveg helling af fólki sem ég efast um að muni eftir mér næst þegar ég hitti það. Hitti líka fólk sem ég þekkti fyrir og komst til dæmis að því að ég á einn enn frænda í ML. Jahá, ég og James erum sem sé skyld, eða allavega samkvæmt honum.

Ballið sjálft var líka geðveikt skemmtilegt og ég verð að segja að ég skemmti mér betur á þessu balli en á böllunum í FVA. Miklu meiri stemning í ML ;] Dansaði eins og brjálæðingur við Agnesi og fleiri. Hitti líka Svavar Geir elskulegan frænda minn sem ég hef ekki hitt síðan ég veit ekki hvenær! Hann er alltaf jafn hress og skemmtilegur. Fékk að vita það frá Ómari að ég hefði misst af frábærum atriðum [þ.e. hans atriðum] á Blítt & Létt þar sem hann meðal annars reif af sér bolinn og fleira skemmtilegt. Sá reyndar atriðið þeirra Ómars, James, Stjána og hinna strákanna í 4.bekk þar sem að þeir tóku Sexy Back með tilheyrandi dönsum og læti. Einstaklega kynþokkafullt atriði þar sem að skorturinn á klæðnaði á efri hluta líkamans var sérstaklega kynþokkafullur ;]
Hann faðir minn kom svo og sótti mig upp á Laugarvatn rúmlega tvö. Ballið var reyndar til þrjú en þar sem að ákveðin manneskja Hjörtur Freyr sagði mér að ballið væri bara til tvö þá fór ég snemma. Fúlt en hann Birgir tjáði mér það að hann ætlaði sko að tala við móður mína til þess að ég fengi að gista næst þegar ég kæmi. Ég á frábæran frænda! <3

Í morgun vaknaði ég svo yndislega þreytt.Var hálfvakandi í alla nótt og vaknaði allt of snemma að mínu mati. Ellefu er allt of snemmt á laugardagi, hvað þá eftir ball. Var líka að deyja úr hungri en mér hefur ekki tekist að borða neitt án þess að verða óglatt síðan í hádeginu í gær. =/ Fór í sturtu og er svo bara búin að vera að reyna að lesa í þessari yndislegu fræði sem er kennd við efni. Lotukerfið og fleira skemmtilegt.

Er að pæla í að fara að hætta þessu þar sem að þetta er orðið feiknarlega langt blogg; það lengsta sem ég hef gert í langan tíma ef ekki það lengsta síðan alltaf.

Helga ML fan
Það er barasta ML á næsta ári:D. þýðir ekkert annað, en næsta ball verður ekki fyrr en eftir áramót...
#1
26. nóvember 2006 klukkan 05:20
ja það var greinilega gaman a Ml ballinu kanski maður joyni einhverntiman en hvað er malið með þetta blitt og lett lið þu hefðir svo feitt att að vinna að það er ekki eðlinlegt ( eg fekk gæsahuð og tar i augu þegar eg heyrði my girl fyrst) hevy sætt lag og eg ó vænasta manneskja af ollum for að grata hvað voru þessir domarar að pæla ! *ARG *

en allavena stattu þig i lærdominum ( þu ert ekki einn ) :)
#2
27. nóvember 2006 klukkan 01:06
 
Harpa Berg
hehehehehehehehehehehe töff blogg barqa langt en töff fékk að heyra allt þetta i simanum í gær en sakna þín
#3
27. nóvember 2006 klukkan 04:28
 
Mamma
Hey það þýðir ekki að hota mér með Bigga bró ég er ekki hrædd við hann. Vona að þér gangi vel í efnafræðinni yndislega dóttir. Söknum þín hér í Svíþjóð ...elskjú mammsla og hjatli.
#4
28. nóvember 2006 klukkan 04:05
Mamma, þú veist að hann er alræmdur fyrir að kitla fólk.

Og sérstaklega þig ;D
#5
28. nóvember 2006 klukkan 04:33

Skrifa athugasemd

Prófíll