Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

(2)

15. apríl 2009 klukkan 22:08
a

Ég hef oft velt því fyrir mér hvað gerist þegar maður deyr. Ekki á þennan dæmigerða hátt um það hvað verður um hinn látna þegar hann deyr heldur hvað verður um stafrænu leifarnar sem sú manneskja hefur skilið eftir sig í gegnum ævina. Ég er að meina vefsíða, blogg, Facebook, Myspace, Twitter & allt hitt sem maður tekur sér fyrir hendur á internetinu. Hvað mun gerast á Facebookinu mínu þegar ég yfirgef þennan heim? Mun koma notification til allra vina minna um að ég hafi látið lífið? Eða munu eftirlifendur mínir senda  starfsmönnum Facebook tölvupóst & biðja þá vinsamlegast um að fjarlægja aðganginn minn - þar sem ég hafi farið yfir móðuna miklu? Kannski er bara best að setja öll lykilorðin mín í erfðaskrána mína.
Þessi pæling tengist því ekkert að ég var að lesa bókina Áður en ég dey í páskafríinu & nei, ég er ekki að deyja - alla vega ekkert hraðar en þið hin.

Ég hef líka oft velt því fyrir mér hvað myndi gerast ef ég myndi hafa orð á öllum svona pælingum. Sumar hugsanirnar í kollinum á mér eru svo undarlegar & ég velti fyrir mér hinum ýmsustu hlutum. Ég ætti kannski að gefa út safn af pælingum & hugsunum - fólk gæti svo dundað sér við það að ákveða hvoru megin línunnar sem skilur að snilli & geðveiki, ég ætti að vera.

Mig langar í bækur. Mig langar til að lesa fullt af bókum! Mig langar til að vinna í bókabúð & lesa bækur & blöð & skoða ritföng. Ég er samt alveg búin að lesa ágætlega mikið af bókum á þessu ári - alla vega miðað við síðustu ár. Ég elska að lesa! ♥

Twilight ; New Moon ; Eclipse ; Breaking Dawn ; The Shack ; The Confident Woman ; Áður en ég dey

Mig langar alveg ótrúlega mikið til að finna mér svona lista yfir "100 books to read before you die" - ég endurtek að ég er ekki að deyja - & lesa bara allar bækurnar sem eru á þeim lista. Eða kannski bara að ákveða fyrir fram að lesa X margar bækur á ári. Ég veit ekki af hverju en svona markmið heilla mig. Það eru allt of margir hlutir sem að heilla mig. Ég er gjörheilluð manneskja. Af hlutum, hugmyndum, hugtökum & manneskjum. Ég elska lífið! ♥♥♥


NáttborðiðHérna til hægri eru bækurnar sem liggja núna á náttborðinu mínu.
1. Pocket World Atlas - mjög hentugt ef ég gleymi því hvað höfuðborgin í Malasíu heitir & ligg upp í rúmi.
2. The Happy Prince (Oscar Wilde) - smásögusafn eftir þennan merka höfund. 1/5
3. Journey to the Center of the Earth (Jules Verne) - hin eina & sanna. Snæfellsjökull í allri sinni dýrð
4. The Pursuit of Holiness (Jerry Bridges) - bók sem ég fékk frá RMC, þetta er svona andlega snakkið mitt
5. Word and Spirit together (David Pawson) - er ekki byrjuð að lesa en mun lesa hana á leið til Bangladesh
6. Biblían - Andlega fæðan mín. Lifandi orð Guðs.
7. My Heart's Cry (Anne Graham Lotz) - var bara að opna þessa, held að hún sé mjög góð.


Bangladesh eftir fjóra daga. Lundúnir eftir þrjá.
Minntist ég á það að ég elska lífið?
 ♥♥♥♥♥♥♥

(1)

27. mars 2009 klukkan 19:05
♥

Tilraun tvö. Eða kannski comeback ársins.
Anywho, þá hef ég ákveðið að skrifa inn nokkur orð á þessa blessuðu síðu. Mér finnst eins & ég sé að springa - ég er með svo mikla tjáningarþörf. Ég veit ekki hversu margir af gömlum & dyggum aðdáendum bloggskrifa minna munu detta hér inn - en ef þú ert hér ;; Vertu hjartanlega velkomin eða velkominn.

