//ŢrjátíuogŢrjú
06. nóvember 2006 klukkan 05:07
[FeelingThis;; Þreeeytt]
[EchoingInMyHead;; Glad - Tyler Hilton]
[EchoingInMyHead;; Glad - Tyler Hilton]
Einmitt, ég er ekki búin að vera dugleg við það að blogga undanfarið. Reyndi það þrisvar eða fjórum sinnum í síðustu viku en síðan var eitthvað á móti mér og vildi ekkert samþykkja þau blogg þannig að ég reyni bara aftur. =]
Síðustu helgi var vetrarfrí og ég gerði lítið annað en að sofa. Var vakin á misskemmtilegan hátt af systkinum mínum meðal annars með blokkflautu og var ekkert alltof hress með það. Held að ég hafi meira að segja urrað bæði á Edgar & Áslaugu.
Var bara fjóra daga í skólanum í síðustu viku út af vetrafríinu en var samt að drepast úr þreytu á föstudaginn eins og ég hefði verið í átján daga í skólanum en ekki bara fjóra.
Ég skellti mér svo í sveitina á föstudaginn. Tók rútuna og svo sótti amma mig á Selfoss. Ætlaði að vera geðveikt sniðug og taka tölvuna með mér til að geta lært en þar sem að ég er ég þá gleymdi ég auðvitað straumbreytinum heima. Gleymdi líka hleðslutækinu fyrir símann minn og þurfti að hafa slökkt á honum næstum alla helgina til að geta hringt í dag og beðið Hjalta um að sækja mig. En þar sem að enginn hringir í mig lengur og ég fæ nákvæmlega engin sms þá breytti það engu. Og svo til að kóróna þetta allt var tölvan hans pabba í viðgerð og hann var að parketleggja þannig að stóra sjónvarpið var ekki tengt. En ég reddaði þessu og var bara að lita í litabók og horfa á King Arthur í litla sjónvarpinu. =]
Í gær fékk ég þá snilldarhugmynd að fara í sund, í grenjandi rigningu. Hef ekki farið í sund síðan ég var á Hvolsvelli. Eftir sundið fór ég í heimsókn til Guðjóns og hitti hann, Ólöfu, Hjört og Gumma. Það var ýkt gaman, enda var ég að rústa þeim í Monopoly. Ólöf & Hjörtur komust að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti að fara á Blítt & Létt og hvöttu mig eindregið til að skrópa í skólanum. Þau sættu sig samt við það að ég kæmi bara á náttfataballið. Harpa var svo að bjóða mér á FSU ball á föstudaginn. Skil ekki alveg hvað er svona spennandi við að fá mig á böll en ég þarf ekkert að skilja allt.
Svaf eiginlega ekkert í nótt. Aðallega út af Áslaugu sem sparkaði mjög mikið í mig og mest í andlitið á mér. En samt líka út af veðrinu og út af því að ég náði ekki að hætta að hugsa. Veit einhver hvar off takkinn er á hausnum á mér? Er að pæla í að fara að sofa núna áður en það líður yfir mig af þreytu og ég æli út af afbrýðisseminni í mér.

Helga þreytta
http://gidjan.bloggar.is
Harpa berg
heheh ertu ekki buin að far i sund síðan i sumar Helga á æegað trúi þessu uppá þig ju u man ég u þolir ekki sund hehe en þetta með Ballið það er ara geggjað gaman á böllum og það er nátturulega enn skemmilegra að vera með þér á þeim held ég:/ en já þú ert snillingur eins og vanalega heheh og ju ég hringi i þig og sendi sms hvaða bull er etta en já akkuru ertu afbrigðissöm og sofðu bara vel það er eingin off takki á hausnum á þér manstu i sumar fundum við hann ekki þassa nótt sem þú varst heima hjá mér hehe þannnig er hann nokkuð til hehe kanski en haltu samm áfram að leita af honum sakna þín og reyndi að koma i heimsókn sem fyrst þá getum við farið saman i sund hehe eða ekkað gera bara það sem við gerum best flippa hehe en sakna þín og vill ekki hafa etta mikið leingra en heyrumst kossar og knus þín Harpa Berg
#1
06. nóvember 2006 klukkan 16:28
ekki segja neinum en off takkin þinn er á sama stað og minn!! á bak við augun einhverstaðar þar sem ekki er hægt að ná í hann!! Það er bara ekki hægt... sorry!! þetta er ættgengur kvilli sem hrjári bara mig og þig!!
p.s. María heldur að við séum eitthvað skildar... þar sem við erum báðar með svona mjög skemmtilegar hringingar í símunum okkar!! hehe... ég veit ekki hvar hún fær þá hugmind að við séum eitthvað skildar...:P
luv ya!!! vonandi sjáumst við bráðum!!!(K)

#2
09. nóvember 2006 klukkan 05:15