Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//ÞrjátíuogEitt

25. október 2006 klukkan 23:27
Sunny Sunny Sunny
[FeelingThis;; Hress]
[EchoingInMyHead;; You Could Be Happy - Snow Patrol]

Í dag er alþjóðlegi klaufadagurinn minn. Og því til sönnunar ætla ég að birta brot úr bloggi af gömlu síðunni minni;

"Á þriðjudaginn féll niður danska og Dúa ætlaði að koma með mér heim. Við ætluðum svo að vera geggt "mean" og hlupum á undan Sunnevu og Hörpu en æðislegu lappirnar á mér vildu ekki stoppa þannig ég rann og flaug beint á hausinn.0 Og svo heppilega vildi til að það voru að koma frímínútur þannig að það var fullt af fólki fyrir neðan stigann sem ég datt í...Dúa, þessi yndislega manneskja, gat bara ekki hætt að hlæja. Svo fórum við heim og horfðum á einn þátt af O.C. Sunneva kom svo og ég ætlaði að sýna þeim hvað stiginn niður í kjallara hjá mér væri algjörlega hættulaus, en það mistókst herfilega því að skórinn datt af mér og ég rann næstum því."

Ég man svo feitast eftir því. Flaug beint á hausinn í stiganum, allir að horfa og svo kom einhver strákur í þriðja bekk og spurði mig hvort að það væri ekki allt í lagi. Þessi litli strákur var almennilegri en vinkonur mínar sem hlógu eins og vitleysingar.
Í dag gerðist reyndar ekki neitt fyrir mig en dagurinn er ekki búinn. Sex klukkutímar eftir fyrir mig til að stórslasast. Ég hefði átt að mæta með hjálm í morgun bara til öryggis. Geturðu ekki ímyndað þér það? Ég að labba um ganga skólans með fjólubláan hjálm. Ég veit um alla vega þrjár manneskjur sem myndu neita að þekkja mig ef ég gerði það. =] Þannig að ef ég vil fækka í vinahópnum mínum þá er fjólublár hjálmur málið!

Það er að koma vetrarfrí! Vetrar F R Í! Það verður næs, nema hvað að ég hef sterklega á tilfinningunni að ég verði veik alla helgina. Það er eitthvað svo típískt ég. Alltaf veik í fríum. Fór reyndar veik heim eftir dönsku í gær s.s. klukkan fjögur. Lagðist upp í rúm þegar ég kom heim og svaf til hálf sjö. Ég get aldrei sofnað á daginn þannig að þetta var persónulegt afrek. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð.

Fótbolti í íþróttum á morgun! Veistu hvað það er gífurlega langt síðan að ég hef farið í fótbolta? Gærdagurinn telst ekki með þar sem að það var líka fótbolti í íþróttum þá. Mig langar að fara í fótbolta. Mig kitlar í iljarnar; mig langar svo í fótbolta! Eða bara að sparka í eitthvað. Samt helst fótbolta, ég er ekki viss um hversu vel foreldrar mínir tækju því ef að ég myndi taka upp á því að sparka í allt sem á vegi mínum yrði. Þar á meðal systkini, gæludýr og jafnvel fjarskylda ættingja.

Er að pæla í að gera breytingu á svefnvenjum mínum og byrja á því í nótt að sofa. Hef sofið einstaklega illa síðustu þrjár nætur. Ég ætla að kenna páfagaukunum um enda eru þeir staðsettir beint fyrir utan herbergið mitt. Þeir hafa reyndar haldið goggi um nætur en ég er viss um að nærvera þeirra truflar mig. Já, ég er örugglega með einhverja fóbíu fyrir því að sofa innan fimm metra radíus frá páfagaukum.

Helga Parrotophobic.
Æji enn gaman að heyra a það eru fleyri semnhafa dottið á hausin i stugum skólans en é heheh. og Helga þúgast mætt með asnalegustu hárkollu ewer i vinunna i suma r að vísu var það mega man en það var fyndið svo u sleppur með að fara með hjál i skólan en það væeri kanski ekkij sniðug ég myndi þekkja þig mindi bara fá mér bleikan eða gulan hjálm hehehe en já svo með að þetta með fótboltan þá langar mig i sumrið aftur en það var gaman á fótboltavellinum þá heheh en já skemmtilegra var að vera i körfubolta en u ert bara ágæt i báðu en hey ágæt er betra en gott hehe sakna þín og láttu u batna og helga það er bannað að vera veikur um helgina
#1
26. október 2006 klukkan 18:43
 
mamma
ÞÚ ERT SVO FYNDIN!!!
#2
26. október 2006 klukkan 18:54
já ég man svo ofur vel eftir þessum degi!! en já þú ert ekkert sma dugleg að blogga.. ég vona að þetta vetrarfrí verði næs... reyndar strax búin 1 dagur af því og maður er alveg að verða búin með það... :/ en meina vonum að þetta verði bara mjög gott vetrar frí og allir verði hressir og sofi svakalega mikið!!!
Elsjú sætasæta:*:*
#3
28. október 2006 klukkan 15:30

Skrifa athugasemd

Prófíll