Byrjum á byrjuninni. Ég elska Ameríku. Ég get ekki lýst því hversu þakklát ég er & glöð yfir því að hafa fengið tækifæri að vera í Bandaríkjunum í fimm heilar vikur. Tíminn sem ég átti úti var svo dýrmætur & einhvern veginn nauðsynlegur fyrir mig. Þetta gerðist allt á réttum tíma. Guð er aldrei of snemma & aldrei of seinn. Ég fékk tækifæri til að draga mig enn nær Guði & bara til að vera ég & kynnast nýju fólki. Fólkið sem ég kynntist var hreint út sagt dásamlegt & ég verð að viðurkenna að ég skildi eftir nokkur brot úr hjarta mínu þar. (Ekki fara að ímynda ykkur eitthvað) Rockford Master's Commission er dásamlegur staður til að vera á & fólkið þar er ennþá dásamlegra. Guð er svo sannarlega sá sami alls staðar. Ég ferðaðist til átta fylkja allt í allt. Illinois var þó heimastöð mín & ég dvaldi í Flórída síðustu dagana. Sandalar, strönd & sjórinn í febrúar - ekki alveg það sem ég er vön en ég naut þess í botn. Ég var hluti af Teymi A-wesome & við skemmtum okkur stórkostlega á leið til Flórída. Tuttuguogþriggja tíma ógleymanleg bílferð. Þessi ferð er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma & ég er svo klárlega á leiðinni aftur þangað einn daginn. Eins & ég sagði - þá er ég ástfangin af þessu landi! ♥

Ég hef nýlega uppgötvað að ég hef mikinn áhuga á McFlurry. McFlurry með Daim. Það er eitthvað svo unaðslegt við þetta stökka karamellusúkkulaði í dásamlega McDonalds ísnum - sem ég vona að sé ekki innfluttur! Kannski eru þetta afleiðingar af því að verða ástfangin af skyndibitalandinu. Hver veit?

Mig langar stundum til að hraðspóla fram í framtíðina. En svo reyni ég að muna það að njóta dagsins í dag & þessarar mínútu. Hvert einasta augnablik er eitthvað til að njóta & ég vil ekki eyðileggja það. Ekki með kvíða, ekki með ótta & ekki einu sinni með tilhlökkun. Ég verð samt að segja það að ég er alveg rosalega spennt fyrir sumarinu & bara framtíðinni allri. Ég hlakka til að sjá það hvert Guð leiðir mig.

Ég ætla að byrja á því að leyfa Guði að leiða mig til Stykkishólms (-ar?) á morgun. Svo er vormót, páskafrí, Jesúkonu&stelpustund, Bangladesh... En bara eitt í einu :]

Unglingasamkoma.
Vá hvað það er gott að skrifa.

Bandaríkin !!

23. janúar 2009 klukkan 23:45


Halló halló halló!
Þar sem Facebook er að vera kjáni þá ætla ég að vera voða sniðug (eða meira að fylgja ráðum móður minnar) & skrifa örlítið um ferðir mínar hér. Ég get reyndar ekki skrifað mikið akkúrat núna vegna þess að ég er að fara að fara út með minni elskulegu Rachel Harvey (sem er ein af fólkinu sem kom hingað í maí)! Við ætlum að fara í smá verslunarleiðangur því að mig vantar svolítið af fötum & það er alltaf gaman að fara í búðir! Hmm, þessi vika er búin að vera mjög busy sem að mér finnst mjög fínt! Ég held að ég eigi aldrei eftir að kvarta yfir degi sem er mjög busy. Hvernig segir maður að dagur sé busy á íslensku ? Segir maður að dagurinn sé upptekinn eða eitthvað? Haha, vá hvað ég elska að skrifa & röfla bara eitthvað.
Ég get svo sem sagt ykkur eitthvað - það er til dæmis aldrei búið að fara yfir frostmark síðan ég kom hingað. Akkúrat núna eru -3 ° C úti en það eru 27° á fahrenheit! Frostmark hjá þeim er 32 sem er bara skrítið vegna þess að þegar ég heyri töluna 32 þá finnst mér eins og það ætti að vera heitt heitt heitt.
Myndin þarna uppi er af mér & kallinum í Legolandi (já, Legolandi) í Schaumburg.  Hver vissi að það væru Legolönd í Bandaríkjunum? Alla vega ekki ég! Ég hélt að það væri svona Danmerkur-thingy. Þetta var samt soldið fyndinn kall vegna þess að það vantaði legokubb í bláu stuttbuxurnar hans eins & þið sjáið & svo var líka gat á sokknum hans (þeir bjuggu hann til svoleiðis) sem að sést ekki á þessari mynd.
Í þessari viku er ég búin að horfa á The Sisterhood of the Travelling Pants 1 & 2 ;; ótrúlega gaman að horfa á svona stelpumyndir - ó! Ég horfði líka á Peter Pan í gær ;; það var áhugvert. (Leikna myndin ekki teiknimyndin)
Miðvikudagurinn var mjög upptekinn dagur ;; ég var í kirkjunni (Masters) frá hálf 9 til 12 - með smá kvöldmatarhléi sem ég tók í mjög miklum flýti. Málið er að á miðvikudagskvöldum þá er ég hluti af barnakirkjunni en núna í fyrradag þá þurfti ég líka að vera á æfingu vegna þess að hópurinn sem ég er í var með drama í barnakapellunni í gærmorgun. Ég fékk það merkilega hlutverk í sviðsmunaliðinu að færa sófa upp á sviðið & taka hann af sviðinu. Samt ekki ein.

