jæa há ég á inni ennþá fullt af gullkornumog fyndnum setningum eins og þessari með mínutunara ég var ekkert þunn:/ eftir laugardagskveldið hóst hóst hehe ju kanski smá ég var lika bara að deyja ur þreytu eheh é gég sakna þí og hefði endilega viljað að u hafir kíkt til min en það verður bara að bíða betri tima +eg er lika góð vinkona að kommenta baa til að kommenta og ps já Hvolsvöllur er bloggörvandisvæði
u bloggarðir nánast á hverju kveldi nuna er met ef u gerir það 1 viku eða oftar nei u ýki ég hehe ég elska þig og sakna þí hveðja hvolsvallarbrjálaðingurinn eins og þú villt kalla mig heheh
//Ţrjátíu
23. október 2006 klukkan 00:50

[FeelingThis;; Þreeeeytt]
[EchoingInMyHead;; Transylvania - McFly]
[EchoingInMyHead;; Transylvania - McFly]
Vá þrjátíu blogg. Þrjátíuogtvö reyndar en opinberlega eru þau þrjátíu. Ég er samt búin að vera endalaust löt við það að blogga síðan ég byrjaði í skólanum. Ég vil kenna staðsetningu minni um og segja að það hafi verið Hvolsvöllur sem hafi haft svona svakalega bloggörvandi áhrif á mig en veit samt að þetta er sambland af leti og því að ég er að drukkna í skólanum. Að taka stúdentinn á þremur árum er ekkert smá erfitt. Ég er með 23 einingar núna plús forvarnarhópurinn sem er ein eining og svo fæ ég vonandi eina einingu fyrir mætingu þar sem að ég er búin að mæta eins og mér sé borgað fyrir það. Þá eru bara 115 einingar eftir. ;] Var að velja fyrir vorönnina um daginn og þetta verður alveg jafn mikið brjálæði í vor;
- ÍSL 103
- STÆ 203
- ENS 203
- DAN 203 [& stúdent í þessu hrognamáli í vor]
- NÁT 113
- EFN 103
- EÐL 103
- ÍÞR 202
Jahá þetta verður gaman. Svo er ég að leita mér að vinnu líka! Er ég brjáluð?
Skammhlaupið ógurlega var á föstudaginn. Ég var í glæsilegu liði BLÁRRA og stóðum við okkur með prýði. Vorum reyndar næstum því allan tímann í neðsta sæti en enduðum í því þriðja. Enda unnum við skrúðgönguna, hvernig sem maður vinnur skrúðgöngu en okkar var greinilega best, og vorum í öðru sæti í plankalabbinu. Gulir unnu, en það skiptir engu máli.
Var hjá pabba um helgina; sleppti ballinu. Eyddi föstudagskvöldinu í það að passa tvo litla brjálæðinga þekkta sem Þórhildi & Þorfinn. Það var fínt =] Ætlaði svo að horfa á Calcium Kid, Orlando Bloom daaah, en fór að sofa eftir tíu mínútur af myndinni. Áslaug sofnaði yfir myndinni og svaf alla nóttina í fötunum.
Í gær notaði ég fyrripartinn af deginum til að læra eins og brjálæðingur og skellti mér svo á tónleika hjá Kammerkórnum sem átti tíu ára afmæli. Æðislegt að hitta fólk sem maður hefur ekki hitt í 3-4 ár ;] Allir voða hressir og svona. Um kvöldið var kennara-innflutningspartý hjá Aðalheiði & Skúla og þar sem að Hildur telst víst til kennarastéttarinnar núna, eða svona næstum því, þá var henni auðvitað boðið og ég fór með til að heilsa upp á Hjört Frey. Eftir að Hjörtur var búinn að 'svæfa' Gústa með fallegu gítarspili tók gítardjamm við. Tveir kassagítarar = gaman. Héldum því bara áfram þangað til að ég fór. Dó úr þreytu þegar ég kom heim sem að sást vel þegar ég vaknaði í morgun. Vaknaði klukkan hálf eitt, frekar mygluð og fékk pítu í morgndegismat. Eftir matinn tók yndislegi faðir minn sig til og skutlaði mér alla leið heim. =D
Harpa B hringdi í mig og spjallaði við mig í 13 plús 14 mínútur eins og hún orðaði það sjálf. Hún var víst 'ekki þunn' eftir gærkvöldið. Hún er ágæt greyið. =P
Svo er núna að fara að taka við 4 daga skólavika og svo langþráð vetrarfrí á föstudaginn.
Ég ætla að halda mótmælagöngu bráðlega. Ekki gegn hvalveiðum; mér gæti ekki verið meira sama um þessa hvali. Ég ætla að halda mótmælagöngu gegn hárinu á mér. Í augnablikinu lítur það út fyrir að hafa verið flutt af höfði karlkyns poppstjörnu á áttunda áratuginum og yfir á mitt. Ég þyrfti líka alvarlega að komast í strípur. Hárið á mér er orðið skollitað og það stefnir allt í músabrúna litinn =| Ég vil halda mínum ljósa lit. Ef að hann fer þá hef ég ekki lengur afsökun fyrir öllu því heimskulega sem ég segi og þá gæti ég þurft að fara að hugsa áður en ég tala.

Helga þreytta
heheh þegar ég spurði hvað lite var ég vissi það alveg var bara buin að gleyma því:$ ehehe já það vqr bara gaman það kvöld hóst hóst nótt nema ekki fyrir mig seini partin þegar mér var hálgerlega hent utut minu eigin herbergi því ég vildi leyfa ykkur að vera einum heheh það var bara æði en takk mér líður betur nuna :o*
#3
25. október 2006 klukkan 04:05


Bestu kveðjur úr Tungunum og vertu nú dugleg að koma og heimsækja frændur og frænkur í Reykholti.
Kv. frá frænku.