//ÞrjátíuogFimm
17. nóvember 2006 klukkan 00:53
: : 
Helgin fór eins og ég ætlaði mér, ég gerði ekki neitt. Alla vega ekki neitt merkilegt, kannski fyrir utan það að ég lagði mig fram við að gera erfðafræðiverkefni fyrir Nát 103. Það indæla verkefni ákvað svo að hverfa úr tölvunni minni þannig að ég eyddi mánudagseyðunni minni í að gera verkefnið allt upp á nýtt; ekki gaman. Þessi vika er búin að vera ágæt horfðum á einhverja sjúka mynd í dönsku um Grænu Slátrarana. Þessir slátrara voru að byrja með kjötbúð en rafvirkinn lokaðist óvart inni í stóra kælinum þannig að þeir ákváðu að hakka hann niður og selja hann fyrst að enginn vissi að hann var hjá þeim. Þeir voru búnir að hakka töluvert af manneskjum í lok myndarinnar en þá föttuðu þeir að það var ekki kjötið sem var svona gott [það vildu allir kaupa hjá þeim] heldur maríneruðu þeir kjötið með svo góðri sósu. Og þá hættu þeir auðvitað að slátra fólki og allt endaði vel. Svo var auðvitað heiladauði, dýraunnandi tvíburabróðirinn sem var í dái í heil sjö ár en vaknaði þegar það átti að slökkva á öndunarvélinni og byrjaði að ganga um allt með gíraffann sinn. Jahá, ef það var einhver boðskapur í þessari mynd sem að ég á eftir að fatta þá skal ég svo sannarlega láta þig vita þegar ég fatta hann.
Gerðum líka ýkt töff í Náttúrufræði; vorum að skoða erfðir og svona og gá hvort að við værum með nokkra eiginleika sem fara eftir erfðum:
- Ég get myndað svona u með tungunni
- Ég er ekki litblind
- Ég get beygt þumalfingur aftur um 45 ° [eða svona næstum því]
- Ég er með lausa eyrnasnepla
- Ég er með kollvik
- Ég er með hökuskarð
- Ég er með löng augnhár & liðað hár
- Og ég er í blóðflokknum B+
Svo fór ég í göngugreiningu á þriðjudaginn og ég er að fara að fá ný innlegg. Ég er nefnilega með svo sniðuga fætur. Hælbeinin eru skökk og svo er ég innskeif bæði á ökklum og hnjám. Vissi það reyndar allt en fékk líka að vita það nýjasta við þá; vinstri fóturinn er fjórum millimetrum styttri en sá hægri. En þetta er allt saman innan skekkjumarka þannig að það þarf ekki að gera neitt.
Hey, ég fór líka í klippingu á föstudaginn. Er orðin ljóshærðari en ég var =]
Á morgun er ég svo vonandi að fara að prófa að vinna í Bísón. Ætla svo að gista hjá Iðunni yfir á laugardag og skella mér svo í aðra hvora verslunarmiðstöðina og kaupa jólagjafir. Og auðvitað hitta Guðjón ;] Hann er búinn að vera að heimta að ég kíki til hans í bæinn síðan í september eða eitthvað og núna er tími til kominn að fara að hitta hann.

Helga The Lean Mean Eating Machine
ðasdlaug
hæ kona...þú ert ekki svo óheppin með fæturna, sigrún er að breytast í gamlann mann!!!:P
#1
18. nóvember 2006 klukkan 15:54
Harpa
hæhæ heye loigga ligga ligga lá ég get lika gert u á tunguna mina hehe en é sakna þin
#2
21. nóvember 2006 klukkan 03:41