Ég held að ég hafi aldrei áður hangið með svona mörgum stelpum! Þetta er stórfurðulegt & mjög öðruvísi. En samt mjög gaman & pottþétt mjög þroskandi vegna þess að stelpur geta verið skrítnar í umgengni. Stelpurnar hérna eru samt svo mismunandi! Það er fyndið að koma úr umhverfi þar sem það eru bara ég, Eydís, Kata & Jenný í umhverfi þar sem eru 9 íbúðir þar sem ég get farið & fundið stelpur! Funnyfunny.

Hey! Ég er að fara til Wisconsin á morgun! Ég komst að því í gær að það væri bara hálftíma keyrsla þangað svo að Sheena (þriðja árs nemi sem er awesome!) & Erin Olander ætla að fara með mig þangað! Það verður fjórða Bandaríkjafylkið sem ég heimsæki ;; so far hef ég farið til Massachusetts, New Hampshire & Illinois. Á leiðinni til Flórída mun ég svo keyra í gegnum nokkur fylki í viðbót svo að það verður gaman =)

Ég er líka að fara að fara á fullt af æfingum - sú fyrsta er á morgun klukkan eitt - fyrir ferðina mína til Flórída. Málið er nefnilega að við munum vera í ca viku að ferðast um & gera fullt af skemmtilegum þjónustuhlutum. Við erum að fara að æfa svona Human Video (drama stuff) eins & krakkarnir gerðu þegar þau komu til okkar. Haha! Það verður mjög áhugavert að taka þátt í svoleiðis.

Anywho, þá átti þetta að vera stutt en þar sem að ég er alveg einstaklega áhugaverð manneskja & get alltaf fundið eitthvað meira til að segja en nauðsynlegt er án þess að segja allt sem ég gæti sagt um vikuna mína þá er þetta langt.

Myndirnar verða samt að bíða betri tíma.
Ég ætla að reyna að vera duglegri að taka myndir eeeen það er erfitt að venja sig á það að vera alltaf með myndavélina uppi við.

Ég elska ykkur!
Takkfyrirtakk

//EitthundraðFimmtíuogSjö

01. september 2008 klukkan 20:37
a

Suma daga íhuga ég það verulega að gerast feministi en síðan þegar ég hugsa mig betur um þá held ég að það yrði of mikil vinna. Maður þarf að hneykslast yfir hinu & þessu og ég nenni því bara alls ekki. Læt mér nægja þau örfáu skipti þar sem að ég hneykslast fyrir hönd feministanna. Eitt af þessum skiptum var í dag og þegar ég hugsa um það þá verða flest þessi skipti í Húsasmiðjunni. Þannig er nú mál með vexti að í hádeginu í dag þá kom kona inn í búðina og spurði um parketnagla. Ég var nú ekki alveg viss hvað það var en fór nú samt með hana í nagladeildina & stóð þar og leitaði. Þá kom þessi óborganlega setning::

"Er ekki einhver karlmaður sem getur hjálpað mér að finna þá."

Ekki bara hvort að það væri einhver starfsmaður sem að gæti hjálpað henni heldur varð það að vera karlmaður. Ég sagði hana að ég ætlaði að fara að spyrja Auði að þessu og með leiðbeiningum frá henni staðsetti ég parketnaglanna og seldi konunni nokkur stykki. En já þetta er eitthvað sem hefur gerst nokkrum sinnum; konur sem að spyrja hvort að strákarnir viti ekki eitthvað meira um þetta. Ástæðan fyrir því að ég veit ekki alltaf um allt er ekki sú að ég sé kvenkyns heldur er hún sú að ég hef bara unnið þarna síðan í maí.

Á morgun er síðasti vinnudagurinn minn! Jibbýkóla & appelsínudjús! Tíu tímar eftir & þá er ekki meiri naglar & málning & timbursala & pípudeild fyrir mig. Mér reyndar líkaði rosalega vel við þessa vinnu. Haha! Verður eiginlega hálf skrítið að vera ekki í Húsasmiðjunni tíu tíma á dag. En ég hlakka líka ótrúlega mikið til að fara aftur í skólann. Ætla að nota miðvikudaginn til að pakka niður & eitthvað fínerí. Fimmtudagurinn fer svo í að fínísera allt saman og svo fer ég í Völvufellið. Skólinn byrjar nefnilega á föstudaginn. Ég er rosalega spennt fyrir því að byrja en samt frekar stressuð þar sem að þetta verður allt öðru vísi en í fyrra. Haha, en ég hef þó alla vega Eydísi ef þetta verður yfirþyrmandi. Ég er farin að sakna hljóðanna sem hún gefur frá sér rétt áður en hún sofnar & líka farin að sakna þess þegar við spjölluðum okkur í svefn. Ahh, good times.

Það er reyndar alveg ótrúlega skrítið & sárt að þurfa að yfirgefa yndislegu fjölskylduna mína. Ég er alltaf að átta mig betur og betur á því að það er svo sannarlega Guð sem að gefur okkur fjölskyldur okkar. Fjölskyldan mín er þannig gerð að ég get alltaf treyst á hana hvort sem er til að hugga mig eða gleðja mig. Hún gefur mér sjálfstraust & elskar mig sama hvað ég geri, þó að hún samþykki kannski ekki allt sem ég geri. Ég er svo þakklát Guði fyrir að hafa gefið mér þessa fjölskyldu. ♥

Best í heimi!

Sunneva systir mín talar mjög skemmtilega ::
Jakob = Japok
Snakk = Nask

a

Áfram KR!

//EitthundraðFimmtíuogSex

27. ágúst 2008 klukkan 22:32
a

Ég verð að viðurkenna það að ég er mjög stolt af því að vera Íslendingur þessa dagana, þá sérstaklega í dag. Ef að þú hefur ekki hugmynd um af hverju þá gæti hugsast að þú hafir búið í kassa undir Kringlunni síðustu daga. En samt ekki, því að þú hefðir eflaust frétt af glæstu afreki strákanna "okkar" [kjánalegt að eigna sér þá þegar maður þekkir þá ekki baun]. Íslenska handboltalandsliðið var að koma "heim" búa þeir ekki flestir erlendis? & þeim var fagnað ákaft. Ég fylgdist nú bara með í sjónvarpinu og fannst þetta allt vera svo yndislegt.
Mér fannst yndislegt þegar þeir hittu fjölskyldur sínar & mér fannst yndislegt þegar þeir voru niðri á Arnarhóli. Svo toppaði það yndislegheitin þegar þeir voru sæmdir fálkaorðunni. Þeir áttu það fyllilega skilið. :]

Fyrst að ég er komin í viðurkenningargírinn þá verð ég líka að viðurkenna fyrir ykkur að ég er smá skotin í einum handboltakappa. Held að mamma mín hafi áttað sig á því áðan þegar ég brosti út af eyrum; það var nefnilega verið að taka viðtal við hann. Haha! Últramegakjánalegt en satt. Það mætti halda að ég væri fjórtán ára skólastelpa með smá crush á einhvern frægan erlendan leikara. En nei, þetta er bara ég. Næstum því átján ára stelpa sem að hefur heillast örlítið af persónutöfrum Loga Geirssonar. Jájá, kemur á óvart eða ekki. [:


a

♥♥♥

a
En ég er farin að borða kanilsnúða
& hnerra.
♥♥♥

//EitthundraðFimmtíuogFimm

25. ágúst 2008 klukkan 21:24
a   Trallalla

Eftir mjög óformlega könnun þá hef ég komist að því að einhverjir lesa þetta blogg & á meðan ég hef ennþá mikla tjáningarþörf og fólk hefur áhuga á að lesa það sem ég tjái mig um þá býst ég við að ég kallist bloggari. Eða eitthvað svoleiðis.

Anywho, þá fór ég á The Dark Knight með Hugrúnu um daginn, loksins loksins loksins. Og ég get fullvissað ykkur um það að ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Stórgóð mynd enda frábærir leikarar og leikstjóri. Ef ég væri þú þá myndi ég tjékka á mynd sem heitir The Prestige & einnig á Batman Begins ef þú hefur ekki þegar séð þær. Ég fylgi að sjálfsögðu fjöldanum & fílaði jókerinn í tætlur. Mér fannst hann líka endalaust fyndinn; hló á M J Ö G óviðeigandi stöðum & svo á fleiri viðeigandi stöðum. Ég fór líka í afmæli til Hafsteins & Hafliða um daginn. Alltaf gaman að hitta fullt fullt af fólki. Sautjánda ágúst fór ég í eitt stykki brúðkaup. Það voru Sunna&Hjalti sem að ákváðu að verða hjón. Mjög falleg hjón. Það falleg hjón að ég fékk tár í augun í brúðkaupinu. [=

Nýliðin helgi var mjög fín. Byrjaði á því að fara í átján ára afmæli til Birnu frænku á föstudagskvöldinu. Helíum & fleira skemmtilegt! Á laugardaginn fór svo austur til pabba & skundaðist með hele familien á eitt stykki landbúnaðarsýningu. Já þú last rétt. Landbúnaðarsýningu. Pabbi minn er svo mikill bóndi sjáðu til. Við vorum þar alveg til sex, fórum svo heim að borða & komum svo aftur á kvöldvökuna. Kvöldvakan var mikið stuð eða alla vega voru Veðurguðirnir það. Rosalega gaman að syngja & dansa. Ég komst líka að því að tveir úr hljómsveitinni voru með mér í grunnskóla! Ég hafði ekki grænan Guðmund um það. Kvöldið endaði svo á niðudrepandi Árna Johnsen & frábærri flugeldasýningu! Menningarnótt hvað?
Sunnudagurinn var svo tekinn Ólympíulega snemma. Horfði á einhverja mynd & borðaði pönnukökur hjá ömmu. Yndisleg helgi. (=

Þessa dagana er ég bara mjög spennt yfir næsta vetri. Ég fór á fund á fimmtudaginn varðandi unglingastarfið & það er margt spennandi að fara að gerast. Alla vega hjá mér. Og svo veit ég að Guð ætlar að gera stórkostlega hluti. Skólinn byrjar á föstudaginn í næstu viku 5.september og ég hætti að vinna á þriðjudaginn. Ég ætla að vera eins lengi og ég get heima þannig að Eydís! Þú verður að passa rúmið mitt vandlega!

Hey! Ég gleymdi næstum því að minnast á hvað handbolti er últramegakúl þessa dagana. Silfur fosho. [=
a


Til ykkar
♥♥♥♥♥♥♥♥♥

//EitthundraðFimmtíuogFjögur

19. ágúst 2008 klukkan 20:37
a

Les einhver þetta?

Now the rain is just washing you out of my hair
and out of my mind.

//EitthundraðFimmtíuogÞrjú

11. ágúst 2008 klukkan 21:59
Afríkus


Það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa gömul blogg. Það er líka mjög hvetjandi að lesa gömul blogg því að nú langar mig til að blogga meira svo að ég geti líka lesið þetta blogg eftir tvö ár & skemmt mér konunglega yfir því hvað ég var [eða er] mikill kjáni. Fyrst af öllu vil ég tilkynna ykkur öllum að hlusta á hljómsveit sem heitir Leeland.     www.myspace.com/leelandmusic   Það besta við Mæspeis er að maður getur fundið endalaust af hljómsveitum þar & best er þegar maður dettur inn á hljómsveit sem að maður fílar í botn. Toppurinn á Leeland-tilverunni minni var þegar ég rakst á disk með þeim á Kotmóti; ég keypti hann að sjálfsögðu og hef nú lifað hamingjusamlega í viku með Leeland í eyrunum.

Kotmót, Kotmót, Kotmót. Ég veit ekki alveg hvað er hægt að segja um Kotmót. Það var allt svo friðsælt einhvern veginn. Engar dramatískar sveiflur, hvorki upp né niður, heldur bara róleg vellíðan alltígegnum mótið. & miðað við síðasta Kotmót þá er það bara mjög gott.  Ég get vitnað um það hér & nú að síðustu nokkrar vikur í lífi mínu hafa verið mjög friðsælar. Þessi yndislegi himneski friður sem bara Jesús getur gefið manni. Mér finnst mjög mikilvægt að fá að upplifa þennan frið af því að fyrir ári þá var allt í ruglinu hjá mér. Fullt af breytingum sem að gerðu það að verkum að ég var mjög óróleg og stressuð. En núna nýt ég þess bara að vita ekki alveg hvað er að fara að gerast því að ég veit að líf mitt er í bestu höndunum, höndum Guðs.

Ég var voða dugleg um daginn & var heillengi [alltoflengi] ein heima með afa á meðan fjölskyldan skrapp í frí. Átti reyndar í smá erfiðleikum með að vakna á réttum tíma en eftir að hafa sofið yfir mig einn laugardaginn [þegar ég mæti 10 en ekki 8] þá ákvað ég að vera smá skynsöm & fara almennt séð fyrr að sofa. Til að vera algjörlega örugg um að vakna læt ég bæði símann minn & vekjaraklukku hringja á morgnana & ég skal sko segja þér að ég vakna!

Elskan mín hún Hugrún bauð mér í mat um daginn & það var yndislegt kvöld. Við höfðum ekki hist í meira en ár en það var bara eins og við hefðum hist daginn áður. Dásamlegt! Við töluðum svo rosalega mikið saman að við höfðum varla tíma til að borða dýrindis steikina hennar Hugrúnar sem hún brenndi bara smá! Við ætlum að endurtaka þessa frábæru samverustund á fimmtudaginn & skella okkur á The Dark Knight í kvikmyndahús. Já ég veit, ég er leim - ekki búin að sjá Heath Ledger í sínu besta hlutverki.

Flott flott, farin að horfa á The Evidence
& vera leim með foreldrum mínum.

//EitthundraðFimmtíuogTvö

17. júlí 2008 klukkan 20:43
a

"Ertu á lausu vinan?"

Stundum þegar ég er í vinnunni & einhver viðskiptavinur spyr mig að þessu þá langar mig til að koma með rosalega heimskuleg svör. Það fyrsta og mest augljósasta er að spyrja fólkið á móti hvað hjúskaparstaða mín komi þeim við.  Hin svörin eru mismunandi & misbitur eftir því hvaða dagur er hjá mér, hvort ég er súperglöð og hjálpsöm út í ystu æsar eða hvort að ég sé ömurlega þreytt og pirrípú.
Ég sá samt kímnina í þessu áðan þegar einhver kona spurði Gunnar að þessu: "Ertu á lausu vinur?". Ég forðaði mér mjög hratt burt frá atvikinu & brosti eins og kisinn í Lísu í Undralandi. Þú veist, þessi fjólublái ósýnilegi sem að er alls staðar & svo verður alltaf brosið eftir.

Í morgun vaknaði ég á mjög óheppilegum tíma. Augun opnuðust á slaginu átta, verst samt að á því augnabliki átti ég að vera að mæta í vinnuna. Segjum bara að ég hafi verið mjög fljót að koma mér í fötin, út í bíl og í vinnuna. Takktakktakk.

& núna ætla ég að fara að horfa á frábæran þátt.

a
The It Crowd;
Moss er bestur.



//EitthundraðFimmtíuogEitt

14. júlí 2008 klukkan 12:50
a

Í dag afgreiddi ég bæði Júlíus Sesar & öfugugga.
& ég er í hádegismat.
Fróðlegt að sjá hvað restin af deginum færir með sér.

Júlíus Sesar = Julio Cezar [viðskiptavinur]
Öfuguggi = verkfæri

Húsasmiðjan er æði.

Prófíll